Hreppsnefnd 14.11.03

14.11 2003 - Föstudagur

Fundur haldinn í hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps föstudaginn 14. nóvember 2003 kl. 12.00 í Miklagarði.
Mættir: Sigurveig Róbertsdóttir, Borghildur Sverrisdóttir, Ólafur Ármannsson, Emil Sigurjónsson, oddviti, Björn Halldórsson, Steindór Sveinsson og Aðalbjörn Björnsson. Auk þess var mættur sveitarstjóri Þorsteinn Steinsson.

Oddviti setti fund og bauð fundarmenn velkomna. Síðan var gengið til auglýstrar dagskrár.

Dagskrá:

1. mál Fundargerð hreppsnefndar frá 23. okt. sl.
Fundargerð hreppsnefndar frá 23. október sl. lögð fram .
Fundargerðin síðan samþykkt.

2. mál. Fundargerð bygginganefndar frá 4. nóv. sl. og fundargerð bygginganefndar frá 13. nóv. sl.
Lagðar fram fundargerðir bygginganefndar frá 4. og 13. nóv. sl. Sveitarstjóri gerði grein fyrir fyrirhuguðum breytingum í íþróttahúsi, þar sem koma á fyrir nýjum íþróttatækjum og ljósabekkjum.
Fundargerðirnar síðan samþykktar með 7 atkvæðum.


3. mál. Fundargerð félagsmálanefndar frá 4. nóv. sl.
Fundargerð félagsmálanefndar frá 4. nóv. sl. lögð fram.
Í 5. tl. fundargerðarinnar er fjallað um breytingu á útivistartíma barna á Vopnafirði, þar sem lagt er til að útivistartími barna í 9. og 10. bekk styttist frá því sem nú er. Miðað er við að að breyting þessi taki gildi frá og með næstu áramótum. Nokkrar umræður urðu um þetta mál.
Fundargerðin síðan samþykkt með sjö atkvæðum.

4. mál. Fundargerð hafnarnefndar frá 29. okt. sl.
Lögð fram fundargerð hafnarnefndar frá 29. nóv. sl. Í 2. tl. fundargerðarinnar er fjallað um ráðningu hafnarvarðar. Lögð fram drög að starfslýsingu fyrir hafnarvörð. Sveitarstjóri gerði grein fyrir 2. tl. fundargerðarinnar og hvernig staðið hefði verið að auglýsingu o.fl. Ennfremur fjallað um opið bréf til hreppsnefndarmanna varðandi ráðninguna.
Töluverðar umræður urðu um bæði innihhald viðkomandi bréfs og ráðningu hafnarvarðar.
Tillaga kom fram um að bæta starfslýsinguna í nokkrum atriðum og sérstaklega að styrkja hana að því leyti að viðkomandi starfsmaður starfi með áhaldahúsi þegar lítið er að gera á höfninni. Samþykkt að fela sveitarstjóra, oddvita og varaoddvita að ganga frá starfslýsingunni í samræmi við þetta.
Lögð fram svofelld tillaga frá Birni Halldórssyni: “Sveitarstjórn samþykkir að fresta ráðningu hafnarvarðar og auglýsa starfið á breyttum forsendum”

Tillaga Björns síðan borin upp til atkvæða . Tillagan felld með 5 atkv. gegn einu, einn sat hjá.
Síðan var gengið til atkvæða um tillögu hafnarnefndarinnar sem fram kemur í 2.tl fundargerðar hafnarnefndar um ráðningu hafnavarðar og var hún samþykkt með 5 atkvæðum og 2 sátu hjá.
Síðan var fundargerðin í heild sinni samþykkt með 6 atkvæðum, einn sat hjá.

5. mál. Hamrahlíð 15, kjallari, hugmyndir um ráðstöfun húsnæðisins.
Lögð fram bréf áhugahóps um vinnustofu fyrir aldraða og öryrkja dags. 11. nóv. sl., þar sem óskað er eftir viðræðum við forsvarsmenn sveitarfélagsins um möguleg kaup á kjallara hússins nr. 15 við Hamrahlíð. Jafnaframt lagt fram bréf Heilbrigðisstofnunar Austurlands frá 11. nóv. sl., þar sem óskað er eftir húsnæði til leigu fyrir tannlæknastofu. Sveitarstjóri gerði grein fyrir fyrirliggjandi bréfum og viðræðum sem hann átti við fulltrúa áhugahóps um vinnustofu fyrir aldraða og öryrkja.
Nokkrar umræður urðu um málið og lýstu aðilar viðhorfum sínum varðandi þessi erindi. Almennt töldu hreppsnefndarmenn hugmyndir þessar áhugaverðar. Fram kom eindregin vilji hreppsnefndarmanna um að selja viðkomandi húsnæði undir áðurgreinda starfsemi náist samkomulag um slíkt.
Samþykkt að fela sveitarstjóra, oddvita og varaoddvita að vinna áfram að málinu.

6. mál. Hluthafafundur Tanga h/f 20. nóv. nk.
Hluthafafundur Tanga h/f verður haldinn 20. nóvember nk. kl. 14.00 í félagsheimilinu Miklagarði. Fundur þessi er haldinn í kjölfar þess að tekist hefur að kaupa með aðstoð fjárfesta liðlega 50 % hlut í fyrirtækinu.
Jafnframt lagt fram yfirlit yfir 20 stærstu hluthafa í fyrirtækinu.
Nokkrar umræður fóru fram um það hvaða áherslur yrðu lagðar á hluthafafundinum, skipan stjórnar o. fl.
Samþykkt að fela sveitarstjóra að fara með atkvæði Vopnafjarðarhrepps og Skiphólma á fundinum.


7. mál. Gönguleiðakort, drög að samstarfssamningi.
Gerð grein fyrirhugaðri gerð gönguleiðakorta í samvinnu við Ferðafélag Fljótsdalshéraðs og sveitarfélaga á Fljótsdalshéraði.
Lögð fram kostnaðaráætlun og drög að samstarfssamningi.
Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps samþykkir að taka þátt í verkefninu á þeim forsendum sem fram koma í fyrirliggjandi gögnum.
Samþykkt með 7 atkvæðum

8. mál. Byggðakvóti, bréf Sjávarútvegsráðuneytisins frá 10. nóv. sl.
Lagt fram bréf ráðuneytisins frá 10. nóv. sl., varðandi úthlutun á kvótanum.
Gerð grein fyrir málinu og þeim aðferðum sem mögulegt er að fara varðandi úthlutun kvótans.
Hreppsnefnd samþykkir að að úthluta byggðakvótanum til Tanga h/f, enda verði leitast við að gera sem mest úr kvótanum og því skilyrði að aflinn verði unnin í heimabyggð.

9. mál Drög að erindisbréfi fyrir Magnús Má.

Þessum dagskrárlið frestað.

10. mál. Ýmsar fundargerðir og erindi lögð fram til kynningar:
a) Fundargerð stjórnar Skólaskrifstofu Austurlands frá 29. okt. Sl.
b) Fundargerð stjórnar samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum frá 5. nóv. sl.
c) Fundargerð aðalfundar heilbrigðiseftirlits Austurlands frá 30. okt. Sl.
d) Útskrift úr fundargerðarbók bæjarráðs Seyðisfjarðar, varðandi félags- og skólaþjónustu.


Fleira ekki gert og fundi slitið.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir