Hreppsnefndarfundur fimmtudaginn 12. jan. 2006 kl. 16.00
í félagsheimilinu Miklagarði.
Mætt til fundar: Aðalbjörn Björnsson, Ólafur Ármannsson, Bragi Vagnsson, Borghildur Sverrisdóttir, G. Inga Geirsdóttir, Björn Halldórsson og Ellert Árnason.
Dagskrá:1. mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 15. des. sl.
Fundargerð heppsnefndar frá 15. des. sl. lögð fram.
Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða.
2. mál. Fundargerð skólanefndar frá 16. nóv. sl.
Fundargerð skólanefndar frá 16. nóv. sl., lögð fram til kynningar.
3. mál. Leiguíbúðir, heimild til sölu
Sveitarstjóri og oddviti gerðu grein fyrir hugmyndum um hugsanlega sölu leiguíbúða í eigu sveitarfélagsins. Gerð var grein fyrir nokkrum aðferðum við sölu íbúðanna, þ. e. a. s. sölu beint til einstaklinga og einnig möguleikar á því að selja eignirnar inn í sérstök félög.
Ennfremur var kynntur útreikningur vegna einnar íbúðar sem sýndi hvernig Varasjóður íbúðalána gæti komið inn miðað við tilteknar forsendur um söluverð.
Í framhaldi var lögð fram svofelld tillaga:
“Hreppsnefnd heimilar sveitarstjóra að auglýsa leiguíbúðir sveitarfélagsins til sölu. Jafnframt að kanna möguleika á því að selja eignirnar beint til sérstaks félags, sem myndi þá framleigja íbúðirnar til sveitarfélagsins og annarra sem á þeim þurfa að halda á hverjum tíma.
Kauptilboð eða samningar í þessum efnum verði síðan lögð fyrir hreppsnefnd til endanlegrar afgreiðslu.”Töluverðar umræður urðu um þessi mál í framhaldi þar sem fundarmenn lýstu sjónarmiðum sínum.
Fyrirliggjandi tillaga var síðan samþykkt samhljóða.
4. mál. Vörubifreiðafélag Vopnafjarðar, verksamningur
Lagður fram verksamningur við Vörubifreiðafélag Vopnafjarðar, ásamt fylgigögnum, varðandi efnisfyllingar og grjótflutninga á hafnarsvæðinu. Samningsfjárhæðin er alls að fjárhæð 8.168 þús. kr.
Hreppsnefnd samþykkir fyrirliggjandi samning samhljóða.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17.15