Hreppsnefnd 14.06.06

14.06 2006 - Miðvikudagur

Fundur hreppsnefndar Vopnafjarðarhrepps
haldinn 14. júní 2006 kl. 16.00 í Miklagarði.


Mætt: Aðalbjörn Björnsson, Halldóra S. Árnadóttir, Björn Halldórsson, Eyjólfur Sigurðsson, Ólafur Ármannsson, Guðrún Anna Guðnadóttir og Þórdís Þorbergsdóttir.

Jafnframt var mættir Þorsteinn Steinsson og Magnús Már Þorvaldsson, er ritaði fundargerð.

Aðalbjörn Björnsson, sem er sá kjörni fulltrúi sem á að baki lengsta setu í sveitarstjórn, setti fyrsta fund nýkjörinnar sveitarstjórnar og bauð nýkjörna sveitarstjórnarmenn velkomna til starfa og sérstaklega þá er setjast nú í sveitarstjórn í fyrsta sinn.

Kynnti hann bréf kjörstjórnar Vopnafjaðrhrepps frá 7. júní sl.:

“Í sveitarstjórnarkosningunum laugardaginn 27. maí 2006 voru tveir listar í framboði. K-listinn; Listi félagshyggjufólks á Vopnafirði og N-listi Nýs Afls. Á kjörskrá í Vopnafjarðarhreppi voru 532 kjósendur og kusu 92,29 %. Úrslit kosninganna urðu þannig að K-listinn fékk 257 atkvæði og 4 fulltrúa kjörna, N-listinn fékk 214 atkvæði og 3 fulltrúa kjörna.

Auðir og ógildir seðlar voru 20.

Fulltrúar fyrir hvorn lista eru sem hér segir:

K- listi. Listi félagshyggjufólks á Vopnafirði

Aðalmenn. Varamenn
Aðalbjörn Björnsson Halldóra S. Árnadóttir
Anna Pála Víglundsdóttir Eyjólfur Sigurðsson
Borghildur Sverrisdóttir Vigfús Davíðsson
Ólafur Ármannsson Brynjar Joensen

N-listi Nýs afls.

Aðalmenn Varamenn
Björn Halldórsson Einar Víglundsson
Guðrún Anna Guðnadóttir Kristín H. Reynisdóttir
Þórdís Þorbergsdóttir Skúli Þórðarson

Kjörstjórn Vopnafjarðarhrepps

Svanborg Víglundsdóttir(sign)
Baldur Kjartansson(sign)
Sigríður Edda Wiium(sign)”


Síðan var gengið til auglýstrar dagskrár.

1. mál. Kosning oddvita.
Gengið var til leynilegra kosninga.
Úrslit kosninga urðu þau að oddviti var kjörinn Aðalbjörn Björnsson með 4 atkvæðum 3 seðlar voru auðir

2. mál. Kosning varaoddvita .
Gengið var til leynilegra kosninga
Úrslit kosninga urðu þau að varaoddviti var kjörinn Anna Pála Víglundsdóttir með 4 atkvæðum 3 seðlar voru auðir.

3. mál. Ráðning sveitarstjóra.
Þorsteinn Steinsson vék af fundi undir þessu máli.
Oddviti bar upp svofellda tillögu:” Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps samþykkir að ráða Þorstein Steinsson í starf sveitarstjóra Vopnafjarðarhrepps kjörtímabilið 2006-2010”.

Tillagan samþykkt með 4 atkvæðum meirihlutans, 3 sátu hjá.

4. mál. Kosning aðal- og varafulltrúa í nefndir:

Fram kom svofelld tillaga um aðal- og varamenn í eftirtaldar nefndir:

“Bygginga-og skipulagsnefnd:

Eyjólfur Sigurðsson
Ari Hallgrímsson
Bárður Jónasson
Baldur Helgi Friðriksson
Jóhann L. Einarsson
Þorsteinn Halldórsson
Baldur Kjartansson

Varamenn:

Bjarki Björgólfsson
Ingólfur Arason
Helgi Ásgeirsson
Þráinn Hjálmarsson
Brynjar Joensen
Sigurður Björnsson
Guðrún Stefánsdóttir

Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.

Fræðslunefnd:

Guðrún Stefánsdóttir
Halldóra Andrésdóttir
Gísli Sigmarsson
Rannveig Erlingsdóttir
Haraldur Jónsson

Varamenn:

Einar Björn Kristbergsson
Magni Hjálmarsson
Brynjar Joensen

Undir þessum lið óskaði Björn Halldórsson að svofelld tillaga yrði tekin fyrir:
“Óskað er eftir að minnihluti hreppsnefndar fái ávallt fyrsta varamann í 5 manna nefnd”.

Oddviti greindi frá því að varamenn væru skipaðir hlutfallslega með sama hætti og aðalmenn nefnda, þ. a. s. meginreglan við boðun varamanna væri sú að varamenn meirihlutans væru fyrir aðalamenn hans og varamaður minnihlutans væri fyrir aðalmenn minnihlutans. Með þessum hætti helst ávallt sama hlutfall í nefndinni.

Fyrirliggjandi breytingatillaga minnihlutans var síðan borin upp og felld með 4 atkvæðum gegn 3.

Nefndarskipan samþykkt 4 atkvæðum, 3 sátu hjá.

Hafnarnefnd:

Hafþór Róbertsson
Jörgen Sverrisson
Vigfús Davíðsson
Björn Hreinsson
Hilmar Jósefsson

Varamenn:

Brynjar Joensen
Oddur Jóhannsson
Friðbjörn Marteinsson

Samþykkt með 4 atkvæðum, 3 sátu hjá.

Húsnæðisnefnd/félagsmálanefnd:

Einar Björn Kristbergsson
Auður Jónsdóttir
Þórunn Egilsdóttir
Hafrún Róbertsdóttir
Halldóra Árnadóttir

Varamenn:

Dagný Sigurjónsdóttir
Hrafnhildur Ævarsdóttir
Linda Björk Stefánsdóttir

Oddviti bar upp þá tillögu að húsnæðisnefnd muni gegna hlutverki félagsmálanefndar, þar til samkomulag við Fljótsdalshérað o. fl. sveitarfélög um sameiginlega félagsmálanefnd kemst í framkvæmd.
Samþykkt með 4 atkvæðum, 3 sátu hjá.

Landbúnaðarnefnd:

Friðbjörn Haukur Guðmundsson
Sigríður Bragadóttir
Valur Guðmundsson
Fanney Hauksdóttir
Helgi Sigurðsson
Gauti Halldórsson
Karl Steingrímsson

Varamenn:

Bragi Vagnsson
Sigurjón Hauksson
Svanur Arthúrsson
Skúli Þórðarson
Guðjón Jósefsson
Pétur Jónsson
Sverrir Jörgensson”

Samþykkt samljóða.

Samþykkt var að kjósa í aðrar fastanefndir sveitarfélagsins á næstu tveimur fundum hreppsnefndar.

5. mál. Fyrirkomulag hreppsnefndarfunda.
Tillaga kom fram um að hreppsnefnd komi saman fyrsta og þriðja hvern fimmtudag í mánuði kl. 16.00 eins og verið hefur.
Nokkrar hugmyndir komu frá minnihlutanum um fyrirkomulag hreppsnefndarfunda og auglýsingu á fundum og fundargerðum.
Oddviti lagði til að umræða um þessi mál yrði tekin upp síðar.

Fleira ekki gert og þakkaði oddviti fundarmönnum góða fundarsetu og sleit fyrsta fundi nýkjörinnar sveitarstjórnar kl. 16.35.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir