Hreppsnefnd 27.06.02

27.06 2002 - Fimmtudagur

Hreppsnefnd 27.06.02

Fundur hreppsnefndar Vopnafjarðarhrepps haldinn 27. júní kl. 16.00 í Miklagarði. Á
fundinn voru mættir Björn H. Sigurbjörnsson, Ólafur Ármannsson, Borghildur Sverrisdóttir, Björn Halldórsson, Emil Sigurjónsson, Gunnhildur Inga Geir, og Steindór Sveinsson.
Jafnframt var mættur sveitarstjóri Þorsteinn Steinsson. Oddviti setti fund og bauð nýja hreppsnefndarmenn, sem ekki voru mættir á síðasta fundi, velkomna til starfa og var síðan gengið til auglýstrar dagskrár.

1. mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 10. júní sl. Fundagerðin lögð fram og rædd.
Gerðar smá orðalagsbreytingar í tl. 1 og 2.
Þannig breytt var hún síðan samþykkt.

2. mál. Lánasjóður sveitarfélaga bréf dags. 17. maí sl., varðandi lán úr sjóðnum. Sveitarstjóri gerði grein fyrir málinu og lagði síðan fram svofellda tillögu til hreppsnefndar:
“ Hreppsnefnd Vopnafjarðparhrepps samþykkir að taka lán hjá Lánasjóði Sveitarfélaga í samræmi við úthlutun stjórnar sjóðsins, samtals að fjárhæð 15.000 þús. kr., vegna skuldbreytinga. Lán þetta er í íslenskum krónum með breytilegum vöxtum, nú 4,5 %, tryggt með vísitölu neysluverðs og til allt að 15 ára. Í samræmi við úthlutunarreglur sjóðsins samþykkir hreppsnefnd ennfremur að veita tryggingu í tekjum sveitarfélagsins, vegna lántökunnar sbr. 3. mgr. 73. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Sveitarstjóra er falið að ganga frá lántökunum og undirrita nauðsynlega pappíra í því sambandi.”

Nokkrar umræður urðu um málið og svaraði sveitarstjóri fram komnum fyrirspurnum.
Oddviti bar síðan upp tillöguna og var hún samþykkt samhljóða.

3. mál. Byggðastofnun, erindi Skiphólma, staða mála.
Á fundinn mætti Jónas Rafn Ingasson frá Eignarhaldsfélagi Austurlands og gerði grein fyrir samningum milli Skiphólma og Eignarhaldsfélagsins og svaraði framkomnum spurningum. Ennfremur greindi sveitarstjóri frá málinu og fyrirhuguðum lántökum Skiphólma hjá Byggðastofnun. Jafnframt greindi oddviti frá fyrirhuguðum samningi við Eignarhaldsfélagið.
Lagt fram bréf byggðastofnunar frá 14. maí sl., varðandi þessi mál. Nokkrar umræður urðu um málið.

Lögð fram svofelld tillaga:
“Hreppsnefnd samþykkir að fela framkvæmdastjóra Skiphólma ehf., ásamt stjórn félagsins að ganga frá samningum í samræmi við framlögð gögn þ.e. lánasamning við Byggðastofnun og samninga um hlutafjárkaup milli Skiphólma og Eignarhaldsfélags Austurlands. Ennfremur heimilar hreppsnefnd í þessu sambandi nauðsynlegar tilfærslur á hlutabréfaeign hreppsins í Tanga h/f og hlutabréfum Skiphólma ehf. í Tanga h/f, til þess að mæta kröfum, sem settar eru upp um veðsetningar og þátttöku Skiphólma ehf. í Eignarhaldsfélagi Austurlands, af hendi Byggðastofnunar. “

Spurningar komu fram um fjármögnunina, skuldbindingar Skiphólma og arðgreiðslur. Fengust greinargóð svör við spurningunum.
Umræða var um málið áfram eftir að Jónas Rafn vék fund og tóku fundarmenn til orða hver af öðrum með spurningar og athugasemdir og skýrðust þar ýmis atriði.

Tillagan samþykkt samhljóða með 7 atkv.

4. mál Aðalfundur SSA 22.-23. ágúst nk. Rætt um fyrirkomulag mála varðandi aðalfundinn. Fram kom tillaga um eftirtalda sem fulltrúa Vopnafjarðarhrepps á Aðalfund SSA. Tillaga um 3 aðalmenn og 3 varamenn.
Aðalmenn: Emil Sigurjónsson, Aðalbjörn Björnsson og Steindór Sveinsson. Varamenn:
Sigurveig Róbertsdóttir, Borghildur Sverrisdóttir og Ólafur Valgeirsson

Tillagan samþykkt

5. mál. Samkomulag um rekstur upplýsingamiðstöðvar. Lagt fram til kynningar samkomulag sem gert hefur verið við Handverkshúsið Nema Hvað.

6. mál. Stýrihópur Norðursvæðis, bréf dags. 6. júní sl. Sveitarstjóri gerði grein fyrir stöðu málsins og tillögum um samvinnu sveitarfélagana, sem stýrihópurinn kom fram með í feb. sl.
Tekið fyrir erindi stýrihópsins, varðandi áframhaldandi vinnu í verkefninu mótun á nýju sveitarfélagi á norðursvæði austurlands. Hreppsnefnd Vopnafjarðar hefur samþykkt að vinna eftir tillögu stýrihópsins frá febrúar sl., varðandi samvinnu í ýmsum verkefnum
Hér er lagt til að afgreiðslu þessa erindis verði frestað fram yfir aðalfund SSA.

Samþykkt samhljóða
Fundarmenn óskuðu eftir að fá greinargerðir og niðurstöður faghópa stýrihópsins um framvindu hinna mismunandi verkefna sem fyrirhugað er að vinna sameiginlega að.

7. mál. Verksamningur um gerð þekju á Löndunarbryggju. Lagður fram samningur við Mælifell ehf. um gerð þekju á nýju löndunarbryggjuna. Mælifell ehf. var lægstbjóðandi og er heildarsamningsfjárhæðin 15.607 þús. kr.
Lagt fram til kynningar.

8. mál. Bréf dags 5. júní sl., frá Ástu Hönnu Gunnsteinsdóttur. Tekið fyrir bréf dags. 5. júní sl. frá Ástu Hönnu Gunnsteinsdóttur, þar sem hún býður fram starfskrafta sína til þess að sinna umhverfismálum, ferðamálum, fræðslumálum o.fl.

Lögð fram svofelld tillaga:
“Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps þakkar fyrir þann áhuga sem fram kemur hjá viðkomandi í innsendu erindi.
Vopnafjarðarhreppur er um þessar mundir að ganga frá endurráðningu starfskrafts, sem hefur það að megin starfi að vinna að eftirfylgni í verkefninu “ Vopnfirðingar virkja”. Í þessu felst og heildartillögugerð í því hvernig best verður staðið að því að ná fram þeim hugmyndum sem fram koma í þessari stefnumótunaráætlun fram til ársins 2006. Að svo stöddu er því ekki fyrirhugað að ráða í frekari störf hvað þetta áhrærir.”
Tillagan samþykkt samhljóða með 7 atkv.

9. mál. Sláturfélag Vopnfirðinga bréf dags. 18. júní sl., varðandi hlutafjáraukningu.
Sveitarstjóri skýrði erindið og í framhaldi urðu nokkrar umræður, þar sem erindið var skýrt nánar.
Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps felur sveitarstjóra, oddvita og varaoddvita að ræða við forsvarsmenn Sláturfélags Vopnfirðinga, varðandi fyrirhugaða hlutafjáraukningu í félaginu.
Samþykkt samhljóða með 6 atkv.

10. mál. Kolbeinsgata 55, viðhald utanhúss. Gerð grein fyri útboðsgögnum vegna viðgerðar og málunar á húsinu Kolbeinsgata 55. Samþykkt er að sveitarstjóri og oddviti vinni að málinu með þeim hætti sem kynntur var.


11. mál. Æðarræktarfélag Norðurlands bréf dags 29. maí og 2. júní sl.
Lagt fram til kynningar.

12. mál. FAG., samstarfshópur atvinnulífsins á Austurlandi til undirbúnings á stórframkvæmdum, styrkbeiðni. Lagt fram erindi hópsins frá 4. júní sl.
Samþykkt að hafna styrkbeiðninni.

13. Arthúr Pétursson, umsögn um gistileyfi fyrir gistingu á gistiheimili, gistiskála og gistingu á einkaheimili að Syðri-Vík . Sýslumaðurinn á Seyðisfirði hefur óskað eftir umsögn Vopnafjarðarhrepps um leyfisveitinguna. Vopnafjarðarhreppur mælir með því að leyfið verði veitt og hefur ekkert við það að athuga, enda liggi fyrir samþykki tilskilinna aðila.

14. mál Héraðsskjalasafn Austfirðinga bréf dags. 4. júní sl., kosning fulltrúa í fulltrúaráð safnsins.
Tillaga kom um Ólaf Valgeirsson. Tillagan samþykkt samhljóða.

15. mál Fundargerð launanefndar sveitarfélaga frá 15. maí sl.
Lögð fram til kynningar.

Samþykkt var að 11. mál yrði tekið fyrir sem síðasta mál á dagskrá og verður það því númer 16.

16. mál. Ráðningarsamningur sveitarstjóra o.fl. Þorsteinn Steinsson vék af fundi. Oddviti gerði grein fyrir ráðningasamningi sem gerður hefur verið við sveitarstjóra út það kjörtímabil sem er að hefjast.
Oddviti bar upp samninginn og var hann samþykktur með 5 atkv. 2 sátu hjá.


Fleira ekki gert og þakkaði oddviti fundarmönnum góða fundarsetu, óskaði þeim alls góðs í sumarfríinu og sleit síðan fundi. Gert er ráð fyrir að hreppsnefnd komi aftur saman í ágúst.




Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir