Hreppsnefndarfundur fimmtudaginn 2. september 2004.
Mættir Voru Aðalbjörn Björnsson, Emil Sigurjónsson, Björn H. Sigurbjörnsson, Borghildur Sverrisdóttir, Steindór Sveinsson, Björn Halldórsson og Ólafur Ármannson
Dagskrá:
1. mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 13. júlí sl.
Fundargerð hreppsnefndar Vopnafjarðarhrepps frá 13. júlí sl. lögð fram. Smávægileg leiðrétting gerð í tl. 4.
Fundargerðin síðan samþykkt með sjö atkvæðum.
2. mál Fundargerð félagsmálanefndar frá 23. ágúst sl.
Lögð fram fundargerð félagsmálanefndar frá 23. ágúst sl.
Fundargerðin síðan samþykkt.
3. mál Úttekt á stjórnsýslu Vopnafjarðarhrepps.
Ferlagreining og tillaga að nýju skipuriti, starfslýsingar o.fl.
Lögð fram gögn unnin af KPMG., sem lýsa ferlagreiningu erinda, reikninga, starfslýsingum og tillögu að skipulagi fyrir stjórnsýslu Vopnafjarðarhrepps.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir fyrirliggjandi gögnum og því að endanleg skýrsla KPMG mundi liggja fyrir til samþykktar á næsta fundi hreppsnefndar. Oddviti tók síðan til máls og lýsti því að hér væri um fyrsta skref að ræða og væntanlega yrði haldið áfram um fleiri þætti svo sem áætlanagerð o.fl. Töluverðar umræður urðu síðan um fyrirliggjandi gögn og lýstu nefndarmenn almennt ánægju með framvindu mála. Málinu var síðan vísað til afgreiðslu á næsta fundi hreppsnefndar og er ráðgert að fulltrúi KPMG mæti á fundinn og kynni málið.
4. mál. Málefni Tanga h/f, staða mála og bréf minnihluta hreppsnefndar frá 23. ágúst sl.
Lagt fram bréf minnihluta hreppsnefndar Vopnafjarðarhrepps dags. 23. ágúst sl. Jafnframt tekið fyrir bréf framkvæmdastjóra Tanga h/f frá 2. ágúst sl. Oddviti gerði grein fyrir sögunni og stöðu mála eins og hann sér hlutina fyrir sér. Sveitarstjóri og stjórnarformaður Tanga h/f gerðu grein fyrir stöðu mála, fundum og viðtölum sem aðilar hefðu átt við ýmsa aðila á liðnum misserum um samvinnu og hugsanlega samruna við Tanga h/f. Miklar umræður urðu um málið og var það álit hreppsnefndarmanna að áfram skyldi vinna á grundvelli umræðna á fundinum.
5. mál. Bréf Skipulagsstofnunar frá 3. ágúst sl., varðandi tengingu Vopnafjarðar við Hringveg.
Lagt fram bréf Skipulagsstofnunnar frá 3. ágúst sl.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir málinu og viðtali við vegagerðaraðila um framvindu málsins, tímaplön, hvenær fyrirhugað væri að ljúka matsskýrslu og hvenær hún yrði send til Skipulagsstofnunar, en ráðgert er að það verði um áramótin. Úrskurðar hennar er síðan að vænta fyrri hluta næsta árs.
6. mál. Ýmis mál og fundargerðir
a) Samantekt um Mann- og atvinnulífssýninguna”Austurland 2004”. Tekið saman af Magnúsi Má Þorvaldssyni.
Lagt fram til kynnningar.
b) Fundargerð samgöngunefndar SSA frá 18. ágúst sl.
Lögð fram til kynningar.
Oddviti las síðan upp bréf Sigurveigar Róbertsdóttur, þar sem hún segir sig úr hreppsnefnd. Þakkaði hann henni fyrir góð störf. Jafnframt bauð hann Braga Vagnsson velkominn til starfa sem aðalmaðnn í hreppsnefnd í stað Sigurveigar.
Fleira ekki gert og fundi slitið.