Hreppsnefnd 20.01.04

20.01 2004 - Þriðjudagur

Fundargerð hreppsnefndar Vopnafjarðarhrepps haldinn í Miklagarði þriðjudaginn 20. janúar 2004 kl. 16.00
Mættir: Sigurveig Róbertsdóttir, Borghildur Sverrisdóttir, Ólafur Ármannsson, Emil Sigurjónsson, oddviti, Björn Halldórsson, Steindór Sveinsson og Aðalbjörn Björnsson. Oddviti setti fund og bauð fundarmenn velkomna til fundar síðan var gengið til augslýstrar dagskrár.

Dagskrá:
1. mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 17. des sl.
Fundargerð hreppsnefndar frá 17. des. sl., lögð fram.
Fundagerðin síðan samþykkt
2. mál Fundargerð skólanefndar frá 8. janúar sl.
Fundargerð skólanefndar frá 8. janúar sl. lögð fram. Sveitarstjóri benti á undir 6. tl. fundargerðarinnar áform skólans um danskennslu. Bar sveitarstjóri upp tillögu. “Hreppsnefnd tekur undir tilmæli skólanefndar um að fella danskennslu inn í stundaskrá og að gera nemendum skylt að mæta í tímana. Kostnaður við kennsluna falli þá á sveitarfélagið”
Tillagan samþykkt með 7 atkv.
Skólastjóra og sveitarstjóra falið að semja við danskennarann um kostnað við kennsluna. Áætlaður kostnaður við kennsluna er 300-350 þús. kr.
Fundargerðin síðan samþykkt með 7 atkv.

3. mál. Fundargerð félagsmálanefndar frá 5. janúar sl.
Fundargerð félagsmálanefndar frá 5. jan. sl. lögð fram og rædd.
Fundagerðin síðan samþykkt með 7 atkv.

4. mál. Fundargerð ferlinefndar Vopnafjarðarhrepps frá 10. des. sl.
Fundargerð ferlinefndar frá 10. des. Sl. lögð fram. Nokkrar umræður urðu um fundargerðina og var samþykkt að reyna að taka mið að því að bæta aðgengi í íþróttahúsinu í samræmi við ábendingar sem fram koma í fundargerðinni og í samvinnu við væntanlega notendur hvað varðar tæki o.fl. Þegar er búið að gera hluta af verkinu.
Fundargerðin samþykkt með 7 atkv.
Oddviti lagði síðan fram eftirfarandi bókun:
“Sveitarstjórn óskar eftir því að farið verði yfir aðgengi að stofnunum sveitarfélagsins með ferlinefnd.”
Samþykkt með 7 atkvæðum.

5. mál. Fjárhagsáætlun Vopnafjarðarhrepps fyrir árið 2004.-Fyrri umræða-
Lagt fram frumvarp að fjárhagsáætlun Vopnafjarðarhrepps fyrir árið 2004. Um er að ræða aðalsjóð og A- og B-hluta sjóði, ásamt yfirliti um sjóðstreymi fyrir hvern sjóð. Ennfremur lagt fram yfirlit yfir helstu framkvæmdir sem fyrihugað er að vinna að á árinu. Sveitarstjóri gerði grein fyrir fyrirliggjandi áætlunum og lagði til að þeim yrði vísað til síðari umræðu. Miklar umræður urðu um fyrirliggjandi áætlanir og svaraði sveitarstjóri framkomnum fyrirspurnum.
Því næst var samþykkt að vísa fyrirliggjandi áætlunum til síðari umræðu.
Samþykkt með 7 atkvæðum.

6. mál. Tillaga um álagningu fasteignagjalda Vopnafjarðarhrepps fyrir árið 2004.
Lögð fram svofelld tillaga að álagningu fasteignagjalda Vopnafjarðarhrepps fyrir árið 2004:
I. Hreppsnefnd Vopnafjarðar samþykkir að fasteignagjöld fyrir árið 2004 verði lögð á sem hér segir:

a) Fasteignaskattur á :
1) Íbúðarhúsnæði og bújarðir. 0,4 % af heildarfasteignamati
2) Atvinnuhúsnæði og annað húsnæði. 1,65 % af heildarfasteignamati

b) Vatnsgjald og holræsagjald:

1. Vatnsgjald nemi 0,28 % af fasteignamati húss.

Aukavatnsgjald skv. mæli verði kr. 16 fyrir hvern rúmmetra vatns.

2. Holræsagjald nemi 0,15 % af heildarfasteignamati.

c) Lóðarleiga
Lóðarleiga verði 2,0 % af fasteignamati allra lóða á Vopnafirði.

Gjalddagar fasteignagjalda 2004 verði 1. feb, 1. mars, 1. apríl, 1. maí, 1. júní, 1. júlí, 1. ágúst og 1. september. Eindagi verði 15 dögum síðar.

Athugið! Ef fjárhæðir til innheimtu eru lágar er þeim ekki dreift á átta gjaldaga, heldur færri.

Hreppsnefnd heimilar með stoð í 4. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga að fella niður fasteignaskatt elli- og örorkulífeyrisþega af eigin íbúð á eftirfarandi hátt. Niðurfelling fasteignaskatts skal vera tekjutengd. Tekjuviðmiðun eru árstekjur 2003 skv. skattframtali 2004:

a) Einstaklingar
Brúttótekjur 2003 allt að kr. 1.502.000 100% niðurfelling
Brúttótekjur 2003 allt að kr. 2.081.000 50 % niðurfelling

b) Hjón:
Brúttótekjur 2003 allt að kr. 2.226.000 100 % niðurfelling
Brúttótekjur 2003 allt að kr. 2.480.000 50 % niðurfelling

Við fráfall maka eða sambýlings skal fasteignaskattur af íbúðarhúsnæði, sem fjölskylda hins látna ( hinnar látnu) á og býr í felldur niður að fullu fyrsta árið en að hálfu annað árið eftir fráfall.
Búi fullvinnandi einstaklingur (eða hjón) inni á heimili ellilífeyrisþega, fellur fasteignaskattur ekki niður.
Hafi veruleg tekjulækkun orðið hjá ellilífeyrisþega milli áranna 2003 og 2004 hefur hreppsnefnd heimild til að taka tillit til þess við niðurfellingu fasteignaskatts, berist umsókn um slíkt.
Sömu reglur skulu gilda um niðurfellingu fasteignaskatts hjá öryrkjum með fulla örorku.
Falli aðstæður ekki undir þær reglur sem að framan greinir skal hreppsnefnd ákveða um lækkun eða niðurfellingu.

II. Hreppsnefnd Vopnafjarðar samþykkir á grundvelli laga nr. 81./ 1988 IV. kafla 22. gr., að leggja á sérstakt sorphirðu og sorpeyðingargjald á hverja íbúð á Vopnafirði á árinu 2004. Gjaldið skal vera kr. 7.500 á íbúð. Innheimta skal gjaldið með fasteignagjöldum og eru gjalddagar þeir sömu.”

Sveitarstjóri gerði grein fyrir tillögunni og lagði til að hún yrði samþykkt.
Tillagan samþykkt með 7 atkv.


7. mál. Sameining slökkviliða á Norðaustursvæði Austurlands, skýrsla Deloitte, fundargerð stýrihóps Norðursvæðis frá 16. 12. sl., ásamt fleiri gögnum.
Lögð fram skýrsla unnin af Deloitte og Touche í des. 2003 um hugsanlega sameiningu slökkviliða á Norðursvæði Austurlands. Jafnframt lögð fram fundargerð stýrihóps Norðursvæðis Austurlands frá 16. des. sl., en í henni er lagt til að vísa skýrslunni til kynningar og afgreiðslu í viðkomandi sveitarstjórnum. Jafnframt lögð fram drög að stofnsamningi.
Miklar umræður urðu um fyrirliggjandi skýrslu. Sveitarstjóri bar síðan upp eftirfarandi tillögu: “Hreppsnefnd telur að hugmyndir um sameiningu slökkviliða á öllu því svæði sem skýrslan leggur til mjög áhugaverðar og mælir með því að unnið verði að því að kynna skýrsluna vel fyrir fulltrúum allra viðkomand sveitarfélaga og að í framhaldi taki sveitarstjórnirnar endanlega afstöðu til hugmynda þeirra um sameiningu sem hér eru kynntar.”
Tillagan samþykkt með 7 atkv.

8. mál. Ýmsar fundargerðir og mál.
a) Hótel Tangi, staða mála.
Lagt fram minnisblað um hugsanleg kaup eða leigu á Hótel Tanga.
Nokkur umræða varð um málið og lýstu fundarmenn áhyggjum af því ef ekki yrði rekin gisti-og veitingaþjónusta hér á staðnum og leita yrði leiða til að halda rekstrinum áfram.
b) Íslandspóstur, staða mála.
Oddvitinn skýrði frá því að verið væri að athuga með rekstur einhverrar stofnunnar sem nýtt gæti húsnæði núverandi Pósts og síma með póstþjónustunni. Nokkur umræða varð um þær hugmyndir sem fram komu.
c) Samband íslenskra Sparisjóða bréf dags. 8. janúar sl., stöða Sparisjóðanna í landinu.
Samþykkt var að oddviti og sveitarstjóri vinni að stuðningsyfirlýsingu til Sambands. Ísl. Sparisjóða við tilverugrundvöll Sparisjóðanna.
d) Fyrirhugaður fundur með þingmönnum Norðausturkjördæmis á Akureyri 26. janúar nk.
Fundarmenn lýstu yfir nauðsyn þess að fá fund með þingmönnunum. Samþykkt að sveitarstjóri ásamt oddvita og varaoddvita fari á fund þingmanna á Akureyri.
e) Fundur samgöngunefndar SSA frá 8. des. sl.
Lagt fram til kynningar.

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið.




Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir