Hreppsnefnd 09.12.04

09.12 2004 - Fimmtudagur

Hreppsnefnd 09..12.04
Hreppsnefndarfundur fimmtudaginn 09. des. 2004
- kl. 15.00 í félagsheimilinu Miklagarði.

Mætt til fundar: Aðalbjörn Björnsson, Emil Sigurjónsson, Borghildur Sverrisdóttir, Ellert Árnason, Bragi Vagnsson Ólafur Ármannsson og Ólafur B. Valgeirsson

Einnig mættir: Þorsteinn Steinsson sveitarstjóri og Magnús Már Þorvaldsson, er ritaði fundargerð

Dagskrá:

1. mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 25. nóv. sl.
Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 25. nóv. sl. Undir tl. 2 gerði oddviti grein fyrir viðræðum sveitarfélagsins og HB/Granda hf varðandi staðfestingu á nokkrum mikilvægum atriðum í tengslum við fyrirhugaðan samruna Tanga h/f og HB Granda. Gerði hann ennfremur grein fyrir undirbúningi borgarafundar.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.

2. mál. Fundargerð félagsmálanefndar frá 06. des. 2004
Fundargerð félagsmálanefndar frá 6. des. sl. lögð fram. Nokkur umræða var um gerð á úthlutunarreglum fyrir félagslegar íbúðir sveitarfélagsins.
Fundargerðin síðan samþykkt.

3. mál. Fundargerð skólanefndar frá 30. nóv. sl.
Lögð fram fundargerð skólanefndar frá 30. nóv. sl. All mikil umræða fór fram um ákveðna liði fundargerðarinnar.
Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða.

4. mál. Fundargerð bygginganefndar frá 02. des. sl.
Lögð fram fundargerð bygginganefndar frá 02. des. sl. Nokkur umræða átti sér stað um tl. 6, “Minnsismerki um drukknaða sjómenn”, vel var í hugmyndina tekið og að henni verði unnið áfram.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.

5. mál. Úthlutun byggðakvóta fiskveiðiárið 2004/2005. Lögð fram fréttatilkynning Sjávarútvegsráðuneytisins frá 6. 12. sl. Jafnframt lagðar fram úthlutanir til hinna mismunandi sveitarfélaga, en þar kemur fram að Vopnafjarðarhreppur hefur fengið úthlutað 35 þorskígildistonnum. Unnið verður að því að móta úthlutunarreglur og verða þær lagðar fram til endanlegrar samþykktar í hreppsnefnd.

6. mál. Álagningarprósenta útsvars 2005. Oddviti gerði grein fyrir málinu. Lagt fram bréf, dags. 03. des. sl., frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, þar sem minnt er á að tilkynna þarf álagningarprósentu útsvars fyrir tekjuárið 2005 til fjármálaráðu-neytisins eigi síðar en 15. des. n. k.

Síðan lögð fram svofelld tillaga:
“Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps samþykkir að álagt útsvar tekjuárið 2005 verði 13.03% af útsvarsstofni.”
Samþykkt samhljóða.

Í framhaldi af þessu var fjallað um heimild til handa sveitarstjóra til að inna af hendi nauðsynlegar greiðslur meðan fjárhagsáætlun 2005 hefur ekki verið samþykkt.

Lögð fram svofelld tillaga:
“Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps samþykkir að heimila sveitarstjóra að inna af hendi nauðsynlegar greiðslur úr sveitarsjóði á árinu 2005 meðan fjárhagsáætlun ársins hefur ekki verið samþykkt.”
Samþykkt samhljóða.

7. mál. Bréf Vegagerðarinnar varðandi snjómokstur til og frá Vopnafirði.
Lagt fram bréf Vopnafjarðarhrepps dags. 11. okt. sl, þar sem óskað er eftir því að snjóruðningur verði alla daga vikunar frá Vopnafirði til Egisstaða og Akureyrar, en ekki er mokað á laugardögum. Ennfremur lagt fram svarbréf Vegagerðarinnar frá frá 3. des. sl., þar sem tilkynnt er að snjómokstur verði með sama hætti og verið hefur. Hreppsnefnd samþykkti að vinna áfram að framgangi bættrar þjónustu í snjómokstursmálum.

8. mál. Ýmis mál og fundargerðir

a) SSA bréf dags. 19. nóv. 2004, ásamt fylgigögnum.
Lagt fram til kynningar.
b) Bréf sameiningarnefndar sveitarfélaga frá 03. des. sl.
Lagt fram til kynningar.
c) Drög að úthlutun hreindýraarðs sbr. bréf Umhverfisstofnunar frá 24.nóv. sl.
Lagt fram til kynningar.


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16.10




Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir