Hreppsnefnd 10.01.08

10.01 2008 - Fimmtudagur

Hreppsnefndarfundur var haldinn fimmtudaginn 10. janúar 2008 í félagsheimilinu Miklagarði kl. 16.00.

Mætt til fundar: Anna Pála Víglundsdóttir, Ólafur K. Ármannsson, Eyjólfur Sigurðsson, Brynjar Joensen, Björn Halldórsson, Þórdís Þorbergsdóttir og Einar Víglundsson.

Einnig mætt: Þorsteinn Steinsson, sveitarstjóri og Magnús Már Þorvaldsson, er ritaði fundargerð.

Gestir fundarins: Katla Steinsson og Skúli Björn Gunnarsson frá Markaðsstofu Austurlands. Árni Birgisson frá Flugstoðum ohf. og Björn Heiðar Sigurbjörnsson frá Brunavörnum á Austurlandi.

Í upphafi fundar leitaði oddviti heimildar til breytinga á dagskrá, þannig að fulltrúar Markaðsstofunnar gerðu grein fyrir starfsemi MA sem fyrsti liður á dagskrá og heimilað yrði að hreyfa við dagskrá m. t. t. kynningar fulltrúa Flugstoða og Brunavarna. Ennfremur að bætt yrði inn í dagskrá lið um úthlutun Jöfnunarsjóðs v/aflasamdráttar þorsks.
Samþykkt samhljóða af nefndarmönnum.

Dagskrá:

1. mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 13. des. sl.
Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 13. des. sl.
Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða.

2. mál. Fundargerð þjónustunefndar aldraðra frá 5. des. sl.
Lögð fram fundargerð þjónustunefndar aldraðra frá 5. des. sl.

3. mál. Upplýsingar Hagstofu Íslands um þróun íbúafjölda á Vopnafirði
Lögð fram gögn frá Hagstofu Íslands sem sýna að íbúar Vopnafjarðarhrepps eru 701 miðað við 1. des. 2007 samanborið við 712 þann 1. des. 2006. Íbúum Vopnafjarðarhrepps fækkar því um 11 eða 1,5 % milli viðkomandi ára.

4. mál. Úthlutun Jöfnunarsjóðs vegna samdráttar í þorskkvóta.
Lagðar fram reglur dags. 31. des. sl. vegna úthlutunar fjármuna til sveitarfélaga vegna samdráttar í aflamarki þorsks. Jafnframt lagt fram yfirlit yfir útlutanir til hvers og eins sveitarfélags. Sveitarstjóri gerði grein fyrir málinu og lagði síðan fram svofellda bókun:

,,Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps telur að endurskoða þurfi reglur um úthlutun þessara fjármuna með tilliti til þess hversu stór hluti starfandi fólks í viðkomandi sveitarfélagi vinnur við sjávarútveg. Leikreglur kvótakerfisins eru einnig þannig að engan veginn er víst að veiddur afli sé unninn á sama stað og hann er skráður á. Til þessara hluta þarf að líta þegar áhrif aflasamdráttar eru metin. Jafnframt telur hreppsnefnd eðlilegra að miða við afla í þorskígildistonnum en ekki einungis í þorsktonnum.
Sveiflur í aflabrögðum annarra tegunda en þorsks geta haft afgerandi áhrif í byggðum þar sem þær renna meginstoðum undir vinnsluna. Hér er sérstaklega átt við byggðir sem eiga allt sitt undir því hvernig aflaheimildum er úthlutað í uppsjávarafla(Loðnu, síld og kolmuna).”
Í framhaldi var nokkur umræða um þessi mál þar sem fundarmenn lýstu sjónarmiðum sínum.
Fyrirliggjandi tillaga var síðan samþykkt samhljóða.

5. mál. Sökkvibílamál, greinargerð Flugstoða ohf., dags. 3. jan. sl.
Á fundinn voru mættir Árni Birgisson frá Flugstoðumnm ohf. og Björn H. Sigurbjörnsson frá Brunavörnum á Austurlandi.
Fyrir fundinum lá greinargerð Flugstoða ohf. vegna fyrirhugaðra kaupa á nýjum slökkvibíl sem kaupa á til Vopnafjarðar í samvinnu Vopnafjarðarhepps og Flugstoða ohf.
Fulltrúi Flugstoða gerði grein fyrir greinargerð sinni þar sem lagt er til að gengið verði til samninga um kaup á slökkvibíl á grundvelli tilboðs Ólafs Gíslasonar og co.
Töluverðar umræður urðu síðan um málið þar sem fundarmenn lýstu mismunandi sjónarmiðum sínum.
Samþykkt að fresta málinu til næsta hreppsnefndarfundar meðan nánari gagna væri aflað.

Undir þessum lið var einnig kynnt að dæla á eldri slökkvibíl væri orðin ónýt og leysa yrði málin til þess að tryggja öryggi. Gerð var grein fyrir þessum málum og lagt var til að fengin yrði heimild til þess að kaupa nýja háþrýstidælu sem komið yrði fyrir í hinum nýja tækjabíl slökkviliðsins. Þetta þýðir að gamli slökkvibíllinn verður framvegis einungis notaður sem tankbíll. Kostnaður er áætlaður um 1.000 þús. kr. vegna þessarar dælu.
Hreppsnefd samþykkti tillöguna samhljóða.

6. mál. Markaðsstofa Austurlands.
Á fundinn voru mætt Katla Steinsdóttir framkvæmdastjóri Markaðsstofu Austurlands og Skúli Björn Gunnarsson stjórnarformaður.
Gerðu þau grein fyrir starfsemi Markaðsstofunnar og þeirri þjónustu sem hún býður uppá. Að því loknu svöruðu þau fyrirspurnum fundarmanna.
Fundarmenn þökkuðu síðan gestum fyrir góða kynningu á starfsemi Markaðsstofunnar og almennum upplýsingum um ferðamál í fjórðungnum.

7. mál. Leikskólinn - Heimild til þess að bjóða út næsta áfanga.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir því að verklok á þeim áfanga leikskólans sem nú er unnið að er brátt náð og verður skilað 17. janúar n. k. samkvæmt verksamningi við Mælifell ehf. Hönnuðir og eftirlitsaðilar munu koma í næstu viku og ljúka úttekt á þessum áfanga og jafnframt til þess að fara nákvæmlega yfir fyrirhugaðar framkvæmdir í næsta áfanga, sem brýnt er að bjóða út í beinu framhaldi.
Lögð fram svofelld tillaga: “Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps heimilar sveitarstjóra að bjóða út 3. áfanga viðbyggingar við leikskólann Brekkubæ”.
Fyrirliggjandi tillaga var síðan samþykkt samhljóða.

8. mál. Nefndir til styrkingar atvinnulífs á svæðum með lítinn hagvöxt.
Lagt fram bréf forsætisráðuneytisins frá 4. janúar sl., þar sem greint er frá því að forsætisráðherra hefur ákveðið með samþykki ríkisstjórnarinnar að skipa tvær nefndir til að fjalla um leiðir til að styrkja atvinnulíf og samfélag á svæðum þar sem hagvöxtur er lítill. Annari nefndinni er ætlað að fjalla um Norðurland vestra og hinni nefndinni er ætlað að fjalla um fámenn byggðarlög á Norðurlandi eystra og Austurlandi. Nefndunum er meðal annars ætlað að gera tillögur um mögulega styrkingu menntunar og rannsókna, uppbyggingu iðnaðar og þjónustu og flutning starfa frá höfuðborgarsvæðinu til umræddra svæða. Í hvorri nefnd eiga sæti fimm fulltrúar, þar af þrír fulltrúar stjórnavalda og tveir fulltrúar frá viðkomandi svæðum.



9. mál Ýmis bréf og mál:
a) Norðausturvegur Brunahvammsháls - Bunguflói. Verksamningur milli Suðurverks h/f og Vegagerðarinnar um 1. áfanga verksins.
Lagt fram til kynningar.

10. mál HB Grandi
Sveitarstjóri gerði grein fyrir málinu og lagði til að eftirfarandi bókun yrði samþykkt. Nefndarmenn viðruðu sjónarmið sín um þetta brýna mál.

,,Hreppsnefnd Vopnafjarðarhepps telur brýnt að sem fyrst verði komið á fundi með æðstu stjórnendum HB Granda h/f og fulltrúum sveitarstjórnar, þar sem rædd verða áform fyrirtækisins á staðnum varðandi uppbyggingu atvinnutækifæra, samkipti aðila og tengd mál. Á fundinn skulu mæta af hálfu sveitarfélagsins sveitarstjóri og fulltrúar meiri- og minnihluta sveitarstjórnar.”

Sveitarstjóra falið að koma slíkum fundi á. Ákveðið að fulltrúar sveitarstjórnar verði Anna Pála Víglundsdóttir, Ólafur K. Ármannsson og Björn Halldórsson.


Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 18:30





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir