Hreppsnefnd 21.09.06

21.09 2006 - Fimmtudagur

Hreppsnefnd 21.09.06
Hreppsnefndarfundur haldinn fimmtudaginn 21. sept. 2006
kl. 16.00 í félagsheimilinu Miklagarði. Á fundinn voru mættir Aðalbjörn Björnsson, Einar Víglundsson, Björn Halldórsson, Guðrún Anna Guðnadóttir, Borghildur Sverrisdóttir, Halldóra Sigríður Árnadóttir og Ólafur Ármannsson.
Jafnframt var mættur sveitarstjóri Þorsteinn Steinsson og ritaðai hann fundargerð.

Dagskrá:

1. mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 07. sept. sl.
Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 7. sept. sl.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.

2. mál Fundargerð Æskulýðs – og íþróttanefndar frá 14. sept. sl.
Lögð fram fundargerð æskulýðs- og íþróttanefndar frá 14. sept. sl.
Lögð fram til kynningar.

3. mál Stjórnar- og aðalfundur Arnarvatns ehf. frá 13. sept. sl.
Lagðar fram fundargerðir stjórnar -og aðalfundar Arnarvatns ehf. frá 13. sept. sl.
Undir þessum dagskrárlið var gerð grein fyrir stöðu mála gagnvart Hótel Tanga h/f. Unnið er að samningum við nýja rekstraraðila, sem að öllum líkindum munu taka við rekstrinum á mánudaginn 25. sept. nk. Jafnframt væri unnið að endanlegum frágangi á slitum á rekstrarsamningi við núverandi rekstraraðila.
Hreppsnefnd staðfesti fundargerðirnar að öðru leyti.

4. mál Samningar um félagsmál og félagsmálanefnd, tilnefning fulltrúa Vopnafjarðarhrepps í nefndina.
Lagður fram samningur dags. 15. sept. sl., um sameiginlega félagsmál- og barnaverndarnefnd, sem undirritaður hefur verið milli sveitarfélaganna Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs, Fljótsdalshrepps og Vopnafjarðarhepps. Ennfremur lagður fram samningur um félags- og barnaverndarþjónustu milli sömu aðila og verklagsreglur og upplýsingar um framkvæmd samninganna, sem undirritaðir voru sama dag.
Gerð var grein fyrir fyrirliggjandi samningum. Fram kom að sérhæfðir starfskraftar í þessum málum verða staðsettir reglulega á Vopnafirði.
Ljóst er að samningar þessir um félags- og barnaverndarþjónustu leiða til mun faglegri þjónustu á þessu sviði en verið hefur fram að þessu.

Vopnafjarðarhreppur þarf að tilnefna fulltrúa sinn í hina sameiginlegu nefnd.
Fram kom tillaga um að Þórunn Egilsdóttir verði fulltrúi Vopnafjarðarhrepps.
Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.

5. mál Samningar um Brunamál, tilnefning Vopnafjarðarhrepps í sameiginlega nefnd.
Lögð fram drög að samningum um sameiginlegt rekstrarsamlag sveitarfélaganna, Vopnafjarðarhrepps, Fljótsdalshéraðs, Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps og Fljótsdalshrepps, sem undirrita á um miðjan október nk.
Í þriðju grein samningsdraganna er gert ráð fyrir að kosin verði 5 manna stjórn samlagsins, einn fulltrúi frá hverju aðildar sveitarfélagi.
Vopnafjarðarheppur samþykkir að Þorsteinn Steinsson, verði fulltrúi sveitarfélagsins í stjórninni.
Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.

6. mál Aðalfundur Skólaskrifstofu Austurlands 13. okt. 2006.
Lagt fram bréf frá skólaskrifstofu Austurlands dags. 7. sept. sl., þar sem boðað er til aðalfundar 13. okt. nk. Jafnframt er minnt á að sveitarfélög kjósi fulltrúa sína á fundinn.
Lögð fram tillaga um að Einar Björn Kristbergsson verði fulltrúi sveitarfélagsins og til vara verði Halldóra Sigríður Árnadóttir og að ennfremur verði Einar fulltrúi sveitarfélagsins í nýrri stjórn og Halldóra til vara
Fyrirliggjandi tillaga var samþykkt með 5 atkvæðum og tveir sátu hjá.

7. mál Fjárlaganefnd Alþingis viðtalstímar dagana 25.-26.sept. nk.
Lagt fram bréf frá fjárlaganefnd Alþingis, þar sem boðið er upp á fund með nefndinni dagana 25. og 26. sept. nk. Jafnframt er gefinn kostur á fundi gegnum fjarfundarbúnað 28. sept. nk.
Samþykkt að fela sveitarstjóra að semja erindi til nefndarinnar og koma því á framfæri.

8. mál Ýmis bréf og fundargerðir:
a) Vaxtarsamningur Austurlands, kynning.
Samninginn má finna á heimasíðu iðnaðarráðuneytisins.
Gerð var grein fyrir því að ráðgert væri að þróunarstofa Austurlands myndi kynna samninginn fyrir hreppsnefnd á hádegisfundi mánudaginn 25. sept. nk.
b) Athugasemdir vegna Kárahnjúkavirkjunar
Lagt fram til kynningar.

Fleira ekki gert og fundi slitið.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir