Hreppsnefndarfundur fimmtudaginn 20. október 2005
kl. 16.00 í félagsheimilinu Miklagarði.
Mætt til fundar: Aðalbjörn Björnsson, Emil Sigurjónsson, Borghildur Sverrisdóttir, Bragi Vagnsson, Björn Heiðar Sigurbjörnsson, Steindór Sveinsson og Ólafur B. Valgeirsson.
Einnig mættir: Þorsteinn Steinsson sveitarstjóri og Magnús Már Þorvaldsson, er ritaði fundargerð.
Dagskrá:
1. mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 6. okt. sl.
Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 6. okt. sl.
Gerði oddviti nánari grein fyrir fyrirkomulagi skólaaksturs m. t. t. ákvörðunar hreppsnefndar að auka akstur skólabifreiða vegna félagsstarfssemi samanber 6. tl. fundargerðarinnar.
Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða.
2. mál. Fundargerð menningarmálanefndar frá 21. sept. sl.
Lögð fram fundargerð menningarmálanefndar frá 21. sept. sl.
Oddviti lýsti yfir ánægju með fundargerðina, hún væri greinargóð þar sem fram koma m. a. gagnlegar upplýsingar um tekjur og gjöld nefndarinnar.
Hreppsnefnd tekur undir bókun menningarmálanefndar í 6. tl. varðandi vef Markaðsstofunnar.
Allmikil umræða átti sér stað um fundargerðina.
Fundargerðin að öðru leyti lögð fram til kynningar.
3. mál. Fundargerðir skólanefndar frá 12. maí, 22. júní og 8. sept. sl.
Fundargerðir skólanefndar frá 12. maí, 22. júní og 8. sept. sl., lagðar fram til kynningar.
4. mál. Bréf Austurlandsskóga frá 4. okt. sl., varðandi nytjaskógasamning á jörðinni Þorbrandsstöðum.
Lagt fram bréf Austurlandsskóga frá 4. okt. sl., varðandi nytjaskógræktarsamning á jörðinni Þorbrandsstöðum, ásamt korti yfir svæði sem koma til greina til skógræktar. Reitirnir eru merktir frá 1-6.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir málinu og skýrði hann út hvern reit fyrir sig. Lagði hann síðan fram svofellda tillögu:
“Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps samþykkir að fela sveitarstjóra að ganga frá nytjaskógasamningi við Austurlandsskóga um reit, sem merktur er nr. 3 ca. 150 ha. að stærð.”
Tillagan því næst borin undir atkvæði.
Samþykkt samhljóða.
5. mál. Bréf sóknarnefndar Hofssóknar frá 3. okt. sl. varðandi styrk til fornleifarannsókna.
Lagt fram erindi sóknarnefndar Hofskirkju frá 3. okt. varðandi styrk til fornleifarannsókna.
Hreppsnefnd tekur jákvætt í erindi sóknarnefndar. Óskað er hins vegar nánari upplýsinga um framgangsmáta slíkra verkefna og hvernig almennt er staðið að fjármögnun slíkra rannsókna.
6. mál. Atvinnumál, vinna að vaxtarsamningi o.fl.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir hugmyndum að nýsköpun atvinnulífs í sjávarútvegi, landbúnaði , mennta- og rannsóknasviði og menningar- og ferðaþjónustusviði. Að þessum hugmyndum hefur verið unnið og hafa þær verið lagðar inn sem verkefni í svokallaðan “Vaxtarsamning fyrir Austurland” sem unnið er að fyrir Austurland í samvinnu sveitarfélaga og Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytisins.
Jafnframt var greint nánar frá hugmyndum, sem í könnun hafa verið um að setja upp fyrirtæki í matvælaiðnaði hér á Vopnafirði.
Hreppsnefnd fagnar fram komnum hugmyndum og felur atvinnumálafulltrúa að vinna að framgangi þessara hugmynda með sveitarstjóra og fá til leiks fulltrúa atvinnulífsins og Þróunarfélags Austurlands.
Hreppsnefnd lýsir aftur á móti yfir áhyggjum sínum vegna hugmynda forsvarsmanna MS/MBF um lokun Mjólkursamlags Vopnfirðinga um mitt næsta ár.
7. mál. Ýmis mál og fundargerðir
a) Fundargerð aðalfundar skólaskrifstofu Austurlands frá 14. okt. sl.
Lögð fram til kynningar
Oddviti óskaði eftir að bætt yrði við tveimur liðum undir 8. og 9. tl. dagskrár. Samþykkt samhljóða.
8. mál: Sameiningarkosningar 08. október sl.
Gerð var grein fyrir niðurstöðum kosninganna, en eins og kunnugt er var sameiningartillaga sveitarfélaganna samþykkt á Bakkafirði með 65,2 % atkv. en 34,6 % voru á móti. Á Vopnafirði var tillagan felld með 62,4 % atkvæða en 35,2 % voru samþykkir. Fimm seðlar voru auðir og einn ógildur.
Kjörsókn var 60 % á Bakkafirði og 48,3 % á Vopnafirði.
9. mál: Lýðheilsustöð: Verkefnið “Allt hefur áhrif, einkum við sjálf!”.
Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps samþykkir formlega þátttöku Vopnafjarðarhrepps í verkefni Lýðheilsustöðvar, “Allt hefur áhrif, einkum við sjálf!”. Nú þegar hefur verkefnavinna verið hrundið af stað og myndaður stýrihópur í sveitarfélaginu. Í stýrhópnum eru fulltrúar frá eftirtöldum aðilum: Grunnskóla, leikskóla, sveitarfélaginu, foreldrafélagi grunnskólans, heilbrigðisstofnun. og ungmenna-félaginu.
Samþykkt samhljóða.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 17.