Hreppsnefnd 15.04.04

15.04 2004 - Fimmtudagur

Hreppsnefndarfundur haldinn í félagsheimilinu Miklagarði fimmtudaginn 15. apríl kl. 16.00.
Mættir voru Emil Sigurjónsson oddviti, Ólafur Ármannsson, Borghildur Sverrisdóttir, Sigurveig Róbertsdóttir, Björn H. Sigurbjörnsson, Steindór Sveinsson og Björn Halldórsson

Gengið til dagskrár

1. mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 18. mars sl.

Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 18. mars. sl.
Sveitarstjóri hvaddi sér hljóðs undir 7. tl. og lagði fram bréf Vopnafjarðarhrepps til SSA dags. 18. og 29. mars sl., varðandi eflingu sveitarstjórnarstigsins.
Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða.

2. mál Bréf Menningarráðs Austurlands frá 30. mars. sl., varðandi tilnefningu fulltrúa á aðalfund ráðsins 4. maí nk.

Lagt fram bréf frá Menningarráði Austurlands dags. 30. mars. sl., varðandi tilnefningu fulltrúa á aðalfund Menningarráðs Austurlands.
Tillaga kom fram um að aðalmaður verði:
Aðalbjörn Björnsson og
til vara verði Emil Sigurjónsson.
Fyrirliggjandi tillaga samþykkt með 7 atkvæðum.

3. mál. Norðausturvegur, tenging Vopnafjarðar við Hringveg, tillaga að matsáætlun, drög. Lagt fram til kynningar.

Lögð fram drög að tillögu að matsáætlun Norðausturvegar, tengingu Vopnafjarðar við Hringveg, unnin af Vegagerðinni og dags. í mars 2004.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir fyrirliggjandi drögum og tímaáætlunum Vegagerðarinnar. Samkvæmt áætlun hyggst vegagerðin senda matsskýrslu til Skipulagsstofnunar í október nk. og ráðgert er að úrskurður Skipulagsstofnunar liggi fyrir í janúar 2005.
Lögð var fram svofelld tillaga:
“Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps fagnar því að tillaga að matsáætlun (drög) , varðandi tengingu Vopnafjarðar við þjóðveg eitt liggur fyrir. Hreppsnefnd hvetur Vegagerðina til þess að flýta sem unnt er gerð matsskýrslu, þar sem leitast verði við að bera saman kosti og galla þeirra leiða sem til umfjöllunar eru, þannig að unnt verði á faglegum nótum að mæla með einni ákveðinni leið áður en að endanlegum úrskuði Skipulagsstofnunar kemur.”

Nokkrar umræður urðu um fyrirliggjandi tillögu að matsáætlun.

Fyrirliggjandi tillaga var síðan samþykkt með 7 atkv.

Hreppsnefnd mun auglýsa að tillaga þessi liggi frammi á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps.

4. mál. Bréf óbyggðanefndar frá 15. mars 2004, varðandi meðferð óbyggðanefndar á Norðausturlandi.
Nokkur umræða varð um fyrirliggjandi erindi og í framhaldi var lögð fram svofelld tillaga, vegna meðferðar Óbyggðanefndar á Norðausturlandi:

“Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps samþykkir að beita sér fyrir því að koma á fundi með hagsmunaaðilum í sveitarfélaginu, þar sem þessi mál verða kynnt og rætt verði með hvaða hætti þeim verði best komið í formlegan farveg svo sem með ráðningu sameiginlegs lögmanns.
Miðað verði við að fulltrúi Óbyggðanefndar mæti á fundinn”
Talið var heppilegast að slíkum fundi yrði komið á í byrjun júní 2004.

Tillagan síðan samþykkt með 7 atkv.

5. mál. Hótel Tangi, staða mála.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir því að lokið væri gerð útboðs -og verklýsingar fyrir endurbætur á Hótel Tanga, sem unnin hefur verið af Teiknistofunni Óðinstorgi í apríl 2004. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum er ráðgert að ljúka lagfæringum á hótelinu í lok júní nk.

Jafnframt lagt fram tilboð frá RB-rúmum dags. 14. apríl sl. í rúm fyrir hótelið. Alls er miðað við að kaupa 24 rúm á 28.000 kr./stk. með vsk.

Töluverðar umræður urðu um málið og hvernig staðið yrði að útboði verksins.

Björn Halldórsson lagði fram svofellda tillögu:
“Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps samþykkir að fela sveitarsstjóra að leita samninga við verktaka á Vopnafirði um endurbætur á Hótel Tanga á grundvelli fyrirliggjandi útboðs-og verklýsingar.”

Þá lagði oddviti fram eftirfarandi tillögu:
“Hreppsnefnd samþykkir að bjóða út í opnu útboði endurbætur á Hótel Tanga skv. fyrirliggjandi útboðs- og verklýsingu.”

Oddviti bar síðan upp sérstaka tillögu um það að fara í endurbætur og lagfæringar á hótelinu á grundvelli fyrirliggjandi útboðs- og verklýsingar.
Tillagan var samþykkt með 6 atkvæðum.

Síðan var borin upp fyrirliggjandi tillaga Björns Halldórssonar og var hún felld með 5 atkv. gegn 1 atkv.

Því næst var borin upp til atkvæða fyrirliggjandi tillaga oddvita um að fara í opið útboð og var hún samþykkt með 6 atkvæðum.

Hreppsnefnd samþykkir jafnframt með 6 atkvæðum að taka fyrirliggjandi tilboði frá RB-rúmum dags. 14. apríl 2004.

Steindór Sveinsson tók ekki þátt í atkvæðagreiðslu við afgreiðslu alls málsins.





6. mál. Drög að samþykktum fyrir menningarmála og bókasafnsnefnd.

Lögð fram drög að samþykktum fyrir menningarmálanefnd.
Nokkrar umræður urðu um fyrirliggjandi drög að samþykktum fyrir menningarmálanefnd.
Eftir nokkrar lagfæringar voru fyrirliggjandi drög samþykkt með 7 atkv.

7. mál. Lánamál, tillaga að lántökum vegna framkvæmda við höfnina og skuldbreytinga.

Sveitarstjóri lagði fram tilboð í langtímafjármögnun vegna framkvæmda við höfnina og skuldbreytingar á óhagstæðari lánum Vopnafjarðarhrepps. Tilboðið er frá Verðbréfamiðlun Íslenskra Verðbréfa og dags. 15. apríl 2004. Sveitarstjóri lagði síðan fram svofellda tillögu:
“Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps samþykkir að heimila sveitarstjóra að ganga frá langtímaláni við Verðbréfamiðlun Íslenskara Verðbréfa að fjárhæð allt að 60 m. kr. til 15-20 ára á grundvelli fyrirliggjandi tilboðsgrunns frá Verðbréfamiðlun Íslenskra Verðbréfa dags. 15. apríl 2004.”

Tillagan samþykkt með 7 atkv.

8. mál. Ýmsar fundargerðir og erindi
a) Fundargerð Bjarnareyjar ehf. frá 27. mars sl.
Fundargerð Bjarnareyjar lögð fram til kynningar.
b) Fundargerð aðalfundar Markaðsskrifstofu Austurlands frá 30. mars. sl.
Fundargerð aðalfundar Markaðsskrifstofu frá 30. mars sl. lögð fram.
c) Fundargerð Ferðamálasamtaka Austurlands frá 30. mars sl.
Fundargerð aðalfundar ferðamálasamtaka Austurlands frá 30. mars sl. lögð fram.


Fleira ekki gert og fundi slitið.




Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir