Fundur haldinn í hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps mánudaginn 20. október 2003 kl. 12.00 í Miklagarði.
Mættir voru:Aðalbjörn Björnsson, Björn Halldórsson, Borghildur Sverrisdóttir, Emil Sigurjónsson, Ólafur Ármannsson, Sigurveig Róbertsdóttir og Steindór Sveinsson Jafnframt var mættur sveitarstjórinn Þorsteinn Steinsson.
Oddviti setti fund og bauð fundarmenn velkomna til fundar og var síðan gengið til dagskrár.
1. mál Sparisjóðabanki Íslands, samningur.
Lögð fram drög að samningi um framvirk hlutabréfaviðskipti milli Vopnafjarðarhrepps og Sparisjóðabanka Íslands h/f dags. 17. okt. 2003. Sveitarstjóri lagði og fram útreikning dags. 20. okt. 2003 er skýrir gengi og kostnað samningsins. Miðað er við að samningurinn verði undirritaður 30. október nk. og að hann gildi til 31. janúar 2005.
Síðan var lögð fram svofelld tillaga:
“Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps samþykkir að fela sveitarstjóra að ganga frá og undirrita fyrirliggjandi drög að samningi um framvirk hlutabréfaviðskipti við Sparisjóðabanka Íslands h/f (Icebank Ltd.), sem gerir ráð fyrir að Vopnafjarðarhreppur selji bankanum hlutabréf að nafnvirði kr. 120.000.000 á genginu 2,09 í Tanga h/f, þann 30. okt. nk., sem eru í eigu hreppsins. Vopnafjarðarhreppur skuldbindur sig til þess að endurkaupa hlutabréfin þann 31. janúar 2005 að viðbættum 8,4 % vöxtum á samningstímanum. Uppreiknað samningsgengi er þannig 2,3097. Þónustugjald er 1% og greiðist við undirskrift samnings.
Hreppsnefnd er og samþykk því að andvirði sölunnar renni til kaupa á hlutabréfum í Tanga h/f og miðað sé við að Bjarnarey ehf framselji á móti hlutabréf í Tanga h/f að nafnvirði kr. 120.000.000, sem keypt verða af Eskju h/f, beint til Vopnafjarðarhrepps.”
Tillagan var síðan samþykkt með 7 atkvæðum.
Fleira ekki gert og fundi slitið.