Hreppsnefnd 24.05.07

24.07 2007 - Þriðjudagur

Hreppsnefndarfundur haldinn 24. maí 2007
í félagsheimilinu Miklagarði kl. 16.00.

Mætt til fundar: Aðalbjörn Björnsson, Anna Pála Víglundsdóttir, Ólafur Ármannsson, Borghildur Sverrisdóttir, Björn Halldórsson, Þórdís Þorbergsdóttir og Einar Víglundsson.

Einnig mættir: Þorsteinn Steinsson sveitarstjóri og Magnús Már Þorvaldsson, er ritaði fundargerð.

Dagskrá:

1. mál Fundargerð hreppsnefndar frá 7. maí sl.
Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 7. maí sl.
Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða.

2. mál Fundargerð menningarmálanefndar frá 8. maí sl.
Lögð fram fundargerð menningarmálanefndar frá 8. maí sl. Undir þessum lið urðu nokkrar umræður um Kaupvang og hvaða starfsemi ætti að vera í húsinu í sumar. Greint var frá því að þetta mál er í vinnslu með ýmsu sniði.
Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða.

3. mál Fundargerð hafnarnefndar frá 21. maí sl.
Lögð fram fundargerð hafnarnefndar frá 21. maí sl. Eftir smávægilegar fyrirspurnir, sem var svarað var fundargerðin samþykkt samhljóða.

4. mál Ársreikningur Vopnafjarðarhrepps A – og B-hlutasjóða fyrir árið 2006.
-síðari umræða.-
Teknir fyrir að nýju ársreikningar Vopnafjarðarhrepps A- og B- hluta, ásamt endurskoðunarskýrslu endurskoðenda, KPMG. Gögn þessi voru öll lögð fram í hreppsnefnd við fyrri umræðu ársreikninga þann 7. maí sl., en þá mættu einnig löggiltir endurskoðendur og gerðu grein fyrir fyrirliggjandi ársreikningum og skýrslu sinni.

Lögð fram greinargerð sveitarstjóra með ársreikningum A- og B- hluta
sveitarfélagsins fyrir árið 2006, vegna afgreiðslu reikninganna við síðari umræðu.
Greinargerðin er svofelld:

“Greinargerð með ársreikningum Vopnafjarðarhrepps A- og B- hluta fyrir árið 2006 við afgreiðslu þeirra við síðari umræðu í hreppsnefnd 24. maí 2007.

Ársreikningar Vopnafjarðarhrepps A- og B-hluta sjóða fyrir árið 2006 eru lagðir fram til síðari umræðu á fundi hreppsnefndar hér í dag 24. maí 2007. Alls samanstanda reikningarnir af 13 sjóðum sem skiptast í 3 A- hluta sjóði og 10 B-hluta sjóði.

Heildartekjur A- hluta sveitarsjóðs voru 330,5 m. kr., þar af voru útsvar og fasteignaskattur 171.7 m.kr., framlög jöfnunarsjóðs 105,7 m. kr. og aðrar tekjur 53,1 m. kr.
Heildargjöld voru á hinn vænginn 331,3 m. kr., þegar tekið hefur verið tillit til afskrifta og fjármagnsliða.

Í heild var 0,8 m. kr. halli á A- hluta sveitarsjóðs eftir afskriftir og fjámagnsliði.



Heildartekjur samstæðunnar allrar voru 427,4 m. kr., en heildarútgjöld þegar tekið hefur verið tillit til afskrifta og fjármagnskostnaðar voru 473,3 m. kr. Samstæðan öll var samkvæmt því rekin með 45,9 m. kr. tapi og hefur þá verið tekið tillilit til reiknaðra afskrifta að fjárhæð 31,4 m.kr., sem er í raun reiknuð fjárhæð sem tekin er frá til viðhalds eigna sveitarfélagsins. Ennfremur hefur verið reiknað með fjármagnsliðum sem námu, nettó 63,9 m.kr.

Í heild skiptast útgjöld samstæðunar þannig:
M.kr. Í %
Laun og launatengd gjöld 206,4 43,6
Breyting lífeyriskuldbindinga 5,0 1,1
Annar rekstrarkostnaður 166,5 35,2
Afskriftir 31,4 6,6
Fjármagnstekjur/fjármagnsgjöld 64,0 13,5
______ _____
Samtals 473,3 100,0

Meginhluti tapsins er vegna B-hluta sjóðanna. Langstærsti hluti þessa halla er vegna reiknaðra verðbóta og er ljóst að hraði verðbólgunnar á síðasta ári hefur veruleg áhrif á uppgjör ársins 2006.

Á síðasta ári var gripið til ýmissa aðgerða til þess að lækka rekstrarkostnað. Veigamesta aðgerðin í þeim efnum var sala á 7 félagslegum íbúðum í eigu sveitarfélagsins. Í þeirri aðgerð lækkuðu að sjálfsögðu bókfærðar eignir sem nam bókfærðu virði eignanna. Jafnframt voru greiddar upp áhvílandi skuldir á eignunum liðlega 50 m.kr. Með þessu móti mun og sveitarfélagið losna við rekstrarkostnað þessara eigna til framtíðar. Á árinu tókst einnig að fá nýjan rekstraraðila að rekstri hótelsins, sem Arnarvatn ehf. á og hefur lagfært verulega frá þeim tíma sem hótelið var keypt af Byggðastofnun árið 2003. Áfram verður reynt að feta sig áfram á þessari braut á árinu 2007. Í þeim efnum er rétt að geta þess að til skoðunar hefur verið hvort æskilegt er að greiða upp allar skuldir Skiphólma ehf., sem stofnað var til vegna kaupa á hlutafé í Tanga h/f , nú HB Granda h/f. Þessi aðgerð ein og sér mundi lækka fjármagnsgjöld um 12 m.kr. miðað við fyrirliggjandi ársreikning ársins 2006.
Hugmyndir hafa einnig verið uppi um það að ganga lengra í sölu eigna og greiða upp enn stærri hluta heildarskulda, sem lækka mundi fjármagnsgjöld til muna. Til mikils er að vinna á þessu sviði, þar sem fjármagnsgjöld nettó í samstæðunni allri eru 63 m.kr. í ársreikningi 2006. Helstu eignir sem hugsanlegt er að selja í þessu sambandi eru hótel, íbúðir, jarðir og hlutabréf.

Við gerð ársreikninga fyrir árið 2005 var tekið á ýmsum þáttum með öðru sniði en áður hafði verið gert. Meðal annars eru færðar upp lífeyrisskuldbindingar, áfallið ótekið orlof og óbeinar afskriftir. Þessi háttur er einnig viðhafður í uppgjöri ársins 2006. Gjaldfærð hækkun á óbeinum afskriftareikningi á árinu 2006 var 9,7 m.kr. og einnig var gjaldfærð hækkun á lífeyrisskuldbindingum að fárhæð 5 m.kr. Lífeyrisskuldbindingar alls í efnahagsreikningi eru 36,4 m.k í árslok 2006.
Varðandi nánari útlistun á þessum hlutum er að öðru leyti vísað til endurskoðunarskýrslu KPMG með ársreikningi 2006.


Á árinu var ráðist í margvíslegar framkvæmdir. Stærstu framkvæmdirnar voru hafnarframkvæmdir þar sem unnið var að niðurrekstri stálþils og dýpkun. Með aðgerð þessri var Miðbryggjunni svokölluðu fargað og fullgild nútíma hafnarviðlega kemur í staðinn. Áfram var haldið við lagfæringar á hótelinu, sem tekið hefur verulegum stakkaskiptum frá því að Vopnafjarðarhreppur eignaðist það. Unnið var að undirbúningi, jarðvegsskiptum og malbikun á miðbæjarsvæðinu og keyptar hellur á svæðið og er víst að mikil breyting verður á miðbænum þegar framkvæmdum þessum verður lokið.
Til viðbótar þessu var unnið að margvíslegum minni verkefnum, steyptar gangstéttir, lagfærðir leikvellir, framkvæmdir við útrásir, vatnsveitu, unnið að hönnun að viðbyggingu leikskóla o. fl.
Framkvæmdirnar voru fjármagnaðar annars vegar með sölu eigna og veltufé frá rekstri og hins vegar með lántökum.

Eins og fram hefur komið er meginhluti langtímalána sveitarfélagsins tengd vísitölu neysluverðs og eru reiknaðar verðbætur ársins 52,2 milljónir. Fjárhæð þessi kemur til hækkunar á höfuðstól lána sveitarfélagsins og á móti er fjárhæðin færð til gjalda í rekstri þess árið 2006, en kemur til greiðslu á eftirstöðvatíma lánanna. Ljóst má því vera að verðbólguþróun ræður miklu um afkomutölur sveitarfélaga þar sem þessi tala ein og sér er hærri en tap samstæðunnar í heild.
Miklilvægt er því fyrir sveitarfélög eins og flest önnur fyrirtæki að ríkisstjórninni takist að halda verðlagi stöðugu.

Þrátt fyrir mikil umsvif í rekstri og framkvæmdum í A- og B-hluta voru greidd niður lán að fjárhæð 200,9 m. kr. á árinu en á móti voru tekin ný lán að fjárhæð 134,9 m.kr. Uppgreiðslur umfram nýjar lántökur námu því 66 m.kr., en þegar tekið hefur verið tillit til reiknaðra verðbóta og fleiri þátta þá lækka langtímalán sveitarfélagsins úr 745,3 m.kr árið 2005 í 724,7 m.kr. árið 2006 eða um 20,6 m.kr. milli áranna 2005 og 2006 í samstæðunni allri.

Í sjóðstreymi samstæðunnar kemur síðan fram að þegar leiðrétt hefur verið fyrir afskriftum verðbótum, hagnaði og skuldbindingum þá er hreint veltufé frá rekstri 13,2 m.kr. og þegar tekið hefur verið til viðbótar tillit til breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum þá kemur fram að handbært fé frá rekstri er 30,9 m.kr. Þessi fjárhæð gengur síðan ásamt seldum eignum og nýjum lántökum til greiðslu á fjárfestingum og afborgunum lána eins og fram hefur komið.
Að öllu þessu töldu kemur fram að handbært fé í árslok er 26,4 m.kr. en var í upphafi ársins 25,6 m. kr.

Í árslok 2006 átti Vopnafjarðarhreppur hlutabréf í HB Granda að nafnvirði 47,1 m.kr. og voru þau bókfærð á 244,7 m.kr. Skráð markaðsgengi bréfanna í Kauphöll Íslands h/f í árslok var 12,5 og markaðsverð bréfanna því 588,2 m.kr. Mismunur á bókfærðu verði og markaðsvirði er því 343,5 m.kr.
Eins og margoft hefur verið bent á er það á hverjum tíma umhugsunarefni forsvarsmanna sveitarfélagsins hvað heppilegast er að gera við eign af þessu tagi, þrátt fyrir að ávöxtun þessara hlutabréfa hafi verið góð síðustu ár.
Gert hefur verið ráð fyrir því í fjárhagsáætlun 2007-2010 að tekin verði ákveðin skref í því að afsetja bréfin þ.a. andvirði þeirra nýtist sem best til góðra hluta í sveitarfélaginu. Hvort heldur er til uppgreiðslu lána eða annarra hluta sem nauðsynlegir eru taldir. Þessi mál verða til nánari umfjöllunar og ákvarðanatöku á árinu 2007.

Undirritaður leggur til að ársreikningur Vopnafjarðarhrepps A- og B-hluta sjóða verði samþykktur við síðari umræðu hér í dag.”

Talsvert miklar umræður urðu um ársreikninginn og hugmyndir sem fram komu í greinargerð sveitarstjóra. Að loknum umræðum og spurningum sem sveitarstjóri svaraði voru ársreikningar Vopnafjarðarhrepps samþykktir samhljóða með 7 atkvæðum.

5. mál: Nefndarskipan, Þjónustuhópur aldraðra, 5 manna. 3 skipaðir af sveitarstjórn og 2 af félagi eldri borgara.
Um skipan í þjónustuhóp þennan hefur áður verið fjallað í hreppsnefnd og ennfremur hefur verið rætt við stjórn félags eldri borgara um tilnefningu í hópinn af þeirra hálfu.
Tilnefning hefur borist frá félagi eldri borgara um að fulltrúar þeirra verði Ari Hallgrímsson og Hallgrímur Helgason.
Tillaga er um að fulltrúar tilnefndir af sveitarstjórn verði:

Heiðbjört Antonsdóttir, Inga María Ingadóttir og Ásta Ólafsdóttir

Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.


6. mál: Göngubrú yfir Selá við Fagurhól, endurbygging.

Lagt fram bréf sveitarstjóra til Vegagerðarinnar, þar sem sótt er um styrk til endurbyggingar á göngubrú yfir Selá sem eyðilagðist í vetur. Einnig gerð grein fyrir styrkbeiðnum til veiðifélaganna o.fl.
Sveitarstjóri gerði síðan grein fyrir málinu og greindi frá því að Fjallskilasjóður þyrfti að standa skil af því sem ekki næðist með styrkjum.
Ekki liggur endanlega fyrir hvenær verður hægt að hefjast handa og bjóða verkið út.
Brúin er mikilvæg fyrir bændur og búalið í tengslum við göngur. Ennfremur nýtist hún veiðimönnum vel og ákjósanlegt er að hún sé til staðar fyrir gangandi vegfarendur.
Hreppsnefnd felur sveitarstjóra að vinna áfram að málinu með það fyrir augum að brúin verði byggð upp svo fljótt sem kostur er. Málið verður endanlega afgreitt þegar fyrir liggur hvaða styrkir fást til málsins.

7. mál Ýmis bréf og erindi:
a) Bréf Siglingastofnunar dags. 7. maí sl., vegna styrkúthlutunar úr Hafnarbótasjóði.
Lagt fram til kynningar.
b) Bréf ríkislögreglustjóra dags. 13. apríl sl., varðandi nýtt öryggiskerfi lögreglu og almannavarna.
Lagt fram til kynningar.
c) Bréf dags. 11. maí sl. frá upprekstrar og landbótafélagi Vopnfirðinga.
Lagt fram til kynningar.


Fleira ekki tekið fyrir, fundi slitið kl. 17:




Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir