|
Fundur haldinn í hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps fimmtudaginn 9. okt. 2003, kl. 12.00 í Miklagarði. Mættir: Halldóra Árnadóttir, Borghildur Sverrisdóttir, Ólafur Ármannsson, Emil Sigurjónsson, oddviti, Ólafur Valgeirsson, Steindór Sveinsson og Aðalbjörn Björnsson. Oddviti setti fund og bauð sérstaklega velkomna til fundar Halldóru Árnadóttur sem situr sinn fyrsta hreppsnefndarfund. Síðan var gengið til auglýstrar dagskrár.
1. mál Fundargerð hreppsnefndar frá 25. sept. sl. Fundargerð hreppsnefndar frá 25. sept. sl. lögð fram. Lítilsháttar lagfæringar gerðar á henni og hún síðan samþykkt.
2. mál. Fundargerð bygginganefndar frá 7. okt. sl. Fundargerð bygginganefndar frá 7. okt. lögð fram. Samþykkt með 7 atkvæðum.
3. mál. Fundargerð Bústofnsleigusjóðs frá 3. okt. sl. Lögð fram fundargerð Bústofnsleigusjóðs frá 3. okt. sl. Hreppsnefnd samþykkir fundargerð Bústofnsleigusjóðs með 7 atkvæðum, enda liggi fyrir samþykki stjórnar Mjólkursamlags Vopnfirðinga fyrir málinu að öðru leyti.
4. mál. Bréf Lánasjóðs sveitarfélaga frá 10. sept. sl. varðndi lántökur. Lagt fram bréf Lánasjóðs Sveitarfélaga frá 10. sept. sl. varðandi lán til Vopnafjarðarhrepps. Í bréfinu er tilkynnt að stjórn Lánasjóðsins hafi samþykkt að veita Vopnafjarðarhrepp 18 m.kr. á venjulegum kjörum sjóðsins og 2 m. kr. af endurlánafé sjóðsins eða samtals 20 m.kr. Lögð fram svofelld tillaga: “Hreppssnefnd samþykkir að taka umrædd lán hjá Lánasjóði Sveitarfélaga í samræmi við úthlutun stjórnar sjóðsins, samtals að fjárhæð 20 m. kr. Af þessari fjárhæð eru 18 m.kr. lánsins í íslenskum krónum með breytilegum vöxtum, nú 4,5 %, tryggt með vísitölu neysluverðs og til allt að 15 ára., og 2 m.kr. eru einnig í íslenskum krónum, en með 5,32 % vöxtum. Í samræmi við úthlutunarreglur sjóðsins samþykkir hreppsnefnd ennfremur að veita tryggingu í tekjum sveitarfélagsins, vegna lántökunnar sbr. 3. mgr. 73. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 og laga um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 35/1966. Sveitarstjóra var falið að ganga frá lántökunum og undirrita nauðsynlega pappíra í því sambandi” Tillagan samþykkt með 7 atkvæðum.
5. mál. Erindi til fjárlaganefndar Alþingis 29. sept. sl. Lagt fram bréf Vopnafjarðarhrepps til Fjárlaganefndar Alþingis frá 29. sept. sl., þar sem óskað er eftir fjárframlögum til hafnarframkvæmda, í Kaupvang, áréttað um mikilvægi flugsamgangna og lögð áhersla á mikilvægi þess að umhverfismati vegna vegaframkvæmda verði flýtt sem kostur er og að fjárveitingar verði til reiðu þegar endanlegt leiðaval liggur fyrir vegna tengingar Vopnafjarðar við þjóðveg eitt. Ennfremur er ítrekað mikilvægi þess að áfram verði unnið að rannsóknum á jarðgöngum milli Vopnafjarðar og Héraðs og að snjómoksur verði alla daga um Vopnafjarðarheiði um fjöllin til Akureyrar og Egilsstaða.
6. mál. Tilboð í frágang á innkeyrslu í bæinn frá Mælifelli ehf. Lögð fram tilboð í gerð innkeyrslu í bæinn, hellulögn o.fl. frá Mælifelli ehf. Alls að fjárhæð 2.856 þús. kr. Hreppsnefnd samþykkir fyrirliggjandi tilboð með 5 atkv. einn sat hjá og Steindór Sveinsson tók ekki þátt í afgreiðslu málsins.
7. mál. Hótel Tangi –staða mála- Hugmyndir að breytingum. Gerð grein fyrir stöðu mála varðandi rekstur á Hótel Tanga. Jafnframt lagðar fram teikningar af hugsanlegum breytingum, sem nauðsynlegar eru ef reka á gisti og veitingastað þarna til frambúðar. Teikningar af hugsanlegum breytingum eru unnar af Teiknistofunni Óðinstorgi. Sveitarstjóri kynnti málið var nokkur umræða um það. Lýstu hreppsnefndarmenn sjónarmiðum sínum hvað þetta málefni varðar.
Síðan var lögð fram svofelld tillaga:
“Hreppsnefnd samþykkir að undirbúin verði stofnun á sérstöku félagi um rekstur og jafnvel kaup á Hótel Tanga. Sveitarstjóra, Oddvita og varaoddvita falið að vinna áfram að málinu í samræmi við þetta.” Tillagan samþykkt með 7 atkv.
8. mál. KPMG- gerð stjórnsýsluúttektar á starfsemi Vopnafjarðarhrepps. Oddviti gerði grein fyrir málinu og að endurskoðunarfyrirtækið KPMG hefði verið fengið til að vinna slíka úttekt fyrir sveitarfélagið.
9. mál. Starfsmannamál Rætt um áframhaldandi ráðningu Magnúsar Más Þorvaldssonar. Sveitarstjóri gerði grein fyrir hugmyndum um skipulag á vinnufyrirkomulagi, ennfremur gerðu oddviti og varaoddviti nánari grein fyrir málinu.
Síðan var lögð fram svofelld tillaga:
“Samþykkt að ráða Magnús Má Þorvaldsson til 1. júní 2006. Ráðningin er með breyttum formerkjum frá því sem verið hefur. Miðað er við að hann verði ráðinn til að sinna m.a.: 1) Atvinnumálum 2) Byggingar -og skipulagsmálum 3) Íþróttamálum, íþróttamannvirkjum 4) Ýmisum öðrum verkefnum sem honum kunna að vera falin. Um starfið verður gerð sérstök starfslýsing þar sem nánar verður kveðið á um útfærslu starfsins. Jafnframt verður starfið nánar staðsett í skipuriti þegar úttekt KPMG liggur fyrir.”
Samþykkt með 7 atkv.
10. mál. Tangi h/f – staða mála og næstu skref. Lagt fram yfirlitsblað um fjármögnun á kaupum á hlutabréfum í Tanga h/f skv, kaupsamningi frá 28. júlí sl., fram til dagsins í dag. Gerð grein fyrir framvindu mála og mögluleikum til þess að ljúka málinu.
11. mál. Fiskmarkaður Vopnafjarðar bréf dags. 17. sept. sl. Lagt fram bréf dags. 17. sept. sl., þar sem spurst er fyrir um aðstöðu til þess að þrífa flutningabíla. Sveitarstjóra falið að skoða málið.
12. mál. Bréf Slysavarnardeildarinnar Sjafnar, varðandi umferðarmál. Erindinu vísað til umfjöllunar í byggingar -og skipulagsnefnd
13. mál. Ýmsar fundargerðir og erindi: a) Fundargerð heilbrigðisnefndar Austurlands frá 29. sept. sl. b) Fundur Ferðamálasamtaka Austurlands frá 1. okt. sl. c) Starfsleyfisdrög vegna Vopn-Fiskur ehf.
Fleira ekki gert og fundi slitið
|