Hreppsnefnd 15.02.07

15.02 2007 - Fimmtudagur

Hreppsnefndarfundur haldinn fimmtudaginn 15. febrúar 2007 í félagsheimilinu Miklagarði kl. 16.00.
Mætt á fundinn voru Aðalbjörn Björnsson, Björn Halldórsson, Anna Pála Víglundsdóttir, Guðrún Anna Guðnadóttir,Borghildur Sverrisdóttir, Þórdís Þorbergsdóttir og Ólafur Ármannsson. Jafnframt var mættur sveitarstjóri, sem ritaðai fundargerð.


Dagskrá:

1. mál Fundargerð hreppsnefndar frá 1. febrúar sl.
Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 1. feb. sl.
Eftir smávægilegar leiðréttingar var fundargerðin síðan samþykkt.

2. mál Norðausturvegur til Vopnafjarðar, Brunahvammsháls- Vopnafjörður, frummatsskýrsla. – Umsögn- Skýrsluna má finna á slóðinni: http://www.vegagerdin.is/

Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar frá 1. feb. sl., þar sem óskað er eftir umsögn um frummatsskýslu um framkvæmdina “ Norðausturvegur til Vopnafjarðar, Brunahvammsháls-Vopnafjörður”. Í fummatsskýrslunni leggur Vegagerðin til að Norðausturvegur verði lagður samkvæmt Vesturárdalsleið um Búastaði (Leið1a+1b) auk millidalaleiðar. Umsögnin skal veitt á grundvelli 10. gr. laga nr. 106/2000 m.s.b. og skulu umsagnaraðilar gefa álit sitt í samræmi við 22. gr. reglugerðar nr. 1123/2005 um mat á umhverfisáhrifum.
Kynntar voru allar þær skýrslur og gögn sem framkvæmdaaðili Vegagerðin hefur unnið og sent til umfjöllunar hjá Skipulagsstofnun.
Óskað er eftir að umsögn sveitarfélagsins liggi fyrir eigi síðar en 28. feb. nk. Skriflegar athugasemdir er hægt að senda til Skipulagsstofnunar fram til 23. mars 2007. Að þeim tíma loknum mun Skipulagsstofnun senda Vegagerðinni umsagnir og athugasemdir sem borist hafa. Í kjölfarið mun Vegagerðin vinna endanlega matsskýrslu á grundvelli frummatsskýrslunnar, þar sem gerð verður grein fyrir athugasemdum og umsögnum. Eftir að matsskýrsla hefur verið unnin og send til Skipulagsstofnunar hefur stofnunin 4 vikur til að gefa álit sitt á því hvort skýrslan uppfylli lög nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum og hvort umhverfisþáttum sé lýst á fullnægjandi hátt.
Þegar þetta álit liggur fyrir mun Vegagerðin sækja um framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdinni til Vopnafjarðarhrepps.
Oddviti gerði grein fyrir málinu og kynnti svofellda tillögu að umsögn sveitarfélagsins:

“Hreppsnefnd Vopnafjarðarhepps telur að fyrirliggjandi frummatsskýrsla sem unnin er af Vegagerðinni og dags. í janúar 2007, ásamt fylgigögnum sé fullnægjandi og hefur engu við hana að bæta”

Í framhaldi urðu töluverðar umræður þar sem fundarmenn lýstu sjónarmiðum sínum. Björn Halldórsson óskaði eftir frestun á afgreiðslu málsins.
Samþykkt var að fresta afgreiðslu umsagnarinnar til næsta fundar hreppsnefndar.


3. mál Nýtt Afl, tillaga um úttekt á skuldum sveitarfélagsins.

Lögð fram tillaga Nýs Afls dags. 1. feb. sl., varðandi úttekt á lánum sveitarfélagsins.
Eftir umræður um fyrirliggjandi tillögu bar oddviti upp svofellda tillögu:
“Hreppsnefnd Vopnafjarðarhepps samþykkir að samhliða gerð ársreiknings fyrir árið 2006 verði endurskoðunarfyrirtækinu KPMG falið að fara sérstaklega yfir lán sveitarfélagsins með tilliti til mögulegrar hagræðingar meðal annars með tilliti til þess hvort heppilegt sé að breyta íslenskum lánum í erlend að hluta eða öllu leyti.”

Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.

4. mál. Kaupvangur, hugmyndir að setri Jóns Múla og Jónasar.
Oddviti gerði grein fyrir fundi sem haldinn var með fulltrúum meiri- og minnihluta hreppsnefndar, ásamt sveitarstjóra og arvinnumálafulltrúa um málefni Kaupvangs.
Sérstaklega var gerð grein fyrir hugmyndum um uppbyggingu seturs Jóns Múla og Jónasar. Í máli fundarmanna kom fram mikill áhugi til þess að vinna málið áfram, ennfremur voru ræddar ýmsar aðrar hugmyndir um nýtingu hússins í því sambandi var rætt um að halda áfram með hugmyndir um uppsetningu svokallaðrar Halldórsstofu o.fl.

Hreppsnefnd samþykkir að áfram verði unnið að málinu í samræmi við umræður á fundinum.

5. mál. Samgönguáætlun 2007-2010( Þingskj.852) og 2007-2018 (þingskj.853). Skjölin má finna á þessum slóðum:
http://www.althingi.is/dba-bin/ferill.pl?ltg=133&mnr=574
http://www.althingi.is/altext/133/s/0853.html

Kynntar þingsályktunartillögur um samgönguáætlun áranna 2007-2010 og 2007-2018.

Sveitarstjóri gerði grein fyrir helstu þáttum áætlananna.

Við setningu megin markmiða samgönguáætlunar 2007-2018 er ljóst að ásetningurinn er góður og þar á að vera í fyrirrúmi stytting leiða og bætt öryggi í umferðinni. Jafnframt er eitt megin markmiðið að stuðla að jákvæðri byggðaþróun og stuðla þannig að aukinni samvinnu sveitarfélaga, stofnana og fyrirtækja. Leitast skal við að jafna út sem kostur er mismunandi aðgengi landsmanna að samgöngukerfinu. Í því sambandi skal sérstaklega vinna á móti ókostum mikilla flutningsvegalengda.
Að umræðum loknum var lögð fram svofelld ályktun:

“Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps lýsir ánægju sinni með að áfram skal haldið við tengingu Vopnafjarðar við Hringveginn og hvetur samgönguyfirvöld til þess að tryggja nægjanlegt fjármagn til þess að ljúka framkvæmdinni eigi síðar en 2010. Ennfremur lýsir hreppsnefnd ánægju með það að Vopnafjarðarflugvöllur hefur verið settur inn í svokallað grunnnet samgangna.

Í jarðgangamálum hafa aðalfundir SSA ályktað, margítrekað, um að jarðgöng milli Vopnafjarðar og Héraðs og jarðgöng milli Eskifjarðar og Norðfjarðar séu næstu jarðgöng á Austurlandi. Þetta hafa aðalfundir SSA verið sammála um og því bera vitni samþykktir margra undanfarinna ára í þessum efnum
Það skýtur því skökku við þegar fyrirliggjandi samgönguáætlun er skoðuð að sá vettvangur sem sveitarstjórnarmenn á Austurlandi hafa til þess að leggja áherslur á forgang í samgöngum, sem er aðalfundir SSA, er virtur að vettugi þegar á hólminn er komið.
Vonbrigði Vopnfirðinga eru mikil þegar í ljós kemur að þeim er ýtt aftur fyrir lend á merinni, þegar að jarðgöngum kemur.
Tenging Vopnafjarðar við Hérað með jarðgöngum er sú framkvæmd sem hefur byltingarkennd áhrif fyrir svæðin beggja vegna Hellisheiðar og að mati Byggðastonunar eina ásættanlega leiðin til þess að rjúfa vetrareinangrun svæðisins norðan Hellisheiðar.
Vopnfirðingar leggja á það höfuáherslu að við endurskoðun samgönguáætlunar eftir 2 ár verði jarðgöng milli Vopnafjarðar og Héraðs fest í sessi og nú þegar hafist handa við rannsóknir á slíkum göngum.”

Fyrirliggjandi ályktun samþykkt samhljóða.

6. mál Drög að Þriggja ára áætlun Vopnafjarðarhrepps 2007-2010 lögð fram til fyrri umræðu.

Lögð fram drög að þriggja ára áætlun Vopnafjarðarhrepps. Sveitarstjóri gerði grein fyrir fyrirliggjandi drögum að þriggja ára áætlun og lýsti helstu foresendum áætlunarinnar. Jafnframt las hann upp greinargerð sína með áætluninni.
Lagði hann til að áætluninni yrði vísað til afgreiðslu við síðari umræðu á næsta fundi hreppsnefndar.
Fundarmenn ræddu síðan áætlunina og voru almennt ánægðir með að áætlunin lægi fyrir. Sveitarstjóri svaraði fram komnum spurningum fundarmanna.
Tillaga sveitarstjóra um að vísa áætluninni til síðari umræðu var síðan samþykkt samhljóða.

7. mál Starfsmannamál.

Oddviti gerði grein fyrir því að Magnús Már Þorvaldsson hefur verið ráðinn í nýtt starf hjá Dalvíkurbyggð og mun hann því hætta störfum innan tíðar á Vopnafirði.

8. mál Ýmis bréf og fundargerðir :
a) Bréf SSA frá 31. janúar sl., varðandi árgjöld og Vaxtarsamning 2007-2009.
Samþykkt að vísa vaxtarsamningnum til umfjöllunar í atvinnumálanefnd.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir