Hreppsnefndarfundur fimmtudaginn 13. jan. 2005
kl. 16.00 í félagsheimilinu Miklagarði.
Mætt til fundar: Aðalbjörn Björnsson, Emil Sigurjónsson, Ólafur Ármannsson, Borghildur Sverrisdóttir, Bragi Vagnsson, Björn Halldórsson og Ellert Árnason.
Einnig mættir: Þorsteinn Steinsson sveitarstjóri og Magnús Már Þorvaldsson, er ritaði fundargerð.
Dagskrá:
1. mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 30. des. sl.
Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 30. des. sl.
Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.
2. mál. Fundargerð félagsmálanefndar frá 10. jan. 2005.
Fundargerð félagsmálanefndar frá 10. janúar lögð fram. Oddviti gerði grein fyrir hugmyndum að breyttum reglum um úthlutun leiguíbúða. Mikil umræða átti sér stað um málið ásamt fleiru í fundargerðinni og eftirfarandi samþykkt samhljóða:
“Samþykkt að vinnureglur varðandi leiguíbúðir verði auglýstar sérstaklega”.
Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða.
3. mál. Endanlegar tillögur sveitarstjórnar vegna úthlutunar byggðakvóta.
Lögð fram endanleg tillaga hreppsnefndar um skiptingu byggðakvóta milli skipa og báta eins og samþykkt var að vinna hana á fundi hreppsnefndar 30. des. sl.
Tillagan var unnin í samráði við Fiskistofu og skiptist úthlutaður byggðakvóti samkvæmt því með eftirfarandi hætti á skip samkvæmt tillögunni:
Skrnr. Nafn Þorskígildis % af Úthlutun byggða-
tonn 31.12.04 þorskígildum kvóta í kg.
1279 Brettingur NS 50 2.257.544 73,8 % 15.000
2336 Sunnuberg NS 70 702.167 23,0 % 0
2373 Hólmi NS 56 47.043 1,5 % 9.625
5608 Fuglanes NS 72 6.931 0,2 % 1.418
6837 Edda NS 113 24.440 0,8 % 5.000
6935 Máni NS 34 19.339 0,6 % 3.957
Samtals 3.057.463 35.000
Tillögurnar taka mið af eftirfarandi atriðum:
1) Reglugerð nr. 960 dags. 06. des. 2004
2) Ekkert skip getur fengið meira en 15 tonn
3) Skip stærri en 1000 brúttótonn fá ekkert
4) Skip sé skráð á Vopnafirði við upphaf kvótaárs 2004/2005 og sé það enn 31/12 2004.
5) Úthlutun miðast við að aflahlutdeildir, sem bundnar eru við skip 31. des. 2004, skv. upplýsingum frá Fiskistofu og hvað þær gefa í þorskígildum talið, miðað við heildarkvóta fiskveiðiársins 2004/2005.
6) Allur kvótinn skal veiddur af viðkomandi bátum og hann unnin á Vopnafirði.
Tillögurnar hafa verið sendar sjávarútvegsráðuneytinu til samþykktar og er búist við að ráðuneytið staðfesti þær næstu daga.
4. mál. Slökkviliðsmál. Gerð grein fyrir hugmyndum um endurnýjun samstarfs.
Lagt fram bréf Vopnafjarðarhrepps frá 26. nóv. sl., þar sem sagt er upp samstarfssamningi um brunavarnir milli sveitarfélaganna Þórshafnar-, Skeggjastaða- og Vopnafjarðarhrepps, en samstarf þetta hefur staðið frá árinu 1999.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir því að í framhaldi af ákvörðun hreppsnefndar hefðu samstarfssveitarfélögin óskað eftir viðræðum um hvort mögulegt væri að ganga frá samkomulagi um brunamálin á nýjan leik, með breyttum forsendum. Fulltrúar sveitarfélaganna hafa rætt saman og virðist vera mikill vilji til að koma þessu samstarfi á á nýjan leik.
Miklar umræður urðu á fundinum um þessi mál. Menn voru sammála um að samstarf það sem hefði verið milli sveitarfélaganna um þessi mál hafi leitt til framfara í brunavörnum á svæðinu. Eftirfarandi bókun var lögð fram og hún samþykkt samhljóða:
“Í ljósi framangreindra óska nágrannasveitarfélaganna felur hreppsnefnd sveitarsjóra og slökkviliðsstjóra að ræða við fulltrúa þessara sveitarfélaga um hugsanlegan áframhaldandi samstarfssamning á grundvelli breytts fyrirkomulags, sem liggur fyrir fundinum. Niðurstaða af eða á um þessi efni skal liggja fyrir eigi síðar en 1. feb. n.k.”
5. mál. Hlutabréf í HB Granda h/f., ráðstöfun.
Lagt fram yfirlit yfir hlutafjáreign Vopnafjarðarhrepps í Tanga h/f eins og það var fyrir samruna Tanga h/f inn í HB Granda h/f og hversu mikið Vopnafjarðarhreppur eignaðist að nafnverði í HB Granda við samrunann. Hlutdeild Vopnafjarðarhrepps í HB Granda er 5,66 % af heildar nafnvirði í HB Granda.
Jafnframt lagður fram samningur við Sparisjóðabanka Íslands frá 30. okt. 2003.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir fyrirliggjandi gögnum. Ennfremur velti hann upp mismunandi valkostum á því hvernig mögulegt væri að ljúka samningum við Sparisjóðabankann.
Talsverðar umræður urðu um þessi mál og töldu hreppsnefndarmenn að skoða þyrfti valkosti vel og boðað verði til hreppsnefndarfundar áður en ákvörðun verður tekin um sölu hlutafjár.
Sveitarstjóra falið að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.
6. mál. Gerð grein fyrir vinnu vegna fjárhagsáætlunar 2005.
Gerð var grein fyrir vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2005. Miðað er við að ljúka vinnu við fjárhagsáætlunina í viku 3 og að hún verði lögð fyrir hreppsnefnd á næsta fundi hennar sem áætlaður er í viku 4. Miðað er við að þessi fundur verði nær eingöngu helgaður fjárhagsáætlun og vinnu við hana. Almenn ánægja var meðal fulltrúa um þetta fyrirkomulag og þess vænst að vinnan verði bæði virkari og ánægjulegri fyrir bragðið.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17.30.