Hreppsnefndarfundur miðvikudaginn 16. mars 2005
- kl. 16.00 í félagsheimilinu Miklagarði.
Mætt til fundar: Aðalbjörn Björnsson, Emil Sigurjónsson Ólafur Ármannsson, Borghildur Sverrisdóttir, Bragi Vagnsson, Steindór Sveinsson og Björn Halldórsson.
Einnig mættir: Þorsteinn Steinsson sveitarstjóri og Magnús Már Þorvaldsson, er ritaði fundargerð.
Dagskrá:
1. mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 03. mars sl.
Fundargerð hreppsnefndar frá 03. mars sl. lögð fram.
Fundargeðin samþykkt samhljóða.
2. mál. Fjárhagsáætlun Vopnafjarðarhrepps, stofnanana og fyrirtækja fyrir árið 2005
- Síðari umræða -
Sveitarstjóri lagði fram greinargerð þar sem hann gerði grein fyrir helstu forsendum fyrirliggjandi fjárhagsáætlana A- og B- hluta stofnanana og sjóða sveitarfélagsins fyrir árið 2005.
Jafnframt lagði hann fram fram breytingartillögur meirihluta hreppsnefndar við síðari umræðu í hreppsnefnd. Sveitarstjóri gerði grein fyrir breytingatillögunum og hvaða áhrif þær hafa á heildarrekstur samanber meðfylgjandi rekstrar- og framkvæmdayfirlit og í sjóðstreymi fyrir A- og B- hlutasjóði að teknu tilliti til fyrirliggjandi breytinga-tillagna.
Sveitarstjóri lagði síðan til að fyrirliggjandi frumvarp ásamt breytingatillögum yrði samþykkt svo breytt við síðari umræðu fjárhagsáætlunar.
Nefndarmenn þökkuðu framsögu sveitarstjóra og töldu breytta vinnuaðferð við umræðu fjárhagsáætlunar til mikilla bóta. Allmiklar umræður urðu síðan um fyrirliggjandi tillögur og áætlanir stofnana og sjóða sveitarfélagsins og svaraði sveitarstjóri framkomnum fyrirspurnum.
Björn Halldórsson kvaddi sér hljóðs og lagði fram svofellda breytingartillögu við fyrilliggjandi tillögur meirihlutans: “Hlutafé sveitarfélagsins verði 3 mkr. í stað áætlaðra 2.2 mkr. í Sláturfélagi Vopnfirðinga.”
Í framhaldi af þessu var gengið til atkvæða um fyrirliggjandi tillögur. Fyrst var tekin fyrir fyrirliggjandi breytingatillaga frá Birni. Bragi Vagnsson óskaði eftir að sitja hjá við afgreiðslu hennar. Tillagan síðan felld með 4 atkvæðum gegn 2.
Fyriliggjandi breytingartillögur meirihlutans við fjárhagsáætlanir A-B-hluta stofnana sveitarfélagsins, ásamt rekstrar og framkvæmdayfirliti, sjóðstreymi og greinargerð sveitarstjóra síðan borin undir atkvæði. fjárhagsáætlanir A og B hluta stofnanan og sjóða þannig samþykkt með 5 atkvæðum, 2 sátu hjá.
Fleira ekki tekið fyrir, fundi slitið kl. 18.00