Hreppsnefnd 01.03.07

01.03 2007 - Fimmtudagur

Hreppsnefndarfundur haldinn fimmtudaginn 01. mars 2007
í félagsheimilinu Miklagarði kl. 16:00

Mætt til fundar: Aðalbjörn Björnsson, Anna Pála Víglundsdóttir, Ólafur Ármannsson, Borghildur Sverrisdóttir, Björn Halldórsson, Guðrún Anna Guðnadóttir og Þórdís Þorbergsdóttir.

Einnig mættir: Þorsteinn Steinsson, sveitarstjóri, og Magnús Már Þorvaldsson, er ritaði fundargerð.

Dagskrá:

1. mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 15. febrúar sl.
Fundargerð hreppnefndar frá 15. febrúar sl., lögð fram.
Fundargerðin síðan samþykkt.

2. mál. Fundargerð menningar – og bókasafnsnefndar frá 05. feb. sl.
Fundargerð menningar- og bókasafnsnefndar frá 5. febrúar sl., lögð fram og kynnt.

3. mál. Fundargerð bygginganefndar frá 14. feb. sl.
Fundargerð bygginganefndar frá 14. febrúar sl., lögð fram og samþykkt.

4. mál. Fundargerð fræðslunefndar frá 19. feb. sl.
Fundargerð fræðslunefndar frá 19. febrúar sl., lögð fram til kynningar

5. mál. Fundargerð hafnarnefndar frá 27. feb. 2007.
Fundargerð hafnarnefndar frá 27. febrúar lögð fram og samþykkt.

6. mál. Fundargerð atvinnumálanefndar frá 23. feb. sl.
Lögð fram til kynningar. Oddviti gerði nánar grein fyrir málefnum atvinnumálanefndar, t. a. m. samskipti við hreppsnefnd.

7. mál. Norðausturvegur til Vopnafjarðar, Brunahvammsháls- Vopnafjörður, frummatsskýrsla.
– Umsögn- Skýrsluna má finna á slóðinni: http://www.vegagerdin.is/. Áður fjallað um málið á fundi hreppsnefndar 15. feb. sl.
Málið kynnt og rætt og eftir smávægilega orðalagsbreytingu á bókuninni frá fundinum þann 15. febrúar sl., var síðan lögð fram svofelld tillaga:

“Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps telur að fyrirliggjandi frummatsskýrsla, sem unnin er af Vegagerðinni og er dags. í janúar 2007, ásamt fylgigögnum, sé nægjanleg og hefur engu við hana að bæta”

Allmikil umræða fór fram, þar sem hreppsnefndarmenn lýstu sjónarmiðum sínum. Fram komu efasemdir um framsetningu fagaðila á veðurfarshluta skýrslunnar frá hendi fulltrúa minnihluta hreppsnefndar.

Niðurstaða málsins varð síðan sú að fyrirliggjandi tillaga var samþykkt samhljóða.


8. mál. Drög að Þriggja ára áætlun Vopnafjarðarhrepps 2007-2010.
-Síðari umræða-.
Sveitarstjóri lagði fram og kynnti greinargerð sína með þriggja ára áætlun sveitarfélagsins. Jafnframt lögð fram þriggja ára áætlun með smávægilegum breytingum frá síðasta fundi. Sveitarstjóri kynnti gögnin og svaraði framkomnum fyrirspurnum fundarmanna. Lagði hann síðan til að áætlunin yrði samþykkt við síðari umræðu hér í dag.

Mikil umræða átti sér stað um fyrirliggjandi áætlun.

Þriggja ára áætlun Vopnafjarðarhrepps A- og B- hluta sjóða síðan samþykkt með 4 atkvæðum, 3 sátu hjá.

Minnihlutinn lagði fram svofellda bókun til útskýringar á hjásetu sinni, er oddviti las upp:
“Undirrituð getum ekki samþykkt þá þriggja ára áætlun sem liggur fyrir. Ástæða þess er að þar er verið að taka stefnumarkandi ákvörðun um ráðstöfun á eignum sveitarfélagsins – stefnumarkandi ákvörðun sem ekki hefur verið rædd í sveitarstjórn. Að okkar dómi eru margir aðrir möguleikar á nýtingu þeirra eigna sem um ræðir. Við teljum að hér sé um svo mikla fjármuni að ræða að ekki sé verjandi að standa að málum með þeim hætti sem hér á að gera”.

sign: Björn Halldórsson – Guðrún Anna Guðnadóttir – Þórdís Þorbergsdóttir.


9. mál. Lýðheilsustöð-Vopnafjarðarhreppur, verkefnið “Allt hefur áhrif einkum við sjálf.”
Lögð fram áætlun verkefnisins “Allt hefur áhrif einkum við sjálf”. Oddviti gerði grein fyrir málinu og lagði til að áætlunin yrði tekin til endanlegrar afgreiðslu á næsta fundi hreppsnefndar. Mikil umræða var um aðgerðaráætlunina og lýstu allir nefndarmenn yfir mikilli ánægju með verkefnið.

10. mál. Nefnd um málefni aldraðra.
Tillaga að skipun 5 manna nefndar og þriggja til vara. Í nefndina verður síðan skipað á næsta eða þarnæsta fundi hreppsnefndar.

Rætt var um fyrirkomulag og verksvið nefndarinnar og að ræða við félag eldri borgara um málið.

11. mál. Kaupvangur, hugmyndir að setri Jóns Múla og Jónasar.
Tillaga að samningi og hún lögð fram. Tillagan miðar að því að koma verkefninu af stað.
Oddviti kynnti málið og lagði til að samþykkt yrði að fela sveitarstjóra að ganga frá samningi í samræmi við fyrirliggjandi gögn, sem miða við kostnað er svarar til þriggja mánaða verkefnavinnu.
Fyrirliggjandi tillaga samþykkt.

12. mál Ýmis bréf og fundargerðir:
a) Fundargerð samgöngunefndar SSA frá 22. febrúar sl.
Lögð fram til kynningar

Fleira ekki tekið fyrir, fundi slitið kl. 18:30




Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir