Hreppsnefndarfundur haldinn fimmtudaginn 12. júlí 2007
í félagsheimilinu Miklagarði kl. 16.00
Mætt til fundar: Aðalbjörn Björnsson, Anna Pála Víglundsdóttir, Ólafur K. Ármannsson, Borghildur Sverrisdóttir, Björn Halldórsson, Þórdís Þorbergsdóttir og Þorsteinn Halldórsson.
Einnig mættir: Þorsteinn Steinsson sveitarstjóri og Magnús Már Þorvaldsson, er ritaði fundargerð.
Dagskrá:
1. mál Fundargerð hreppsnefndar frá 21. júní sl.
Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 21. júní sl.
Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða.
2. mál Fundargerðir menningarmálanefndar frá 25. júní og 3. júlí sl. sl.
Lagðar fram fundargerðir menningarmálanefndar frá 25. júní og 3. júlí sl.
Lagðar fram til kynningar.
3. mál Fundargerð bygginganefndar frá 21. júní sl.
Lögð fram fundargerð bygginganefndar frá 21. júní sl.
Sveitarstjóri kvaddi sér hljóðs undir 6. tl. fundargerðarinnar og gerði grein fyrir því að fjallað hefði verið um málið á fundi hafnarnefndar. Björn Halldórsson óskaði frekari upplýsinga um 5. tl. í fundargerð og gerði sveitarstjóri grein fyrir málinu.
Fundargerðin var síðan samþykkt samhljóða.
4. mál Fundargerð fræðslunefndar frá 13. júní sl.
Lögð fram fundargerð fræðslunefndar frá 13. júní sl. Sveitarstjóri kvaddi sér hljóðs undir 3. tl. fundargerðarinnar, varðandi breytingu á gjaldtöku á vistunartíma barna. Gerði hann grein fyrir málinu. Ennfremur var nokkur umræða um 4. tl. fundargerðarinnar, varðandi framhaldsnám í gegnum fjarnám. Fundarmenn voru á einu máli um að mikilvægt væri að vinna ötullega að því að styrkja það m.a. í gegnum vaxtarsamning Austurlands.
Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða.
5. mál Leikskóli, viðbygging 1. áfangi
Lögð fram útboðslýsing og útboðsgögn varðandi 1. áfanga leikskólans, sem er jarðvinna, undirstöður og grunnlagnir. Gögn þessi eru unnin af verkfræðistofu Gunnars ST. Ólafssonar, sem einnig mun gera kostnaðaráætlun.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir fyrirliggjandi gögnum og því hver áætlaður verkhraði væri. Ennfremur kynnti hann teikningar af leikskólabyggingunni sem unnar eru af Magnúsi Skúlasyni, arkitekt, en hann er einmitt arkitekt af eldri hluta skólans. Að kynningu lokinni fór fram lífleg umræða umræða um verkefnið.
Óskaði síðan sveitarstjóri heimildar til þess að láta verktakafyrirtækið Mælifell ehf. bjóða á móti kostnaðaráætlun. Á þeim grunni yrði síðan samið við fyrirtækið.
Fyrirliggjandi tillaga var að umræðu lokinni samþykkt samhljóða.
6. mál Ákvörðun sjávarútvegsráðherra um aflaheimildir 2007/2008, ályktun.
Undir þessum lið var rætt um ákvörðun sjávarútvegsráðherra um samdrátt veiðiheimilda fyrir fiskveiðiárið 2007/2008, að tillögu Hafrannsóknarstofnunnar.
Miklar umræður urðu um þessi mál þar sem fundarmenn lýstu sjónarmiðum sínum og voru menn sammála um að samdráttur aflaheimilda gæti haft afgerandi áhrif á á margar sjávarbyggðir í landinu.
Mögulegt sé hugsanlega að milda áhrifin með boðuðum mótvægisaðgerðum ríkisstjórnarinnar, sé rétt að þeim staðið.
Síðan voru lögð fram svofelld ályktun:
“Ályktun hreppsnefndar Vopnafjarðarhrepps vegna ákvörðunar sjávarútvegsráðherra um samdrátt aflaheimilda á kvótárinu 2007/2008, að tillögu Hafrannsóknarstofnunar.
Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps hefur verulegar áhyggjur af þróun sjávarútvegs og atvinnu í sjávarþorpum á landsbyggðinni. Ljóst er að margar sjávarbyggðir eiga í vök að verjast sökum þess hvað mikl samþjöppun á sér stað í eignarhaldi á kvóta sjávarfangs.
Sjávarútvegur og ekki síst fiskveiðar hefur þó alltaf verið sveiflukenndur og ljóst má vera að ekki gengur vel í rekstri útgerðar og fiskvinnslu, nema auðlindin gefi. Íslendingar þekkja dæmin í þessum efnum og nægir þar að nefna hvernig síldarstofnarnir hrundu á sínum tíma og sveiflur hafa verið miklar í uppsjávarfiski almennt eins og alkunna er.
Í sjávarbyggð eins og Vopnafirði skiptir öllu hvort sjórinn gefur eða ekki. Á stað sem þessum hefur meginþorri fólksins atvinnu við sjávarútveg og vill hafa það. Í þessum efnum hafa Vopnfirðingar glímt við margvísleg vandamál á liðnum árum bæði í baráttunni um að halda forræði í aðal útgerðar -og fiskvinnslufyrirtæki staðarins þar sem margsinnis hefur þurft að fara út á ystu nöf til þess að landa málum og nú síðast um síðustu áramót þegar allri áhöfn togarans Brettings var sagt upp án fyrirvara. Erfitt hefur verið að halda uppi vinnslu í bolfiskvinnslu HB Granda á Vopnafirði og er ljóst að erfiðara verður um vik nú eftir að ákvörðun sjávarútvegsráðherra um niðurskurð aflaheimilda liggur fyrir.
Vopnfirðingar hafa fullan skilning á því hversu erfið ákvörðun það hlýtur að vera fyrir sjávarútvegsráðherra og ríkisstjórnina að fylgja eftir tillögum Hafrannsóknarstofnunar um svo mikinn niðurskurð aflaheimilda, í einu skrefi, eins og raunin er á. Ákvörðun þessi mun hafa veruleg áhrif í mörgum sjávarbyggðum í landinu, þar sem atvinnuástand hefur jafnvel átt í vök að verjast fram að þessu; hvað þá þegar ákvörðun af þessum toga er tekin. Þetta mun reyna verulega á fyrirtækin sem verða fyrir barðinu á þessum niðurskurði og ekki síður á fiskvinnslufólkið sem unnið hefur í áraraðir við fiskvinnslu í þorpunum sínum vítt og breitt um landið. Þetta fólk er auðlindin okkar og fyrir alla muni þarf að gæta þess að styðja við að þetta dugmikla fólk finni sem minnst fyrir áhrifum skerðingarinnar. Sé ekki brugðist við með sértækum aðgerðum í þessum efnum má búast við að veruleg röskun verði á þessum mannafla og víst að stór hluti hans tapast af svæðum þar sem ekki er hægt að hverfa til annarra hluta.
Ríkisstjórnin hefur boðað mótvægisaðgerðir á tímabili niðurskurðarins til þess að draga sem mest úr áhrifum aflasamdráttar á þróun atvinnumála og búsetuskilyrða almennt á landsbyggðinni. Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps fagnar góðum áformum ríkisstjórnarinnar í þessum efnum og hvetur ráðamenn þjóðarinnar til þess að vinna vel að framgangi þessara mála með það að leiðarljósi að búseturöskun verði sem minnst og öflugt atvinnulíf megi haldast sem víðast í landinu.
Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps vill sérstaklega bend á nokkur atriði í þessu sambandi:
1) Að haf- og fiskirannsóknir verði verulega auknar frá því sem er í dag. Jafnframt verði endurskoðað hvernig best verður staðið að sjórnun fiskveiða til framtíðar. Sérfræðingar á þessu sviði verði fengnir til þessarar vinnu.
2) Haft verði að leiðarljósi að styrkja atvinnu í byggðum sem eiga afkomu sína að miklu eða öllu leyti undir því hvernig árar í sjávarútvegi á hverjum tíma. Auka þarf fjölbreytni starfa.
3) Sérstaklega verði tekið á vanda þeirra byggða sem eru lengst frá stóriðjusvæðum og þeim svæðum þar sem þensla er hvað mest í kringum stærstu þéttbýlisstaði landsins. Nauðsynlegt er að sérstök vinna verði lögð á það af hálfu ríkisstjórnarinnar að skoða möguleika á sértækum aðgerðum í þessu sambandi (samanber Vestfjarðanefnd á Vestfjörðum)
4) Hraðað verði sem kostur er vegaframkvæmdum til og frá Vopnafirði þ. a. Vopnfirðingar og aðrir landsmenn fái innan tíðar möguleika á því að aka eftir nútímalegum vegi til Vopnafjarðar. Jafnframt verði nú þegar settar í gang rannsóknir á gerð jarðganga milli Vopnafjarðar og Héraðs. Allar skýrslur sem unnar hafa verið um þessi mál telja áhrif jarðganga milli þessara svæða hafa gífurleg, jákvæð, áhrif á þróun byggða sitthvoru megin Smjörvatnsheiðar.
5) Lagt verði mikið kapp á að hraða uppbyggingu fjarkiptabúnaðar, koma góðum háhraðatengingum og GSM sambandi í flestar byggðir landsins.
6) Stórauknu fjámagni verði varið til byggðamála og settur á stofn sérstakur atvinnueflingarsjóður, sem veitt getur styrki og/eða lán með misjafnlega þolinmóðu fé til verkefna sem talin eru standa undir væntingum að áliti sérfræðinga og þróunarstofa á viðkomandi svæðum. Jafnframt verði reynt að byggja upp sérfræðingateymi á landsbyggðinni, sem aðstoði við þróun og uppbyggingu atvinnutækifæra og gerð viðskiptahugmynda.
7) Reynt verði eftir fremsta megni að tryggja kjör fiskvinnslufólks með tímabundnum aðgerðum í gegnum atvinnuleysistryggingasjóð. Sú mikla þekking og kunnátta, sem býr í þessum mannafla má ekki tapast úr byggðunum.
8) Að öðru leyti er ríkistjórninni óskað velfarnaðar í þessari vegferð sinni. Víst er að nauðsynlegt er að sigla fleyinu af lipurð milli skers og báru svo sjóferðin endi vel. Vopnfirðingar eru tilbúnir til þess að vinna ötullega með ráðamönnum þjóðarinnar að framgangi þessara mála og öðrum þeim atriðum sem stuðlað geta að góðu mannlífi og atvinnuöryggi sem víðast á landinu.”
Fundarmenn voru efnislega samþykkir fyrirliggjandi drögum að ályktun og var sveitarstjóra ásamt oddvita falið að ganga frá endanlegri ályktun um þessi mál sem síðan yrði send fjölmiðlum, ráðuneytum og þingmönnum kjördæmisins.
7. mál Aðalskipulag Vopnafjarðarhrepps 2006-2026.
Á fundinn mætti Halldór Jóhannsson, skipulagshönnuður frá fyrirtækinu Teikn á lofti.
Lagðir voru fram uppdrættir að skipulagi dreifbýlis og þéttbýlis, ásamt greinargerð til nánari útskýringar á þeim stefnumiðum sem sett eru fram í fyrirliggjandi aðalskipulagstillögu fyrir árin 2006-2026.
Skipulagshönnuður fór síðan yfir fyrirliggjandi gögn með fundarmönnum og útskýrði á greinargóðan hátt helstu hugmyndir sem fram eru settar í skipulagstillögunni.
Svaraði Halldór og fyrirspurnum fundarmanna og gerði grein fyrir hvaða ferlar væru framundan varðandi endanlegan frágang og samþykkt skipulagsins.
Sveitarstjóri lagði síðan fram svofellda tillögu:
,,Hreppsnefnd samþykktir fyrirliggjandi aðalskipulagstillögu, sem unnin er af fyrirtækinu, Teikn á lofti, fyrir sitt leyti og felur sveitarstjóra að senda hana til Skipulagsstofnunar og óska heimildar til þess að auglýsa hana”
Hreppsnefnd samþykkti fyrirliggjandi tillögu samhljóða.
8. mál Lóðamál Hamrahlíð 15/Hamrahlíð 17
Sveitarstjóri gerði grein fyrir málinu og gerði m.a. grein fyrir hugmyndum Jónsvers að lóðafrágangi til þess að bæta aðgengi að húsinu nr. 15. Fram kom að erfitt og kostnaðarsamt er að framkvæma slíka lagfæringu sökum þess að hús nr. 17. á það stóra lóð að snúið er að koma hlutum fyrir. Einnig var gerð grein fyrir viðræðum við fulltrúa Jónsvers varðandi þessi mál, en þar kom meðal annars fram að með uppkaupum á húsinu nr. 17 fengist framtíðarlausn í málið
Taldi sveitarstjóri æskilegt að hreppsnefnd kæmi að lausn mála með Jónsveri. Við það skyldi þó miðað að reynt yrði að afla styrkja frá opinberum aðilum til aðgengismálanna.
Mikil umræða fór fram um málið, á það var bent að búið væri að afgreiða fjárhagsáætlun sveitarfélagsins er gerði ekki ráð fyrir fjármunum til uppkaupa á húseigninni og/eða öðrum framkvæmdum á lóðinni. Málinu var vísað til afgreiðslu við gerð fjárhagsáætlunar næsta árs.
9. mál. Ljósmyndasýning í Kaupvangi; “Vopnafjörður- Plássið og gamla höfnin”.
Gerð var grein fyrir tilurð ljósmyndasýningarinnar “Vopnafjörður-Plássið og gamla höfnin”, sem opna á í kvöld kl. 20. 30 í Kaupvangi. Vopnafjarðarhreppur hefur staðið að verkinu og hlotið til þess meðal annars 500 þús. kr. styrk frá Forsætisráðuneytinu á síðasta ári að safna gömlum ljósmyndum frá Vopnafirði. Halldór Karl Halldórsson hefur safnað myndunum, Gunnar Sigmarsson hefur ritað upplýsingar um myndirnar og Magnús Már Þorvaldsson hefur séð um að hanna og setja upp sýninguna. Jafnframt verða á sýningunni nokkrir munir frá minjasafninu Bustarfelli, sem eru spunavél, rulla og vefstóll. Ennfremur verða sýndar samtíðamyndir á tjaldi. Öllum sem komið hafa að málum er hér með þakkað fyrir þá miklu vinnu sem á bak við uppsetningu sýningarinnar liggur.
Fundarmenn lýstu ánægju með framtakið.
10. mál Ýmis bréf og erindi:
a) Bréf dags. í júní til landeigenda í Vopnafirði, varðandi skotveiðihlunnindi.
Viðkomandi erindi vísað til umfjöllunar í landbúnaðarnefnd.
b) Bréf frá vélhjólaklúbbi Austurlands, með tilmælum til sveitarfélaga og Vegagerðar.
Hreppsnefnd fagnar erindinu og mun leitast við að verða við því sem kostur er og jafnframt koma óskum þess efnis til vegagerðarinnar.
c) Bréf Vegagerðarinnar frá 26. júní sl. varðandi Styrkvegasjóð.
Lagt fram bréf vegagerðarinnar frá 26. júní sl., þar sem greint er frá því að ekki hefur verið unnt að verða við erindi Vopnafjarðarhrepps varðandi styrk til endurbyggingar göngubrúar yfir Selá sem eyðilagðist í síðastliðinn vetur.
11. mál Oddvitaskipti: Kosning oddvita og varaoddvita hreppsnefndar
Ólafur Ármannsson lagði fram tillaga um að næsti oddviti verði Anna Pála Víglundsdóttir. Samþykkt samhljóða. Borghildur bar upp þá tillögu að varaoddviti verði Aðalbjörn Björnsson. Samþykkt samhljóða.
Fráfarandi oddviti þakkaði síðan samstarfið á tímabilinu og óskaði nefndarmönnum ánægjulegs sumarfrís. Björn Halldórsson þakkaði Aðalbirni fyrir samstarfið. Ólafur þakkaði ennfremur samstarfið, sem og Borghildur – að lokum þakkaði Anna Pála traustið og vænti þess að hún ætti góðan liðsmann að þar sem Aðalbjörn er.
Fleira ekki tekið fyrir, fundi slitið kl. 18.30.