Hreppsnefnd 28.04.05

28.04 2005 - Fimmtudagur

Hreppsnefndarfundur haldinn fimmtudaginn 28. apríl
2005 kl. 16.00 í félagsheimilinu Miklagarði.
Á fundinn voru mættir Aðalbjörn Björnsson, Emil Sigurjónsson, Björn Halldórsson, Steindór Sveinsson, Bragi Vagnsson, Borghildur Sverrisdóttir og Ólafur Ármannson.
Jafnframt var mættur sveitarstjórinn Þorsteinn Steinsson og ritaði hann fundargerð.
Dagskrá:

1. mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 7. apríl sl.
Fundargerð hreppsnefndar frá 7. apríl sl., lögð fram.
Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.

2. mál Fundargerð byggingar -og skipulagsnefndar frá 20. apríl sl.
Fundargerð byggingar-og skipulagsnefndar frá 20. apríl sl. lögð fram.
Spurst var fyrir um tl. 4 og 5. Mikil umræða varð um hækkun stíflu og þar með hvað hækkun vatnsborðs hefur að segja. Sveitarstjóri svaraði framkomnum fyrirspurnum.
Lýstu menn áhyggjum sínum af hugsanlegu landbroti vegna hækkunar vatnsborðs.
Hreppsnefnd telur nauðsynlegt að strangt eftirlit verði með því hvaða áhrif hækkun vatnsborðs hefur og jafnframt verði óskað umsagnar Umhverfisstofnunar um framkvæmd þessa.
Málsmeðferð þessi samþykkt samhljóða
Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða að öðru leyti.

3. mál. Fundargerðir stjórnar Arnarvatns frá 20. og 22. apríl sl.
Fundargerðr stjórnar Arnarvatns ehf. frá 20. og 22. apríl sl., lagðar fram.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála og kynnti drög að leigusamningi við nýjan rekstraraðila, Bræður og Systur ehf., sem taka mun að sér rekstur Hótel Tanga. Miðað er við að nýr rekstraraðili taki við 1. júní nk.
Allmikil umræða átti sér stað um þessi málefni. Með þessu er rekstri hótelsins komið af hendi Vopnafjarðarhrepps.

4. mál Fundargerðir skólanefndar frá 20. jan., 10. feb. og 7. apríl sl.,
Lagðar fram fundargerðir skólanefndar frá 20. jan. 10. feb. og 7. apríl sl.
Töluverðar umræður urðu um kennslufyrirkomulag á næsta skólaári, samkennslu og fleira.
Spurst var fyrir um hugmyndir um það að skoða frían leikskóla hjá 5 ára börnum í 3. tl. fundargerðar frá 20. jan. sl., og kosningu nýs fulltrúa í skólanefnd sbr. 1. tl. fundargerðar frá 10. feb. og þjónustu skólaskrifstofunnar undir liðnum öðrum málum í fundargerðinni frá 7. apríl.
Miklar umræður urðu um þessi mál
Hreppsnefnd samþykkir að skoða gjaldskrármál 5 ára leikskólabarna í samræmi við hugmyndir skólanefndar.
Fram kom tillaga um að Halldóra Andrésdóttir verði aðalfulltrúi í Skólanefnd.
Tillagan samþykkt samhljóða.
Jafnframt tekur hreppnefnd undir sjónarmið skólanefndar hvað varðar bætta þjónustu skólaskrifstofunnar. Í því sambandi felur hún sveitarstjóra að óska eftir því við Skólaskrifstofuna að hún geri áætlun um það hvernig þjónusta hennar á Vopnafirði verði bætt.

5. mál. Fundargerð félagsmálanefndar frá 31. mars sl.
Lögð fram fundargerð félagsmálanefndar frá 31. mars sl.

6. mál. Fundargerð menningarmálanefndar frá 18. apríl sl.
Lögð fram fundargerð menningarmálanefndar frá 18. apríl sl.

7. mál. Lánamál-tilboð

Lagt fram tilboð Íslenskra Verðbréfa frá 19. apríl sl., í lántöku fyrir Vopnafjarðarhrepp að fjárhæð 25.000 þús. kr.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir málinu og lagði fram svofellda tillögu:

“Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps samþykkir að heimila sveitarstjóra að ganga frá langtímaláni við Verðbréfamiðlun Íslenskara Verðbréfa að fjárhæð allt að 25.000 þús. kr. til 15 ára á grundvelli fyrirliggjandi tilboðsgrunns frá Verðbréfamiðlun Íslenskra Verðbréfa dags. 19. apríl 2005”
Tillagan samþykkt með 5 atkvæðum 2 sátu hjá.


8. mál Samgönguáætlun 2005-2008
Lagt fram bréf Samgöngunefndar Alþingis frá 18. apríl sl., þar sem óskað er umsagnar um samgönguáætlun 2005-2008. Jafnframt lagðar fram upplýsingar um fyrirliggjandi fjárframlög til vega og hafnarframkvæmda sem gert er ráð fyrir samkvæmt þingsályktunartillögu um samgönguáætlun áranna 2005-2008.
Ennfremur lagt fram bréf Vopnafjarðarhrepps til Samgöngunefndar Alþingis dags. 22. apríl sl.
Mjög miklar umræður urðu um þessi mál og þá sérstaklega hvað varðaði leiðaval.. Eftir umræður voru aðilar sammála um að krefja yfirvöld samgöngumála um frekari fjármuni til þessara framkvæmda. Ennfremur var rætt um jarðgöng milli Vopnafjarðar og Héraðs og þýðingu þeirra á byggðaþróun.
Lagt til að samin verði ályktun til stjórnvalda um að lokið verði tengingu Vopnafjarðar við Hringveginn eigi síðar en árið 2010.
Sveitarstjóra og oddvita falið að semja slíka ályktun.


9. mál Fundargerð samgöngunefndar SSA frá 12. apríl sl..
Lögð fram fundargerð Samgöngunefndar SSA frá 12. apríl sl.
Lagt fram til kynningar

10. mál Aðalfundur SSA 2005 verður 15. og 16. sept. nk.
Kjósa þarf fulltrúa Vopnafjarðarhrepps á fundinn. Kjörnir fulltrúar Vopnafjarðarhrepps eru 3. Öllum hreppsnefndarmönnum er að sjálfsögðu boðin þátttaka í aðalfundinum.
Kosniningu fulltrúa frestað milli funda.

Fleira ekki gert og fundi slitið.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir