Hreppsnefndarfundur fimmtudaginn 30. mars 2006
- kl. 16.00 í félagsheimilinu Miklagarði.
Mætt til fundar: Aðalbjörn Björnsson, Ólafur Ármannsson, Borghildur Sverrisdóttir, Björn Heiðar Sigurbjörnsson, G. Inga Geirsdóttir, Steindór Sveinsson og Ólafur B. Valgeirsson.
Einnig mættir: Þorsteinn Steinsson sveitarstjóri og Magnús Már Þorvaldsson, er ritaði fundargerð.
Dagskrá:1. mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 9. mars sl.
Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 9. mars sl.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
2. mál. Fundargerð félagsmálanefndar frá 9. mars sl.
Fundargerð félagsmálanefndar frá 9. mars sl. Allmiklar umræður áttu sér stað um fundargerðina, þar sem sölumál fasteigna sveitarfélagsins voru m. a. tekin til umræðu. Að öðru leyti var fundargerðin lögð var fram til kynningar.
3. mál. Fundargerð skólanefndar frá 17. mars sl.
Fundargerð skólanefndar lögð fram til kynningar. Sveitarstjóri gerði grein fyrir starfi bygginganefndar leikskólans, verkefnið komið af stað.
Fundargerðin síðan samþykkt.
4. mál. Fundargerð menningarmálanefndar frá 22. mars sl.
Fundargerð menningarmálanefndar frá 22. mars sl. lögð fram til kynningar. Oddviti vék að 4. lið í fundargerðinni
“hljómsveitir á Vopnafjarðardögum” og hvatti menningarmálanefnd til að horfa til unga fólksins við val á hljómsveit.
Kynnt voru drög að samningi milli Vopnafjarðarhrepps og Menningarráðs Austurlands. Sveitarstjóri gerði grein fyrir fyrirliggjandi samningsdrögum og lagði til að sér yrði falið að ljúka við samninginn, þó þannig að reynt yrði að hækka árlegar greiðslur m. v. tillögur MA.
Hreppsnefnd samþykkti samhljóða að fela sveitarstjóra að ljúka samningsgerðinni.
5. mál. Bréf Varasjóðs húsnæðismála frá 20. mars sl., þar sem tilkynnt er um rekstrarframlag.
Lagt fram bréf Varasjóðs húsnæðismála frá 20. mars sl., þar kemur fram að Vopnafjarðarhreppur hefur fengið 1.179 þús. kr. rekstrarframlag á grundvelli umsóknar sinnar.
Lagt fram til kynningar.
6. mál. Bréf sýslumannsins á Seyðisfirði dags. 23. mars sl., varðandi umsögn um veitinga- og gistileyfi fyrir Hótel Tanga.
Lagt fram bréf frá Sýslumanninum á Seyðisfirði, þar sem óskað er umsagnar Vopnafjarðarhrepps, vegna umsókanar Bræðra og Systra ehf. um veitinga- og gistileyfi á Hótel Tanga, Vopnafirði.
Hreppsnefnd samþykkir að umbeðið leyfi verði veitt.
7. mál. Vopn-Fiskur, starfskraftur
Ólafur Ármannsson kaus að víkja af fundi undir þessu lið.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir umsókn Vopn-Fisks, þar sem óskað er eftir styrk til starfseminnar. Unnið er að því að fá nýja fjárfesta að verkefninu og með aðstoð Þróunarfélags Austurlands er verið að vinna að umsókn um fjármagn úr svokölluðu Nora-verkefni. Með fjármagni sem þaðan er áætlað að fáist er hægt að fjármagna rannsóknarþátt eldisverkefnisins, sem er grundvöllur fyrir frekari styrkjum.
Miklar umræður áttu sér stað um verkefnið og fjármögnun þess. Jafnframt var lögð fram rekstraráætlun fyrir árin 2006-2010, sem unninn hefur verið með aðstoð Þróunarfélags Austurlands. Almennt sjónarmið nefndarmanna endurspeglaði jákvæðni til verkefnisins en jafnframt var talin þörf á að fá nýja fjárfesta að málinu.
Svofelld tillaga var síðan lögð fram :
i>“Hreppnefnd Vopnafjarðarhrepps samþykkir að kaupa hlutafé í Vopn-Fiski ehf. fyrir 1.000.000 kr., enda komi nýir fjárfestar inn með að minnsta kosti jafnháa fjárhæð. Jafnframt óskar hreppsnefnd eftirnánari upplýsingum um forsendur rekstraráætlunar áranna 2006-2010.”
Fyrirliggjandi tillaga var síðan samþykkt samhljóða.
8. mál. Jarðalög 36. gr., ákvæði um sölu til ábúenda.
Gerð grein fyrir erindi ábúenda að Fremri-Hlíð, Vopnafirði, þar sem óskað er yfirlýsingar sveitarstjórnar til samræmis við ákvæði 36. gr. jarðalaga.
Lögð fram tillaga að yfirlýsingu unnin af sveitarstjóra.
Sveitarstjóri skýrði efni yfirlýsingarinnar. Í framhaldi af málflutningi sveitarstjóra samþykkti hreppsnefnd fyrirliggjandi yfirlýsingu samhljóða.
9. mál. Vatnsveita Vopnafjarðarhrepps, starfsleyfi og skýrsla um innra eftirlit unnin í janúar 2006. (Send í tölvupósti og einnig fundargerð heilbrigðiseftirlits frá 8. mars sl.)
Lögð fram skýrsla um innra eftirlit Vatnsveitu Vopnafjarðarhrepps, dags. í janúar 2006. Jafnframt lögð fram fundargerð Heilbrigðiseftirlits Austurlands, þar sem gerð er grein fyrir starfsleyfum vatnsveitna í opinberum rekstri á Austurlandi. Þar kemur fram að Vatnsveita Vopnafjarðarhrepps hefur fengið fullgilt stafsleyfi á grundvelli umsóknar og skýrslu þeirrar um innra eftilit, sem lögð er fram hér á fundinum til kynningar.
Hreppsnefnd fagnar því að fyrirliggjandi skýrsla hafi verið unnin og að fullgilt starfsleyfi liggi fyrir.
10. mál. Bréf Vopnafjarðarsóknar dags. 15. mars sl., þar sem óskað er eftir styrk til æskulýðsstarfsemi.
Lagt fram bréf sóknarinnar frá 15. mars sl., þar sem óskað er eftir styrk til æskulýðsstarfseminnar.
Hreppsnefnd samþykkti samhljóða að styrkja Vopnafjarðarsókn um 250.000 kr. til æskulýðsstarfssemi.
11. mál Heilbrigðisstofnun Austurlands, hugmyndir um niðurskurð; tillaga að ályktun.
Lögð fram samþykkt stjórnar SSA frá 28. mars sl. varðandi fjárhagsvanda Heilbrigðisstofnunar Austurlands og hugmyndir um niðurskurð í þessum geira.
Fulltrúi Vopnafjarðarhrepps í stjórn SSA gerði nánar grein fyrir málinu. Fundarmenn voru sammála um mikilvægi þess að nægjanlegt fjármagn fengist til reksturs þessa málaflokks. Samþykkt stjórnar SSA er svofelld:
“Stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi lýsir yfir þungum áhyggjum vegna fyrirliggjandi rekstrarfjárvanda Heilbrigðisstofnunar Austurlands.
Heilbrigðisþjónustan ,sem er kostuð og á ábyrgð ríkisvaldsins , er einn af grunnþjónustuþáttum samfélagsins við íbúa sína, jafnt stórra sem smárra.
Stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi beinir því til heilbrigðisráðherra , fjármálaráðherra og þingmanna kjördæmisins að nú þegar verði brugðist við þeim fjárhagsvanda sem Heilbrigðisstofnun Austurlands stendur frammi fyrir.
Tryggja verður nauðsynlega og eðlilega starfsemi stofnunarinnar, í ört vaxandi landshluta ,og þannig eyða þeirri óvissu og þeim ótta sem núverandi ástand kallar fram.“Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps tekur einróma undir fyrirliggjandi samþykkt SSA um þessi mál.
12. mál Ýmsar fundargerðir og erindi:
a) Bréf SSA dags. 10. mars sl., þar sem tilkynnt er um 40. aðalfund SSA sem haldinn verður á Hornafirði dagana 6. og 7. október n. k.
b) Bréf og leiðbeiningar frá Félagsmálaráðuneyti varðandi sveitarstjórnarkosningar, sem fram eiga að fara 27. maí n. k.
Fleira ekki gert, fundið slitið kl. 18.00