Hreppsnefnd 23.04.07

23.04 2007 - Mánudagur

Hreppsnefndarfundur verður haldinn mánudaginn 23. apríl 2007
í félagsheimilinu Miklagarði kl. 16.00

Mætt til fundar: Aðalbjörn Björnsson, Anna Pála Víglundsdóttir, Halldóra S. Árnadóttir, Eyjólfur Sigurðsson, Björn Halldórsson, Guðrún Anna Guðnadóttir og Þórdís Þorbergsdóttir.

Einnig mættir: Þorsteinn Steinsson, sveitarstjóri, og Magnús Már Þorvaldsson, er ritaði fundargerð.

Oddviti óskaði í upphafi fundar eftir breytingu á dagskrá þar eð kjörskrá hefur borist, svo ganga mætti frá henni á þessum fundi undir lið no. 9.

Dagskrá:

1. mál Fundargerð hreppsnefndar frá 22. mars sl.
Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 22. mars sl.
Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða.

2. mál Fundargerð menningarmálanefndar frá 28. mars sl.
Lögð fram fundargerð menningarmálanefndar frá 28. mars sl.
Sveitarstjóri kvaddi sér hljóðs undir 4. tl. fundargerðarinnar, “Ráðstefna á Vopnafirði”. Gerði hann grein fyrir ráðstefnunni og dreifði dagskrá hennar á fundinum og kvatti fundarmenn til þess að mæta til hennar. Spurt var um 5. tl. fundargerðarinnar “ Minjasafnið Bustarfelli”. Sveitarstjóri gerði grein fyrir málinu og lagði til að menningarfulltrúi ásamt formanni menningarmálanefndar fundi með fulltrúa safnsins um útfærslu á málinu.
Fundargerðin samhljóða samþykkt að öðru leyti en því að erindisbréf nefndarinnar fer fyrir hreppsnefnd á næsta fundi hennar til samþykktar.

3. mál Fundargerð hafnarnefndar frá 30. mars og 16. apríl sl.
Lagðar fram fundargerðir hafnarnefndar frá 30. mars sl. og 16. apríl sl.
Sveitarstjóri dreifði yfirliti yfir tilboð sem bárust í fyrirhugaða dýpkun hafnarinnar og gerði jafnframt grein fyrir því að unnið væri að því að ná samningum við verktaka á þeim nótum sem greinir í 2. tl. fundargerðar hafnarnefndar frá 16. apríl sl. Óskaði hann eftir að fá heimild til að vinna áfram að málinu.
Hreppsnefnd samþykkir samhljóða þessa málsmeðferð fyrir sitt leyti sem og fundagerðirnar.

4. mál Fundargerð atvinnu – og ferðamálanefndar frá 3. apríl sl.
Lögð fram fundargerð atvinnumálanefndar frá 3. apríl sl.
Sveitarstjóri kvaddi sér hljóðs undir 2. tl. fundargerðar nefndarinnar “HB Grandi”, þar sem fjallað var um hugmyndir um nýsköpu á vegum HB Granda á Vopnafirði.
Hreppsnefnd tekur undir tillögu nefndarinnar, sem fram kemur undir þessum lið um fund með forsvarsmönnum fyrirtækisins.
Miklar umræður urðu um fyrirliggjandi fundargerð og atvinnumál almennt, einkum samskiptin við forráðamenn HB Granda. Var sveitarstjóra falið að vinna frekar að málinu og semja drög að bréfi til fyrirtækisins.

Fundargerð atvinnumálanefndar síðan samþykkt að öðru leyti.



5. mál Fundargerð bygginganefndar frá 17. apríl sl.
Fundargerð bygginganefndar frá 17. apríl lögð fram.
Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða.

6. mál Byggðakvóti, umsókn
Lögð fram auglýsing sjávarútvegsráðuneytisins um úthlutun á byggðakvóta, ásamt umsókn sveitarfélagsins um slíkan kvóta frá 30. mars sl.
Ekki liggur enn fyrir af hendi sjávarútvegsráðuneytisins hvernig byggðakvótanum verður úthlutað. Í tengslum við byggðakvótaumræðu voru atvinnumálin reifuð og umræðan allnokkur.

7. mál Bréf Lánasjóðs Sveitarfélaga frá 28. mars sl., varðandi eignarhlutdeild.
Lagt fram bréf Lánasjóðs sveitarfélaga frá 28. mars sl. þar sem greint er frá því að hlutafélagið Lánasjóður sveitarfélaga ohf. hafi verið stofnað 23. mars sl. af öllum sveitarfélögum í landinu á grundvelli laga nr. 150/2006. Nafnverð hlutafjár var ákveðið 5 milljarðar, en bókfært verð í árslok 2006 nam tæpum 8,9 milljörðum. Eigiðfé félagsins er því hærra en nafnverð. Á ársfundi lánasjóðsins þennan sama dag var samþykkt að færa eigið fé hans niður um 3 milljarða og greiða sveitarfélögunum á fjórum árum þann 1. júlí ár hvert. Eignarhlutdeild Vopnafjarðarhrepps er 0,68 % í sjóðnum.
Hreppsnefnd fagnar þeim samningi sem undirritaður hefur verið um stofnun Lánasjós Sveitarfélaga ohf.

8. mál Fundur haldinn með stjórn félags eldri borgara 2. apríl sl.
Lagðir fram minnispunktar frá fundi oddvita og sveitarstjóra frá 2. apríl sl.
Oddviti gerði grein fyrir fundinum m. a. nefnd sem hugmyndin er að skipa. Samþykkt að skipa 5 manna nefnd með 3 fulltrúum frá sveitarfélaginu og tveim fulltrúum frá eldri borgurum.

9. mál Kjörskrá Vopnafjarðarhrepps fyrir Alþingiskosningar, sem fram fara laugardaginn 12. maí n. k.

Kjörskrá Vopnafjarðarhrepps við Alþingiskosningar 12. maí 2007.
Lagður fram stofn að kjörskrá fyrir Vopnafjarðarhrepp, sem unnin hefur verið af Hagstofu Íslands. Alls eru 521 á kjörskrá Vopnafjarðarhrepps fyrir Alþingiskosningar 12. maí 2007, þar af eru 277 karlar og 244 konur.

Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps samþykkir samhljóða framlagða kjörskrá fyrir Alþingiskosningar 12. maí n. k. eins og hún liggur fyrir og felur sveitarstjóra að yfirfara og undirrita hana.

10. mál Ýmis bréf og fundargerðir :

a) Varasjóður húsnæðismála bréf dags. 29. mars sl., rekstrarframlag.
Lagt fram til kynningar

b) Húsfriðunarnefnd ríkisins bréf dags. 27. mars sl. varðandi styrkveitingu 2007.
Lagt fram til kynningar.


Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 17:00




Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir