Hreppsnefndarfundur haldinn fimmtudaginn 6. september 2007 í félagsheimilinu Miklagarði kl. 16.00
Mætt til fundar: Anna Pála Víglundsdóttir, Ólafur K. Ármannsson, Halldóra S. Árnadóttir, Vigfús Davíðsson, Björn Halldórsson, Guðrún Anna Guðnadóttir og Þórdís Þorbergsdóttir.
Einnig mættir: Þorsteinn Steinsson, sveitarstjóri, og Magnús Már Þorvaldsson, er ritaði fundargerð.
Dagskrá:
1. mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 20. ágúst sl.
Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 20. ágúst sl.
Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða.
2. mál. Hafnarbyggð, útboð gatnagerð og lagnir
Lögð fram útboðsgögn vegna fyrirhugaðra framkvæmda í Hafnarbyggð.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir málinu. Að umræðum loknum lagði fulltrúi minnihlutans Björn Halldórsson fram svofellda bókun: ,,Þar sem þegar er búið að auglýsa verkið tekur minnihlutnni ekki þátt í atkvæðagreiðslunni”.
Hreppsnefnd samþykkti síðan með 4 atkvæðum, að framkvæmdin yrði boðin út, 3 sátu hjá.
3. mál. Olíurannsóknir á svokölluðu Drekasvæði-bréf Regula frá 27. ágúst sl.
Lagt fram bréf Regula frá 27. ágúst sl., varðandi olíurannsóknir á svokölluðu Drekasvæði.
Jafnframt kynnt skýrsla sem unnin hefur verið um málið af Iðnaðarráðuneytinu og dags. í mars 2007. Skýrsluna má finna í heild sinni á heimasíðu Iðnaðarráðuneytisins.
Gerð var grein fyrir fyrirliggjandi gögnum.
Hreppsnefnd telur hugmyndir sem fram koma í erindi Regula áhugaverðar og veitir sveitarstjóra, oddvita, formanni hafnar- og atvinnumálanefndar umboð til þess að ræða við fyrirtækið um frekari útfærslu mála og ennfremur að kanna hug nágrannasveitarfélaga varðandi hugsanlega samvinnu um nýtingu þeirra tækifæra sem þarna kunna að opnast.
Málsmeðferð þessi var samþykkt samhljóða.
4. mál. Samkomulag milli Brunavarna á Austurlandi og Landsambands slökkviliðs- og sjúkraflurtningamanna.
Lagt fram samkomulag milli Brunavarna á Austurlandi og Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, sem undirritað var 30. ágúst sl. Ennfremur kynnt fréttatilkynning sem send var fjölmiðlum vegna undirritunarinnar.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir fyrirliggjandi samkomulagi.
Hreppsnefnd samþykkir samkomulagið samhljóða fyrir sitt leyti.
5. mál. Auglýsing Vopnafjarðarhrepps á útgáfu framkvæmdaleyfis, vegna Norðausturvegar.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir fyrirliggjandi auglýsingu og hverjir kærufrestir væru. Jafnframt greindi hann frá viðræðum við Vegagerðina þar sem fram kom að unnið væri að fullum krafti við gerð útboðsgagna og að Vegagerðin hyggðist bjóða verkið út í lok september.
6. mál. Bréf Fjarskiptasjóðs dags. 20. ágúst, vegna GSM farsímaþjónustu.
Lagt fram bréf Samgönguráðuneytisins frá 20. ágúst sl. varðandi markmið fjarskiptaáætlunar, þar sem meðal annars eru kynntar áfangaskiptingar í GSM væðingu þjóðvega landsins.
Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps fagnar því að unnið skuli markvisst að því að GSM væða þjóðvegi landisins en vill sérstaklega óska eftir því að GSM væðing leiðarinnar frá Vopnafirði inn á Hringveg verði flýtt og unnin í 1. áfanga í stað 2. áfanga. Þetta er mjög mikilvægt þar sem leiðin er rúmir 50 km á lengd og einn af erfiðustu fjallvegum landsins.
Samþykkt samhljóða.
7. mál. Ýmis bréf og mál:
a) Bréf Heilbrigðiseftirlits dags 27. ágúst, vegna mengunarmælinga á haugasvæði.
Lagt fram til kynningar.
b) Hestamannafélagið Glófaxi, bréf dags. 22. maí sl. varðandi reiðvegi.
Hreppsnefnd felur sveitarstjóra að koma sjónarmiðum þessum á framfæri við samgönguyfirvöld.
c) Vélhjólaklúbbur Austurlands, ályktun, bréf móttekið 5. júlí 2007.
Hreppsnefnd tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í erindinu.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16.45.