Hreppsnefndarfundur fimmtudaginn 9. feb. 2006
kl. 16.00 í félagsheimilinu Miklagarði.
Mætt til fundar: Aðalbjörn Björnsson, Emil Sigurjónsson, Ólafur Ármannsson, Borghildur Sverrisdóttir, Björn Heiðar Sigurbjörnsson, Steindór Sveinsson og Björn Halldórsson.
Einnig mættir: Þorsteinn Steinsson sveitarstjóri og Magnús Már Þorvaldsson, er ritaði fundargerð.
Dagskrá:1. mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 26. jan. sl.
Fundargerð hreppsnefndar frá 26. jan. sl. lögð fram.
Emil Sigurjónsson kvaddi sér hljóðs undir 2. tl. fundargerðarinnar frá 26. janúar sl.
Lagði hann út frá bókun minnihluta sveitarstjórnar Vopnafjarðarhrepps frá 26. janúar sl. í því sambandi lagði hann fram svofellda bókun:
“Að áliti lögfræðings í Félagsmálaráðuneytinu sem undirritaður leitaði til er ekki verið að brjóta lög um lögheimili. Byggir það á því að viðkomandi býr í bráðabirgðahúsnæði sem hann leigir tímabundið með öllum húsbúnaði en er með sitt annað heimili þar sem lögheimili hans er.”Því næst tók oddviti til máls varðandi sama málefni og lagði fram svofellda bókun:
“Ég, undirritaður, lýsi miklum vonbrigðum mínum með bókun tveggja hreppsnefndarfulltrúa við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 26. janúar 2006.
Eftir margra ára setu viðkomandi í sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps, Vopnfirðings í liðlega ½ öld, telja menn sig knúna til að láta slíka bókun frá sér fara. Að hafa slík orð um kjörinn fulltrúa, samstarfsmann og félaga, er ótrúlegt.
Þó svo að lagalegur réttur viðkomandi hefði orkað tvímælis, sem alls ekki er fyrir hendi, tel ég slíka bókun vera fjarri málefnalegri umræðu sem á að eiga sér stað á vettvangi sveitarstjórnar.”Fundargerðin var síðan samþykkt samhljóða.
2. mál. Fundargerð skólanefndar frá 26. jan. sl.
Lögð fram fundargerð skólanefndar frá 26. janúar sl. Sveitarstjóri tók til máls og gerði grein fyrir fyrirspurnum sem fram koma í fundargerðinni og jafnframt skýrði hann bréf sóknarnefndar Hofsprestakalls.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
3. mál. Fundargerðir félagsmálanefndar frá 24. og 2. feb. sl.
Lagðar fram til kynningar.
4. mál. Tilboð í skólaakstur.
Oddviti vék af fundi undir afgreiðslu málsins, tók varaoddviti við fundarstjórn og gaf sveitarstjóra orðið.
Sveitarstjóri skýrði síðan fyrirliggjandi yfirlit um tilboð er bárust í skólaakstur á leiðunum Fjallasíða og Ströndin, en tilboðum skyldi skilað eigi síðar en 1. febrúar sl. Alls bárust tilboð frá fjórum aðilum.
Nokkur umræða átti sér stað um fyriliggjandi tilboð.
Björn Heiðar tók til máls og kvaðst yfirgefa fund undir þessum lið væri þess óskað sökum skyldleika við einn tilboðsgjafa. Gerði Björn Halldórsson slíkt hið sama þar eð um samskonar skyldleika er að ræða. Kaus Björn Halldórsson að sitja hjá við atkvæðagreiðsluna. Nefndarmenn aðrir töldu eigi þörf á að nafnarnir vikju af fundi.
Eftirfarandi tillaga var síðan lögð fram:
“Hreppsnefnd samþykkir að samið verði við lægstbjóðanda.”Tillagan var samþykkt með 5 atkvæðum, einn sat hjá.
Oddviti mætti síðan á fundinn aftur og tók við fundarstjórn.
5. mál. Leikskólagjöld, tillaga um gjaldfrjálsan leikskóla fyrir elsta árganginn; fjögurra tíma vistun.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir hugmyndum um að gefa gjaldfrjálsa fjögurra tíma vistun á leikskólanum fyrir elsta árganginn. Allmikil umræða fór fram um tillöguna.
Eftirfarandi var síðan lagt fram:
“Hreppsnefnd samþykkir að veita gjaldfrjálsa fjögurra tíma leikskólavist fyrir elsta árgang leikskólans frá og með 1. apríl n. k.”Tillagan samþykkt samhljóða.
6. mál. Samþykkt launanefndar sveitarfélaga, varðandi heimildir til sveitarfélaga til þess að samþykkja viðbætur við gildandi kjarasamninga.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir málinu.
Að umræðu lokinni samþykkti hreppsnefnd samhljóða að nýta fyrirliggjandi heimild Launanefndar sveitarfélaga.
7. mál. Þriggja ára áætlun fjárhagsáætlunar Vopnafjarðarhrepps 2007-2009.
-Fyrri umræða-
Lögð fram drög að þriggja ára áætlun A- og B hluta sjóða Vopnafjarðarhrepps fyrir árin 2007-2009. Sveitarstjóri gerði grein fyrir fyrirliggjandi áætlunum og svaraði framkomnum spurningum. Jafnframt lagði hann fram greinargerð með áætlununum þar sem gerð er grein fyrir helstu forsendum og markmiðum sem sett eru fram í áætlununum.
Lagði hann síðan til að fyrirliggjandi áætlunum yrði vísað til síðari umræðu.
Miklar umræður urðu um þróun og stöðu mála sveitarfélagsins sem og fyrirliggjandi gögn.
Málsmeðferð sú er sveitarstjóri lagði til var síðan samþykkt samhljóða.
8. mál. Kjörinn skoðunarmaður, kosning
Sveitarstjóri gerði grein fyrir því að Vilhjálmur Vilhjálmsson hefði óskað eftir því að losna undan því að vera skoðunarmaður ársreikninga sveitarfélagsins, þar sem hann er fluttur úr sveitarfélaginu.
Lagt var til að í hans stað yrði kosin til starfans Helena Leifsdóttir.
Fyrirliggjandi tillaga var samþykkt samhljóða.
9. mál. Ýmis mál og fundargerðir
a) Bréf Vopnafjarðarhrepps frá 6. jan. sl., til Jöfnunarsjóðs Sveitarfélaga, varðandi endurskoðun á úthlutun framlaga.
Lagt fram til kynningar.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17.45