Fundur haldinn í Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps föstudaginn 5. mars 2004 kl. 16 í Miklagarði. Mættir : Sigurveig Róbertsdóttir, Borghildur Sverrisdóttir, Ólafur Ármannsson, Emil Sigurjónsson, oddviti, Björn Halldórsson, Steindór Sveinsson og Aðalbjörn Björnsson.
Janframt var mættur sveitarstjórinn Þorsteinn Steinsson. Oddiviti setti fund og bauð fundarmenn velkomna til fundar.
Síðan var gengið til auglýstrar dagskrár.
1. mál. Fundargerð hreppsnefndar Vopnafjarðarhrepps frá 5. feb. sl.
Fundargerð hreppsnefndar frá 5. feb. sl. lögð fram og var hún síðan samþykkt.
2. mál Fundargerð félagsmálanefndar frá 9. feb. sl.
Lögð fram fundargerð félagsmálanefndar frá 9. feb. sl.
Nokkrar umræður urðu um fundargerðina. Fram kom að allmikil eftirspurn er eftir viðbótarlánum. Jafnframt var velt upp hugmyndum um það hvort skoða ætti möguleika á að byggja íbúðir í hinu félagslega íbúðakerfi og ennfremur hvort selja ætti eitthvað af stærri íbúðum sveitarfélagsins.
3. mál. Fundargerð bygginganefndar frá 19. feb. sl.
Lögð fram fundargerð bygginganefndar frá 19. feb. sl. Sveitarstjóri kvaddi sér hljóðs undir 2. tl. “Sjóvörn” og gerði grein fyrir fyrirhugaðri sjóvörn í Framtíðarvík. Töluverðar umræður urðu um málið, sérstaklega endanlega legu sjóvarnarinnar. Að loknum umræðum kom fram svofelld tillaga:”Hreppsnefnd mælir eindregið með að leitast verði við að stækka sandfjöruna í víkinni með því að færa bogann á planinu til suð-austurs, sem nemur um það bil breidd hans”
Tillagan var samþykkt með 5 atkvæðum, tveir sátu hjá.
Fundargerðin síðan samþykkt að öðru leyti með 7 atkv.
4. mál. Fundargerð hafnarnefndar frá 2. mars sl.
Fundargerð hafnarnefndar frá 2. mars sl. lögð fram. Sveitarstjóri kvaddi sér hljóðs undir 3. tl. fundargerðarinnar “ Alþjóðasamþykkt um Siglingavernd”. Gerði hann grein fyrir áhættumati fyrir höfnina og gerð verndaráætlunar. Jafnframt greint frá ISPS –Kóða og SOLAS- samþykktinni.
Hreppsnefnd samþykkir að Vopnafjarðarhöfn undirgangist ákvæði SOLAS-samþykktarinnar og ISPS-kóðans.
Spurt var um kostnað varðandi erindið og taldi sveitarstjóri hann óhjákvæmilega nokkurn.
Hreppsnefnd samþykkir jafnframt tillögu hafnarnefndar um styrk til Björgunarsveitarinnar til kaupa á sjóbjörgunargalla samanber 6. tl fundargerðarinnar.
Fundargerðin var síðan samþykkt með 7 atkv.
5. mál. Bréf Fasteigna- og Skipasölu Austurlands, varðandi forkaupsréttarákvæði á hluta úr jörðinni Hraunfelli.
Lagt fram bréf Fasteigna- og Skipasölu Austurlands frá 18. feb. sl., þar sem spurst er fyrir um forkaupsréttarákvæði, vegna hluta úr eyðijörðinni Hraunfelli, Vopnafjarðarhreppi.
Samþykkt að hafna forkaupsrétti, enda liggi samþykki Jarðanefndar N-Múlasýslu fyrir.
6. mál. Málþing um samgöngur á Austurlandi, 10. mars nk. á vegum SASSA. Lögð fram drög að dagskrá.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir málþingi um samgöngur sem haldið verður á vegum samgöngunefndar SSA 10. mars nk. Fjallað verður um samgöngur í lofti, láði og legi. Hvatti hann til þess að sem flestir sveitarstjórnarmenn kæmu á þingið og kæmu sjónarmiðum sínum um samgöngumál á framfæri.
7. mál. Hótel Tangi- Tilboð í endurnýjun á þaki.
Lagt fram tilboð í endurnýjun á þaki Hótel Tanga frá Mælifelli ehf.
Samþykkt var með 6 atkv. að fela sveitarstjóra að ganga til samninga við Mælifell ehf um verkið. Steindór Sveinsson tók ekki þátt í atkvæðagreiðslu,vegna vanhæfis.
8. mál. Bréf dags. 16. feb. sl. varðandi skipan í starfshóp vegna samvinnu sveitarfélaganna um brunavarnir á Norðaustursvæði Austurlands. Jafnframt fundargerð sveitarstjórnarmanna sömu sveitarfélaga um málefnið frá 5. feb. sl.
Lagt fram bréf frá formanni stýrihóps Norðursvæðis dags. 16. feb. sl., þar sem óskað er eftir að skipaður verði fulltrúi Vopnafjarðarhrepps í starfshóp um sameiginlegar brunavarnir í samræmi við tillögu sem samþykkt var á fundi sveitarstjórnarmanna sem haldinn var 5. feb. sl. á Hótel Héraði.
Samþykkt með 6 atkv. að fulltrúi Vopnafjarðarhrepps verði Þorsteinn Steinsson, sveitarstjóri.
9. mál . Ýmsar fundargerðir og mál.
a) Bréf til aðildarfélaga SSA dags. 4. feb. sl. varðandi átak í eflingu sveitarstjórnarstigsins
b) Fundargerð stýrihóps Norðaustursvæðis frá 25. feb. sl.
Frestað að tilnefna fulltrúa Vopnafjarðarhrepps í starfshóp til næsta fundar sbr. 4. tl. fundargerðarinnar.
c) Fundargerð stjórnar skólaskrifstofu Austurlands frá 16. feb. sl.
d) Fundur samgöngunefndar SSA frá 9. feb. sl.
Fleira ekki gert og fundi slitið.