Fundur haldinn í hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps fimmtudaginn 28. ágúst 2003 kl. 16.00 í Miklagarði.
Mættir voru: Sigurveig Róbertsdóttir, Björn Heiðar Sigurbjörnsson, Ólafur Ármannsson, Emil Sigurjónsson, oddviti, Ólafur Valgeirsson, Steindór Sveinsson og Aðalbjörn Björnsson. Jafnframt var mættur sveitarstjórinn Þorsteinn Steinsson.
Oddviti setti fund og bauð fundarmenn velkomna til fundar og var síðan gengið til auglýstrar dagskrár.
1. mál. Fundargerð hreppsnefndar Vopnafjarðarhrepps frá 31. júlí sl.
Fundargerð hreppsnefndar frá 31. júlí sl. lögð fram.
Fundargerðin síðan samþykkt.
2. mál Umsögn um leyfi til reksturs veitingahúss o.fl. í Miklagarði.
Lagt fram bréf sýslumannsins á Seyðisfirði, þar sem óskað er umsagnar Vopnafjarðarhrepps á umsókn um leyfi til reksturs veitingahúss, skemmtistaðar og félagsheimilis í Miklagarði, félagsheimili Vopnfirðinga.
Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps mælir með því að umbeðið leyfi verði veitt.
Undir þessum lið gerði sveitarstjóri grein fyrir vandamálum er skapast við það að rekstur Gistiheimilis Vopnafjarðar er hættur. Húsnæðið er í eigu Byggðastofnunar og hefur stofnunin því með umráð yfir því að gera.
All miklar umræður spunnust um þetta mál og töldu fundarmenn brýnt að sveitarstjórn kæmi að málinu og þannig yrði gengið frá málum við Byggðastofnun að gisti -og veitingastarfsemi yrði rekin áfram í húsinu svo sómi yrði að fyrir Vopnfirðinga.
3. mál. Kaup á eignarhlut Eskju h/f í Tanga h/f, borgarafundur o.fl.
Lagt fram bréf Vopnafjarðarhrepps til Byggðastofnunar dags. 30. júní sl., svarbréf Byggðastofnunar dags. 17. júlí sl., bréf Vopnafjarðarhrepps til Byggðastofnunar dags. 7. ágúst sl., bréf Kaupþings Búnaðarbanka frá 25. ágúst sl. og minnisblað unnið af sveitarstjóra í ágúst 2003, þar sem dregnar eru saman upplýsingar um fyrirhuguð kaup og kaupskyldu skv. kaupsamningum frá 28. júlí sl.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir þeirri vinnu sem fram hefur farið varðandi fjármögnun kaupanna o.fl. Allmiklar umræður urðu um málið.
Ennfremur var rætt um fyrirhugaðan borgarafund um málið sem haldinn verður kl. 20.00 í félagsheimilinu Miklagarði í kvöld.
Jafnframt lögð fram stofnfundargerð frá 15. ágúst sl., vegna stofnunar á nýju hlutafélagi Bjarnarey ehf., tilkynning til Hagstofu Íslands frá sama degi og samþykktir fyrir hið nýja félag. Félagið var stofnað til þess að sjá um kaup á hlutabréfum Eskju h/f í Tanga h/f.
Því næst var lögð fram svofelld tillaga :
“ Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps samþykkir að heimila sveitarstjóra að ganga frá lántöku allt að 50.000 þús. kr. vegna fjármögnunar á kaupum á hlutabréfum Eskju h/f í Tanga h/f, samkvæmt kaupsamningum þar um frá 28. júlí sl. Í þessu sambandi hefur sveitarstjóri fulla heimild til þess að undirrita nauðsynlega samninga er lúta að lántökunni.”
Tillagan samþykkt með 7 atkv.
4. mál. Ársreikningur Vopnafjarðarhrepps og stofnana fyrir árið 2002. - Síðari umræða-
Sveitarstjóri gerði grein fyrir fyrirliggjandi ársreikningum Vopnafjarðarhrepps og stofnana fyrir árið 2002. Ársreikningarnir eru nú í fyrsta sinn settir upp í samræmi við ný reikningsskil íslenskra sveitarfélaga, sem gera ráð fyrir umtalsverðum breytingum á bókhaldi og reikningsskilum sveitarfélaga frá því sem verið hefur og er því erfitt að bera niðurstöður ársreikninga 2002 beint saman við ársreikninga fyrri ára.
Megin breytingin felst í því að reikningsskilum sveitarfélaga er breytt yfir í almenn reikningsskil eins og þau gerast hjá fyrirtækjum. Svokölluð gjaldfærð fjárfesting verður til að mynda ekki lengur til , fastafjármunir verða eignfærðir og afskrifaðir í hlutfalli við áætlaðan endingartíma. Reiknuð verður svokölluð innri leiga og stofnaður sérstakur eignasjóður, sem á og rekur fasteignir sveitarfélagsins. Hluti þess rekstrar sem áður hefur fallið undir rekstur málaflokka sveitarfélagsins verður færður í sérstakar stofnanir. Nefna má fráveitu, vatnsveitu o.fl. auk þessa eru gerðar ýmsar breytingar á á rekstrarliðum innan málaflokka.
Alls liggja fyrir ársreikningar þriggja A-hluta sjóða sem eru aðalsjóður, eignasjóður og þjónustumiðstöð og átta B-hluta sjóða, sem eru hafnarsjóður, vatnsveita, fráveita , félagslegar íbúðir, leiguíbúðir, félagsheimilið, lyfsala og Skiphólmi ehf.
Nokkrar umræður urðu um fyrirliggjandi ársreikninga og svaraði sveitarstjóri framkomnum fyrirspurnum fundarmanna og lagði síðan til að ársreikningarnir yrðu samþykktir.
Fyrirliggjandi ársreikningar Vopnafjarðarhrepps og stofnana síðan samþykktir með 5 atkv, tveir sátu hjá.
5. mál. Hringrás ehf., hreinsunarátak.
Lögð fram drög að samkomulagi við fyrirtækið Hringrás ehf. Um vinnslu, hreinsun og brottflutning á brotajárni og málmum.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir málinu og hvernig hugmyndin væri að standa að málum.
Því næst var svofelld tillaga lögð fram:
“Hreppsnefnd samþykktir að fela sveitarstjóra að ganga frá samningi við fyritækið Hringrás ehf. í samræmi við fyrirliggjandi drög og umræður á fundinum.”
Samþykkt með 7 atkv.
6. mál. Brunavarnir vinnubúða við Kárahnjúka og slökkvitækjaþjónusta.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir hugmyndum um möguleika á auknu umfangi í eldvarnareftirliti og slökkvitækjaþjónustu, sem leiða mun til verulega aukinna tekna. Til þess að mögulegt sé að sinna þessu verður að ráða starfskraft til vinnunnar. Einnig var gerð grein fyrir hugmyndum og vinnu sem fram hefur farið varðandi brunavarnir við Kárahjnúka og hugsanlega aðkomu Brunavarna á Héraði að þeim með tilstyrk Vopnfirðinga.
“Hreppsnefnd samþykkir að ráða starfsmann í starf til þess að mögulegt verði að sinna auknum verkefnum vegna slökkvitækjaþjónustu og eldvarna. Með ráðningunni er jafnframt litið til þess að til staðar sé staðgengill slökkviliðsstjóra, festist hann við úrvinnslu og skipulag á lausnum vegna umsvifa á þessu sviði við Kárahnjúka. Ráðningin tekur mið að því að auknar tekjur fáist inn á móti.”
Samþykkt með 6 atkv. einn sat hjá.
Fleira var ekki tekið fyrir og þakkaði oddviti fundarmönnum góða fundarsetu og sleit síðan fundi.