Hreppsnefnd 02.11.06

02.11 2006 - Fimmtudagur

Hreppsnefndarfundur fimmtudaginn 2. nóv. 2006
kl. 16.00 í félagsheimilinu Miklagarði.

Mættir á fundinn voru Aðalbjörn Björnsson, Ólafur Ármannsson, Halldóra Sigríður Árnadóttir, Anna Pála Víglundsdóttir, Guðrún Anna Guðnadóttir, Björn Halldórsson og Þórdís Þorbergsdóttir.
Jafnframt var mættur Þorsteinn Steinsson, sveitarstjóri og ritaði hann fundargerð.

Dagskrá:

1. mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 19. okt. sl.
Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 19. okt. sl. Gerðar voru atugasemdir varðandi 7. tl fundargerðarinnar “Lánasjóður Sveitarfélaga” og var fundargerðin lagfærð til samræmis við það.
Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða.

2. mál Fundargerðir fræðslunefndar frá 19. sept. og 10. okt. sl.
Lagðar fram fundargerðir fræðslunefndar frá 19. sept. og 10. okt. sl.
Oddviti minnihlutans tók til máls undir fundargerð fræðslunefndar frá 10. okt. sl., þar sem fjallað var um fjáhagsáætlanir og fl. og lagði hann fram svofellda bókun minnihlutans:
“Undirrituð lýsum eindreginni ánægju með þá ábyrgu afstöðu sem fram kemur í bókun fræðslunefndar frá 10. október 2006, þar sem fjallað er um nauðsyn þess að yfirmenn deilda sveitarfélagsins hafi undir höndum fjáhagsáætlun fyrir viðkomandi deildir.”

Oddviti meirihlutans tók síðan til máls og gerði grein fyrir vinnubrögðum við gerð fjárhagsáætlunar. Lagði hann síðan fram svofellda bókun:” Við gerð fjárhagsáætlana er ávallt tekið mið af sjónarmiðum forstöðumanna og þeir hafðir með í ráðum. Hafi forstöðumenn ekki fjárhagsáætlun sinnar stofnunar við hendina geta þeir ávallt nálgast hana á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps. Með fjárhagsáætlun eru lagðar línur varðandi þjónustu og endurgreiðslur foreldra. Langstærsti útgjaldaliður stofnana er launakostnaður sem forstöðumenn vinna eftir skv. áður ákveðnum línum. Í flestum öðrum tilfellum þegar stofnað er til kostnaðar er leitað til sveitarstjóra sé verið að stofna til kostnaðar sem er utan við hinn fasta samþykkta rekstur stofnunarinnar.”

Spurt var um stöðu á viðbyggingu leikskólans og var því svarað af oddvita og sveitarstjóra, en unnið er að endanlegri hönnun skólans af arkitektinum Magnúsi Skúlasyni.

3. mál Fundargerðir sameiginlegrar félagsmálanefndar frá frá 19. og 23. okt. sl.
Lagðar fram fundargerðir sameiginlegrar félagsmálanefndar frá 19. og 23. okt. sl. Sveitarsjtóri gerði og grein fyrir fundi með fulltrúum félagsþjónustu Héraðs sem haldinn var á Vopnafirði 24. okt. sl. Jafnframt lagði hann fram yfirlit yfir helstu verkefni og málaflokka félagsjónustunnar og þá starfsmenn sem sem hjá félagsþónustinni starfa.

4. mál Lánasjóður sveitarfélaga, lánsloforð áður tekið fyrir á fundi nefndarinnar 19. okt. sl.
Lagður fram lánssamningur milli Vopnafjarðarhrepps og Lánasjóðs sveitarfélaga að fjárhæð 45.000 þús. kr. í íslenskum krónum til 16 ára. Samningur þessi var kynntur á síðasta fundi hreppsnefndar þann 19. okt. sl. Jafnframt lagt fram tilboð Lánasjóðs Sveitarfélaga í erlent lán að sömu fjárhæð til allt að 10 ára með 0,13 % álagi á LIBOR vexti annað hvort í USD eða EUR eða blöndu þessara mynta.
Lögð fram greinagerð sveitastjóra þar sem hann gerir grein fyrir athugun sinni á erlendum lánamöguleikum, samanborið við innlenda. Í máli hans kom fram að leitað hafi verið ráðgjafar hjá fyrirtækjunum Ráðgjöf og efnahagsspár annars vegar og Íslenskum verðbréfum hins vegar. Hjá þessum fyrirtækjum kom fram að erfitt væri að segja til um það með skýrum hætti hvort væri hagkvæmara að taka lán í erlendri mynt eða íslenskri eins og vangaveltan væri í þessu tilfelli. Slíkt mótaðist af því hver þróunin væri í gengis -og verðbólgumálum til framtíðar og erfitt væri að spá með vissu um slík mál. Niðurstaðan væri sú að fyrirtækin ráðlegðu Vopnafjarðarhreppi að taka þetta lán í íslenskum krónum, þar sem fyrirliggjandi kjör væru mjög góð og lánstími eins og óskað hefði verið eftir.
Sveitarstjóri svaraði síðan spurningum frá síðasta fundi um það hvaða lán ætti að greiða niður og hvaða áhrif þetta hefði á lánastöðu sveitarfélagsins.

Lagði hann síðan til að athuguðu máli yrði tilboði Lánasjóðsins í innlent lán tekið og lagði í því sambandi fram svo fellda tillögu:

“Hreppsnefnd Vopnafjarðar samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 45.000.000 kr. til 16 ára, í samræmi við skilmála í lánssamningi milli Vopnafjarðarhrepps og Lánasjóðs sveitarfélaga, sem liggur fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 3. mgr. 73. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Er lánið tekið til þess m. a. að fjármagna skuldbreytingar lána, hafnar-, fráveitu- og vatnsveituframkvæmdir, sbr. 2. gr. laga um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 136/2004.
Jafnframt er sveitarstjóra veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess, f. h. Vopnafjarðarhrepps, að undirrita lánssamning eða skuldabréf við Lánasjóð sveitarfélaga, sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.”

Nokkrar umræður urðu síðan um fyrirliggjandi gögn og samninga þar sem fram komu mismunandi sjónarmið. Björn Halldórsson fulltrúi minnihlutans mælti með því að lánið yrði tekið í erlendri mynt. Oddviti lagði til að farið yrði eftir faglegu mati ráðgjafa sem til var leitað og lagði því til að fyrirliggjandi tillaga yrði samþykkt.

Síðan var gengið til atkvæða.

Fyrirliggjandi tillaga var síðan samþykkt með 4 atkvæðum meirihlutans en 3 fulltrúar minnihlutans sátu hjá.


5. mál Athugasemdir við drög að samgönguáætlun 2007-2018, bréf til Samgönguráðherra dags. 24. okt. sl.
Lagt fram bréf Vopnafjarðarhrepps til samgönguráðherra dags. 24. okt. sl., þar sem gerðar eru athugasemdir við frumdrög að samgönguáætlun 2007-2018. Jafnframt lögð fram þingsályktunartillaga um jarðgangaáætlun samþykkt 13. maí 2000.
Í bréfinu er því mótmælt að ekki sé getið jarðganga milli Vopnafjarðar og Héraðs, en í Þingsályktunartillögu um jarðagangaáætlun sem samþykkt var á Alþingi 13. maí 2000 var samþykkt að göng milli Vopnafjarðar og Héraðs væru ein þriggja ganga sem kæmu næst á eftir jarðgöngum milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar annars vegar og Siglufjarðar og Ólafsfjarðar hins vegar.
Gerð var grein fyrir fundi, sem sveitarstjóri og oddviti áttu með samgönguráðherra 27. okt. sl. varðandi þessi mál.
Samþykkt var að fela sveitarstjóra að koma athugasemdum þessum á framfæri við þingmenn kjördæmisins.

6. mál Norðausturvegur til Vopnafjarðar, tímaáætlun matsvinnu.
Oddviti gerði grein fyrir fundi sem hann og sveitarstjóri áttu með vegamálastjóra varðandi tengingu Vopnafjarðar við Hringveginn. Jafnframt lögð fram áætlun Vegagerðarinnar um framgang matsferlisins og hugmyndir hennar um það hvenær Vegagerðin gæti sótt um framkvæmdaleyfi og framkvæmdir hafist. Samkvæmt áætluninni mun Vegagerðin óska eftir framkvæmdaleyfi í maímánuði n.k. og mun Vegagerðin leggja til að farin verði svokölluð Vesturárdalsleið með tengingu milli Vesturárdals og Hofsárdals.
Samkvæmt áætlun Vegagerðarinnar ættu framkvæmdir að geta hafist í júlí 2007.

7. mál. Björgunarsveitin Vopni bréf dags. 30. okt. sl., varðandi bílakaup sveitarinnar.
Lagt fram bréf björgunarsveitarinnar Vopna dags. 30. okt. sl., þar sem sveitin greinir frá hugmyndum sínum um kaup á nýjum björgunarbíl fyrir sveitina. Í þessu sambandi er óskað eftir stuðningi sveitarfélagsins. Sveitarstjóri gerði nánari grein fyrir hugmyndum sveitarinnar varðandi kostnað og hugmyndir um öflun fjár til kaupanna.
Fram kom tillaga um að styrkja sveitina um 1.000 þús. kr. til bílakaupanna. Helmingur fjárhæðarinnar greiðist á þessu ári og helmingur á því næsta.
Fjárútlátum þessum verði fundinn staður við endurskoðun fjárhagsáætlunar 2006 og við gerð fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár.

Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.

8. mál. Erindi Vopnafjarðarhrepps til fjárlaganefndar Alþingis árið 2006
Lögð fram erindi Vopnafjarðarhrepps til fjárlaganefndar Alþingis 2006, dags. 24. okt. sl., en sveitarstjóra var falið að vinna að gerð erinda þessara og koma þeim á framfæri.

9. mál Ýmis bréf og fundargerðir:
a) Viljayfirlýsing sveitarfélaga á Austurlandi um aðkomu að vaxtarsamningi Austurlands undirrituð 6. okt. sl.
Lagt fram til kynningar.

b) Bréf Nefndar samkvæmt ályktun Alþingis til aðgangs að opinberum gögnum um öryggismál dags. 17. okt. sl.
Lagt fram til kynningar.

c) Dagur íslenskrar tungu 16. nóv. nk., bréf dags 3. okt. sl.
Lagt fram til kynningar.

Fleira ekki gert og fundi slitið




Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir