Fundargerð hreppsnefndar 13. janúar 2011

14.01 2011 - Föstudagur

Hreppsnefndarfundur var haldinn fimmtudaginn 13. janúar 2011 kl. 16.00 í félagsheimilinu Miklagarði.
Mætt til fundar:  Þórunn Egilsdóttir, Björn Hreinsson, Eyjólfur Sigurðsson, Sigríður Konráðsdóttir, Fjóla Valsdóttir, Guðrún Anna Guðnadóttir og Hafþór Róbertsson.

Jafnframt var mættur sveitarstjóri, Þorsteinn Steinsson, sem ritaði fundargerð
Dagskrá:

1. mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 16. des.  sl.

Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 16. des. sl.

Gerð var athugasemd við bókun í 7. tl. fundargerðarinnar og var leiðrétting gerð þar á.

Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða.

 

2. mál. Fundargerðir stjórnar og aðalfundar Skiphólma ehf. frá 29. des. sl.

Lögð fram fundargerð stjórnar og aðalfundar Skiphólma ehf. frá 29. des. sl.    Sveitarstjóri kvaddi sér hljóðs undir 2. tl. Stjórnarfundarins  og gerði hann grein fyrir hugmyndum um sölu hlutabréfa í HB-Granda.

Eftir umræður um þessi mál var samþykkt samhljóða í hreppsnefnd að fela sveitarstjóra að kanna möguleika á því að selja hlutabréf í fyritækinu.

 

3. mál. Fundargerðir stjórnar og aðalfundar Arnarvatns ehf. frá 29. des. sl.

Lagðar fram fundargerðir stjórnar og aðalfundar Arnarvatns ehf. frá 29. des. sl.

Oddviti kvaddi sér hljóðs undir tl. 2 í fundargerð aðalfundar “Sala Hótel Tanga”   Gerði hún grein fyrir hugmyndum sem fram komu á aðalfundinum um að auglýsa hótelið til sölu.

Hreppsnefnd tekur undir ályktun aðalfundarins um að auglýsa hótelið til sölu.

 

Málsmeðferð þessi var samþykkt samhljóða.

4. mál  Þriggja ára áætlun Vopnafjarðarhrepps fyrir árin 2012-2014.- fyrri umræða-.

Lögð fram þriggja ára áætlun A- og B-hluta Vopnafjarðarhrepps fyrir árin 2012-2014.   Jafnframt lögð fram greinargerð sveitarstjóra með fyirliggjandi áætlun.   Sveitarstjóri gerði grein fyrir fyrirliggjandi gögnum og hverjar væru helstu forsendur fyrir áætlun áranna 2012-2014.

Lagði hann síðan til að áætluninni yrði vísað til síðari umræðu í hreppsnefnd.

Nokkrar umræður urðu um fyrirliggjandi áætlun og svaraði sveitarstjóri fyrirspurnum fundarmanna.

Tillaga sveitarstjóra um að vísa áætluninni til síðari umræðu var síðan samþykkt samhljóða.

5. mál.  Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Vopnafjarðarhreppi, ásamt drögum að gjaldskrá.- Fyrri umræða-.

Lögð fram drög að samþykktum um meðhöndlun úrgangs, sem unnið er

að fyrir Vopnafjarðarhrepp.   Jafnframt lögð fram drög að nýrri gjaldskrá fyrir sorphirðu og meðhöndlun úrgangs í Vopnfirði.

Sveitarstjóri gerði grein fyrir fyrirliggjandi gögnum og lagði til að þeim yrði vísað til síðari umræðu í sveitarstjórn.

 

Vinna þessi er unnin í tengslum við breytt fyrirkomulag í sorphirðumálum á Vopnafirði, sem hafist hefur verið handa við að framfylgja.  

Megin breytingin felst í því að fá einstaklinga og fyrirtæki til þess að flokka sorpið til þess að minnka til mikilla muna það sorp sem til urðunar fer og senda hinn hlutan til endurvinnslu.

 

Talsverðar umræður urðu um fyrirliggjandi gögn, þar sem fundarmenn veltu fyrir sér hvernig heppilegast væri að setja upp gjaldskrá á grundvelli nýrrar samþykktar.

 

Tillaga sveitarstjóra um að vísa samþykktunum ásamt gjaldskrá til síðari umræðu var síðan samþykkt samhljóða.

 

6. mál.  Varasjóður húsnæðismála bréf dags. 21. des. sl./sala félagslegra eigna.

Lagt fram bréf Varasjóðs íbúðalána frá 21. des. sl., varðandi framlög úr sjóðnum þ. e. annars vegar rekstrarframlaga og hins vegar framlaga til þess að mæta halla af sölu félagslegra íbúða  miðað við söluverð og áhvílandi skuldir.

Eins og reglurnar eru með styrki vegna söluframlaga þá getur sjóðurinn styrkt allt að 90 % þess sem ber á milli söluverðs og áhvílandi skulda á viðkomandi eign.

 

Lögð var fram svofelld tillaga: 

 

“Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps samþykkir að fela sveitarstjóra og oddvita að auglýsa til sölu félagslegar leiguíbúðir í eigu sveitarfélagsins með fyrirvara um framlag Varasjóðs íbúðalána.

Hreppsnefnd telur einnig eðlilegt að veita núverandi leigjendum forkaupsrétt hafi þeir áhuga á að nýta sér hann.”

 

Nefndarmenn töldu flestir æskilegt að reyna þessa leið.

Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.

 

7. mál. Bréf sjávarútvegs og landbúnaðarráðuneytis dags. 22. des. sl., varðandi byggðakvóta.

Lagt fram bréf sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, varðandi úthlutun byggðakvóta til Vopnafjarðarhrepps.   Í bréfinu kemur fram að úhlutað hefur verið 221 þorskígildistonnum til Vopnafjarðarhrepps.  Jafnframt kemur fram í bréfinu að byggðakvóta sem ekki tókst að úthluta á síðasta fiskveiðiári verður úthlutað samkvæmt sömu reglum og um þennan nýja kvóta munu gilda.

Jafnframt lögð fram reglugerð um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga og reglugerð um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2010/2011.

Samþykkt samhljóða að vísa málinu til tillögugerðar í atvinnumálanefnd sveitarfélagsins, en byggðakvótinn er veittur til sveitarfélagsins á þeim grunni að hann skapi sem mesta atvinnu í viðkomandi byggðalagi.

 

 

8.  Sjúkraflutningar á Vopnafirði.   Samningur milli HSA og Brunavarna á Austurlandi, með samþykki Heilbrigðisráðuneytisins.

Lagðu fram til kynningar samningur milli Brunavarna á Austurlandi og HSA, með samþykki heilbrigðisráðuneytisins um sjúkraflutninga á Vopnafirði.

Samkvæmt samningnum færast sjúkraflutningar í Vopnafirði af hendi HSA yfir á hendi Brunavarna á Austurlandi.

Hreppsnefnd telur samninginn allrar athygli verðan.

 

9. mál. Hafnarbyggð 1, Yfirtaka/kaup.

Lögð fram hugmynd að yfirtöku Vopnafjarðarhrepps á vöruskemmu að Hafnarbyggð 1 af þrotabúi Kaupfélags Vopnafjarðar.

Hugmyndin gengur út á það að eigninni verði afsalað til Vopnafjarðarhrepps gegn því að kröfur sveitarfélagsins á Þrotabúið verði felldar niður.

Í umræðu fundarmanna kom fram að skoðanir manna voru misjafnar í þessu sambandi.   Skoða þyrfti málið betur þar sem mikill kostnaður gæti hlotist af því að eiga húsnæðið og ekki síður við að koma því í viðunandi ástand.

 

Samþykkt að fela sveitarstjóra og oddvita að vinna áfram að málinu.   Frekari gögn um hugsanlegan kostnað v/ lagfæringa o.fl. yrðu síðan lögð fyrir hreppsnefnd.

 

10. mál. Ýmis mál og fundargerðir

a) Landgræðsla ríkisins bréf dags.16. des. sl., beiðni um styrk.

Lagt fram bréf Langræðslunnar varðandi styrk.   Samþykkt að verða við styrkbeiðninni, enda fyrir kostnaðinum áætlað í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.

b) Samband ísl.sveitarfélaga bréf dags. 20. des. sl., varðandi verkfallslista.

Samþykkt að fela sveitarstjóra að láta vinna slíkan lista.

 

c)  Fundargerð stjórnarfundar Skólaskrifstofu Austurlands frá 20. des. sl.   Jafnframt lögð fram fundargerð aðalfundar skólaskrifstofunnar.

Lagt fram til kynningar.

 

d) Bréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins dags. 30. des. sl., varðandi nýtt innanríkisráðuneyti.

Lagt fram til kynningar.

 

e) Bréf eigenda Hafnarbyggðar 2a frá 6. jan. sl., þar sem óskað er eftir niðurfellingu fasteignagjalda.

Nokkrar umræður fóru fram um fyrirliggjandi erindi.   Fundarmenn töldu að ekki væri unnt að fella niður fasteignagjöld af húsnæðinu sökum fordæmisgildis.  

 

f) Bréf velferðarráðuneytisins dags. 3. jan. sl., varðandi félagslega framfærslu.

Lagt fram til kynningar vísað til vinnslu í félagsmálanefnd Fljótsdalshéraðs.  

Málsmeðferð þessi samþykkt samhljóða.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18.30





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir