Hreppsnefnd 16.05.06

16.05 2006 - Þriðjudagur

Hreppsnefndarfundur þriðjudaginn 16. maí 2006
kl. 16.00 í félagsheimilinu Miklagarði.

Mætt til fundar: Aðalbjörn Björnsson, Emil Sigurjónsson, Ólafur Kristinn Ármannsson, Borghildur Sverrisdóttir, Bragi Vagnsson, Steindór Sveinsson og Björn Halldórsson.
Einnig mættir: Þorsteinn Steinsson sveitarstjóri, tveir fulltrúar KPMG, Magnús Jónsson og Hlynur Sigurðsson, og Magnús Már Þorvaldsson, er ritaði fundargerð.

Dagskrá:

1. mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 27. apríl sl.
Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 27. apríl sl.
Fundargerðin síðan samþykkt.

2. mál. Fundargerð félagsmálanefndar frá 8. maí sl.
Lögð fram fundargerð félagsmálanefndar frá 8. maí sl. Sveitarstjóri kvaddi sér hljóðs undir 2. tl. varðandi samvinnu sveitarfélaga um félagsþjónustu. Lagði hann til að afgreiðsla þessara mála yrði tekin til afgreiðslu undir tl. 6 hér á eftir. Var það samþykkt. Fundargerðin að öðru leyti samþykkt.

3. mál. Ársreikningar Vopnafjarðarhrepps A- og B-hlutasjóða fyrir árið 2005.
-Fyrri umræða- (Ársreikningur sendur í tölvupósti).

Á fundinn voru mættir fulltrúar KPMG, Hlynur Sigurðsson og Magnús Jónsson.
Lagðir fram ársreikningar Vopnafjarðarhrepps A- og B-hluta fyrir árið 2005. Jafnframt var lögð fram endurskoðunarskýrsla með ársreikningum 2005.

Sveitrarstjóri gerði grein fyrir fyrirliggjandi reikningum. Í máli hans kom fram að tekið var á ýmsum þáttum með öðru sniði en verið hefur við ársreikningagerð ársins 2005 m. a. væru nú í fyrsta skipti færðar upp lífeyrisskuldbindingar og áfallið orlof og óbeinar afskriftir, sem ekki hafa verið færðar með þessum hætti áður. Í heild skilar A- hluti sveitarjóðs um 6,8 m.kr. í hagnað en samstæðan öll þ. e. A hluti að viðbættum B-hlutasjóðum er rekin með liðlega 35 m. kr. tapi. Ennfremur kom fram að heildarskuldir í A -og B hluta lækka um 46 m. kr. milli ára og jafnframt eru greiddar upp skuldbindingar utan efnahags að fjárhæð 277,2 m.kr. Skuldbindingar sveitarfélagsins lækka því í raun um 323, 2 m.kr.

Sveitarstjóri lagði síðan til að fyrirliggjandi ársreikningum yrði vísað til síðari umræðu.
Í framhaldi gerðu fulltrúar KPMG grein fyrir vinnu sinni við endurskoðunina fóru yfir helstu atriði í endurskoðunarskýrslu þeirra, og svöruðu framkomnum fyrirspurnum.
Eftir miklar umræður samþykkti hreppsnefnd samhljóða fyrirliggjandi tillögu sveitarstjóra um að vísa reikningunum til síðari umræðu.

4. mál. Kjörskrá Vopnafjarðarhrepps fyrir sveitarstjórnarkosningar, sem fram fara laugardaginn 27. maí nk.

Kjörskrá Vopnafjarðarhrepps við sveitarstjórnarkosningar 27. maí 2006
Lagður fram stofn að kjörskrá fyrir Vopnafjarðarhrepp, sem unnin hefur verið af Hagstofu Íslands. Alls eru 532 á kjörskrá Vopnafjarðarhrepps fyrir sveitarstjórnarkosningar 27. maí 2006, þar af eru 281 karl og 251 konur.

Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps samþykkir samhljóða framlagða kjörskrá fyrir sveitarstjórnarkosningar 27. maí nk. eins og hún liggur fyrir og felur sveitarstjóra að undirrita hana.

5. mál. Bréf stjórnar Minjasafnsins að Bustarfelli, dags. 8. maí sl., varðandi styrkbeiðni.
Lagt fram bréf stjórnarinnar frá 8. maí sl., þar sem óskað er eftir styrk til Minjasafnsins á Bustarfelli.

Sveitarstjóri gerði grein fyrir málinu og lagði til að veittur yrði 600 þús. kr. styrkur til safnsins. Jafnframt kom fram í máli hans að reist hefði verið nýtt aðstöðuhús fyrir safnið, sem gerbreytir allri aðstöðu til að taka á móti gestum safnsins, jafnframt og vinnuaðstöðu starfsmanna.

Eftir nokkrar umræður samþykkti hreppsnefnd samhljóða að veita safninu 600 þús. kr. styrk og fagnaði jafnframt hinni nýju aðstöðu safnsins. Ennfremur var forstöðumanni safnsins til margra ára þakkað fórnfúst starf fyrir samfnið í gegnum tíðina.
6. mál. Félags -og brunamál, viðræður sveitarfélaga um samvinnu. Áður tekið fyrir á fundi hreppsnefndar 27. apríl sl.

Lögð fram fundargerð frá sameiginlegum fundi sveitarfélaganna frá 15. maí sl.
Jafnframt lögð fram endurnýjuð gögn varðandi brunamálin og félagsmálin. Um þessi mál var fjallað á síðasta fundi hreppsnefndar 27. apríl sl. Ennfremur hefur félagsmálanefnd fjallað um fyrirhugaða samvinnu sveitarfélaganna í félagsmálum, samanber fundargerð nefndarinnar frá 8. maí sl., sem fjallað var um í 2. tl þessarar fundargerðar.

Sveitarstjóri gerði grein fyrir fyrirliggjandi málum og lagði síðan fram svofellda tillögu:
”Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps samþykkir að ganga til samvinnu um félagsmál við sveitarfélögin Fljótsdalshérað, Borgarfjörð eystri, Breiðdalshrepp, Djúpavogshrepp og Fljótsdalshrepp á grundvelli fyrirliggjandi gagna.

Hreppsnefnd tekur heilshugar undir ábendingar félagsmálanefndar sveitarfélagsins um mikilvægi þess að Vopnafjarðarhreppur eigi einn fulltrúa í sameiginlegri félagsmálanefnd sveitarfélaganna.

Jafnframt samþykkir hreppsnefnd að ganga til samninga um samvinnu í brunamálum við sömu sveitarfélög á grundvelli framlagðra gagna, sem byggir á því að stofnað verði rekstrarsamlag með sérstakri stjórn bunavarna svæðisins.”


Allmiklar umræður urðu um fyrirliggjandi gögn og málefni.
Fyrirliggjandi tillaga var síðan samþykkt samhljóða.

7. mál. Ýmis mál og fundargerðir.
a) Bréf Búnaðarsambands Austurlands frá 3. maí sl., varðandi ályktanir
Lagt fram til kynningar.
b) Fundargerð Heilbrigðisefirlits Austurlands frá 26. apríl sl. (Ath. fundargerðin er send í tölvupósti)
Lögð fram til kynningar.

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 18.15





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir