Hreppsnefnd 15.11.07

15.11 2007 - Fimmtudagur

Hreppsnefnd 15.11.07
Hreppsnefndarfundur haldinn fimmtudaginn 15. nóv. 2007 í félagsheimilinu Miklagarði kl. 16.00

Mætt til fundar: Anna Pála Víglundsdóttir, Aðalbjörn Björnsson, Ólafur K. Ármannsson, Eyjólfur Sigurðsson, Björn Halldórsson, Guðrún Anna Guðnadóttir og Þórdís Þorbergsdóttir.

Einnig mættir: Þorsteinn Steinsson, sveitarstjóri, og Magnús Már Þorvaldsson, er ritaði fundargerð.

Dagskrá:

1. mál Fundargerð hreppsnefndar frá 1. nóv. sl.
Fundargerð hreppsnefndar frá 1. nóv. sl. lögð fram.
Fundargerðin síðan samþykkt.

2. mál Verðtilboð í nýjan slökkvibíl fyrir Vopnafjörð og Flugstoðir.
Lögð fram verðtilboð í nýjan slökkvibíl fyrir Vopnafjörð, sem fengist hafa frá þeim aðilum sem óskað var eftir verðtilboðum hjá.

Tilboðin eru :

1) Ólafur Gíslason og co. :Býður bíl af Scanía gerð, sbr. fyrirliggjandi
gögn 24.965 þús. kr. án vsk.
2) Sigurjón Magnússon ehf. Scanía, sbr. meðfylgjandi gögn 23.384 þús. kr. án vsk.
3) Sigurjón Magnússon ehf. Man, sbr. meðfylgjandi gögn 22.156 þús. kr. án vsk.

Talsverðar umræður áttu sér stað um málið og einnig fyrirhugaða samvinnu við Flugstoðir ohf.
Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps felur forsvarmönnum Brunavarna á Austurlandi og fulltrúum Flugstoða ohf. að fara yfir fyrirliggjandi verðtilboð fyrir hönd Slökkviliðs Vopnafjarðarhrepps og meta hvaða tilboð er heppilgast miðað við uppsettar kröfur kaupenda.
Hreppsnefnd samþykkti þessa málsmeðferð samhljóða.

3. mál Bréf Skipulagsstofnunar dags. 5. nóv. sl., varðandi breytingu á efnistökusvæðum.
Kynnt niðurstaða Skipulagsstofnunar varðandi breytingu á efnistökusvæði vegna 1. áfanga Norðausturvegar til Vopnafjarðar.
Í niðurstöðu Skipulagsstofnunar er bent á að Vopnafjrðarhreppur þarf að óska meðmæla stofnunarinnar fyrir framkvæmdaleyfi vegna þessarar breytingar.
Sveitarstjóra falið að afla þessara meðmæla.

4. mál Markaðsskrifstofa Austurlands bréf dags. 5. nóv. sl. varðandi framlengingu samninga við sveitarfélögin.
Lagt fram bréf frá Markaðsskrifstofu Austurlands þar sem óskað er eftir framlengingu á samningi milli sveitarfélagsins og Markaðsskrifstofunnar til tveggja ára.
Miðað er við að framlag verði 700 kr. á íbúa.
Hreppsnefnd samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að ganga frá samningi við Markaðsskrifstofuna.
Jafnframt er óskað eftir því að fá framkvæmdastjóra Markaðsskrifstofunnar á fund nefndarinnar fljótlega til þess að gera grein fyrir starfsemi Markaðsskrifstofunnar.


5. mál. Norðausturvegur 1. áfangi til Vopnafjarðar-Opnun tilboða-
Lögð fram tilboð sem bárust í Norðausturveg 1. áfanga niður til Vonafjarðar. Tilboð bárust frá eftirtöldum aðilum: Kr.
1) Skagfirskir verktakar ehf 252.636.800
2) Héraðsverk ehf frávikstilboð 259.549.483
3) Suðurverk h/f 287.035.100
4) Árni Helgason ehf. 295.780.300
5) Héraðsverk ehf. 312.356.175
6) Kostnaðaráætlun 327.027.000

Lægsta tilboð er 77,3 % af kostnaðaráætlun.
Unnið er að yfirreikningi tilboðana.
Hreppnefnd Vopnafjarðarhrepps fagnar því hversu mörg og góð tilboð bárust í verkið en áætlað er að þessu verki verði lokið á árinu 2008.

6. mál. Íþrótta -og æskulýðsnefnd- Kosning varamanna.
Lagt fram bréf frá Gísla Arnari Gíslasyni, þar sem hann segir sig úr æskulýðs- og íþróttanefnd. Jafnframt hefur Helgi Ágeirsson óskað eftir því að vera leystur frá skyldum sínum gangnvart nefndinni.
Kjósa þarf tvo fulltrúa til vara í nefndina vegna þessa.

Tillaga kom fram um að kjósa: Björn H. Sigurbjörnsson og Hrund Snorradóttir sem varamenn í nefndina.

Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.

7. mál Bréf Siglingastofnunar 2007-2010, dags. 8. nóv. sl. varðandi fjárveitingar til hafnarframkvæmda.
Lagt fram bréf Siglingastofnunar frá 8. nóv. sl. varðandi fjárveitingar til hafnarmála. Þar kemur fram að heimilað hefur verið að dýpka innsiglingu hafnarinnar úr 9,5 í 10 metra, þrátt fyrir að í heildina sé verið að lækka framlög til hafnarmannvirkja.
Ráðgert er að dýpkunarframkvæmdum ljúki á næsta ári og þá verði einnig gengið frá lögnum og þekju á nýju viðleguna. Á árinu 2010 er gert ráð fyrir fjárveitingu til lagfæringar á trébryggjunni við Ásgarð.
Hreppsnefnd fagnar þessari niðurstöðu mála og vísar erindinu að öðru leyti til hafnarnefndar.
8. mál. Lögreglusamþykktir fyrir Vopnafjarðarhrepp.
Lögð fram sýnishorn af lögreglusamþykktum og ný drög að reglugerð um lögreglusamþykktir. Málefnið var einnig til umfjöllunar á fundi hreppsnefndar 4. okt. sl., en þar var gerð grein fyrir því að ekki er til lögreglusamþykkt fyrir Vopnafjarðarhrepp og hvaða möguleikar eru í stöðunni, þ. e. að gera sérstaka samþykkt fyrir Vopnafjörð, vinna að samþykktum fyrir stærra svæði eða láta þá samþykkt gilda sem í smíðum er hjá dómsmálaráðuneytinu.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir fyrirliggjandi gögnum og lagði til að farið yrði í þá vinnu að vinna sérstaka samþykkt fyrir Vopnafjarðarhrepp. Í því sambandi lagði hann til að skipaður yrði sérstakur starfshópur til þeirrar vinnu, sem skipaður yrði sveitarstjóra og tveimur fulltrúum hreppsnefndar. Starfshópurinn miði vinnu sína við drög að nýrri reglugerð um lögreglusamþykktir sem liggja fyrir fundinum og sníði þær að Vopnfirskum aðstæðum.

Að lokinni tölu sveitarstjóra fór fram mikil umræða um málefnið, tillaga sveitarstjóra síðan samþykkt samhljóða. Tilnefndar í starfs hópinn voru Anna Pála og Guðrún Anna.

9. mál Ýmis bréf og mál:
a) Framkvæmdasjóður fatlaðra bréf dags. 11. nóv.
Lagt fram til kynningar.
b) Bréf varðandi stofnun örmerkingagrunns gæludýra.
Lagt fram til kynningar.

Fleira ekki tekið fyrir, fundi slitið kl. 17.00




Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir