Hreppsnefndarfundur haldinn mánudaginn 20. ágúst 2007 í félagsheimilinu Miklagarði kl. 16.00
Á fundinn voru mætt Anna Pála Víglundsdóttir Aðalbjörn Björnsson, Björn Halldórsson, Einar Víglundsson, Halldóra S. Árnadóttir, Kristín Reynisdóttir og Ólafur Ármannsson.
Dagskrá:
1. mál Fundargerð hreppsnefndar frá 12. júlí sl.
Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 12. júlí sl.
Sveitarstjóri kvaddi sér hljóðs undir 5. tl. fundargerðarinnar “Leikskóli, viðbygging.” og kynnti verksamning, sem gerður hefur verið við verktakafyrirtækið Mælifell ehf. og var hann samþykktur.
Oddviti kvaddi sér hljóðs undir 6. tl. fundargerðarinnar “Ákvörðun Sjávarútvegsráðherra, ályktun” og var sveitarstjóra og oddvita falið að koma innihaldi ályktunarinnar á framfæri.
Fundargerðin síðan samþykkt.
2. mál Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar frá 15. ágúst sl.
Oddviti óskaði eftir því að 2. tl. fundargerðarinnar yrði tekinn sérstaklega til afrgreiðslu og var það samþykkt samhljóða.
Sveitarstjóri fór yfir og skýrði 2. tl. fundargerðarinnar “Norðausturvegur, Brunahvammsháls-Vopnafjörður, umsókn um framkvæmdaleyfi.” Gerði hann grein fyrir öllum þeim gögnum sem búið er að vinna varðandi framkvæmd þessa, en þar er helst að nefna endanlega matsskýrslu sem dagsett er í maí 2007 og og álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum sem dagsett er 13. júlí 2007. Ennfremur bréf Vopnafjarðarhrepps til Sikipulagsstofnunar og Umhverfisstofnunar, þar sem annars vegar er óskað meðmæla Skipulagsstofnunar fyrir því að sveitarstjórn veiti umbeðið framkvæmdarleyfi og hins vegar er óskað eftir umsögn Umhverfisstofnunar skv. náttúruverndarlögum. Svör þessara stofnana liggja fyrir fundinum.
Sveitarstjóri lagði síðan til að fyrirliggjandi tillaga byggingar- og skipulagsnefndar yrði samþykkt.
Nokkrar umæður urðu um fyrirliggjandi tillögu, þar sem fundarmenn lýstu sjónarmiðum sínum. Almennt voru fundarmenn ánægðir með það að komið væri að tengingu Vopnafjarðar við Hringveginn með nútímalegum hætti. Fram kom breytingartillaga við fyrirliggjandi tillögu bygginganefndar. Fólst tillagan í því stytta tillögu bygginganefndar og gera með henni sérstaka greinargerð, þar sem sjónarmiðum sveitarstjórnar með framkvæmdaleyfisveitingunni yrði gerð nánari skil.
Breytt tillaga ásamt greinargerð er svo hljóðandi:
“ Hreppsnefnd Vopnafjarðarhepps samþykkir erindi Vegagerðarinnar frá 23. júlí sl., þar sem óskað er eftir framkvæmdaleyfi til þess að byggja nýjan veg frá Brunahvammi til Vopnafjarðar (vegnúmer 85) um Vesturárdal og Millidalaleið yfir í Hofsárdal. Um er að ræða 41,7 km langan kafla frá slitlagsenda við Brunahvamm, niður Vesturárdal að núverandi Norðausturvegi norðan við þéttbýlið í Vopnafirði, ásamt 7 km. langri Millidalaleið, samtals 48,7 km.”
Greinargerð:
Framkvæmdaleyfið er veitt á grundvelli þess að framkvæmdaraðilinn, Vegagerðin, taki tillit til ábendinga Umhverfisstofnunar hvað varðar votlendi og efnistöku. Farið er fram á að Vegagerðin ljúki samningum um endurheimtu votlendis á framkvæmdatímanum. Gott samráð skal vera milli Vegagerðarinnar, fulltrúa Umhverfisstofnunar og Vopnafjarðarhrepps um þessi mál þannig að tryggt verði að bestar lausnir náist hvað þessi atriði varðar á framkvæmdatímanum.
Jafnframt er mælst til þess að gerðir verði áningarstaðir með góðum upplýsingaskiltum á leiðinni og hugað vel að reiðvegum meðfram vegi í byggð og eins verði gert ráð fyrir undirgöngum fyrir búfénað. Allt þetta verði unnið í góðu samráði við fulltrúa Vopnafjarðarhrepps.
Allar meiriháttar breytingar á vegstæði skulu bornar undir hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps.
Að svo búnu var gengið til atkvæða um tillöguna svo breytta.
Tillagan samþykkt samhljóða.
Sveitarstjóri kvaddi sér síðan hljóðs undir 3. tl. fundargerðarinnar “Selá, vegslóði” Gerði hann grein fyrir málinu og fyrirliggjandi tillögu byggingarnefndar.
Sveitarstjóri kvaddii sér ennfremur hljóðs undir 6. tl. fundargerðarinnar Sunnudalur ehf. og skýrði málið.
Fundargerð bygginganefndar var að öðru leyti samþykkt samhljóða.
3. mál Aðalfundur SSA, kosning fulltrúa. 3 aðalmenn og 3 til vara
Aðalfundur SSA árið 2007 verður haldinn á Vopnafirði dagana 21. - 22. september.
Tekin fyrir kosning fulltrúa á aðalfund SSA sem haldinn verður á Vopnafirði dagana 21.-22. september nk. á Vopnafirði
Fram kom svofelld tillaga um aðal- og varamenn:
” Aðalmenn: Anna Pála Víglundsdóttir, Guðrún Anna Guðnadóttir og Aðalbjörn Björnsson og varamenn:Borghildur Sverrisdóttir, Þórdís Þorbergsdóttir og Halldóra S. Árnadóttir.
Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.
Fleira ekki gert og fundi slitið