Fundur atvinnumálanefndar Vopnafjarðarhrepps
02. febrúar 2011, haldinn á skrifstofu sveitarstjóra kl. 16.00
Fundur atvinnumálanefndar Vopnafjarðarhrepps haldinn miðvikudaginn 02. febrúar 2011 á skrifstofu sveitarstjóra og hófst kl. 16:00.
Mætt: Björn Halldórsson, Helgi Þorsteinsson, B. Fanney Hauksdóttir, Guðrún Stefánsdóttir og Emil Erlingsson.
Á fundinn mættu auk heldur: Þorsteinn Steinsson, sveitarstjóri, og Magnús Már Þorvaldsson, er ritaði fundargerð.
Formaður, opnaði fund og bauð fundarmenn velkomna. Tilefni fundar var fyrst og síðast umfjöllun um tillögu sveitarfélagsins varðandi byggðakvóta og afgreiðslu málsins í nefndinni.
Dagskrá:
- mál: Fundargerð atvinnumálanefndar frá 25. janúar sl. lögð fram. Tekin fyrir síðar á fundinum undir önnur mál.
- mál: Byggðakvóti - Lögð fram tillaga atvinnumálanefndar varðandi úthlutun byggðakvótans, sem unnin var í framhaldi af góðum fundi fulltrúa sveitarfélagsins með smábátasjómönnum sl. mánudag. Sagði formaður fundinn hafa verið málefnalegan í alla staði og einhugur ríkt um að vinna að sameiginlegri niðurstöðu. Samkomulagið er þríhliða, milli sveitarfélagsins, sjómanna og vinnslu.
Útfærslan er í anda þess sem þegar hafði verið rætt í atvinnumálanefnd, nánari útfærsla tilgreind í drögum að bréfi sveitarstjóra, dags. 01.02.2011, til sjávarútvegsráðuneytis og varðar byggðakvóta Vopnafjarðarhrepps 2010/2011. Þar segir:
Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps hefur fjallað um úthlutun byggðakvóta til Vopnafjarðarhrepps kvótaárið 2010/2011 og eftirstöðvar kvóta frá kvótaárinu 2009/2010.
Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps leggur til að reglugerð nr. 99/2010 frá 17. des. 2010 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2010/2011 gildi fyrir úthlutun byggðakvóta Vopnafjarðar með eftirfarandi viðauka/breytingum:
a) Skipta skal ¼ hluta úthlutaðs byggðakvóta 87,5 þorskígildistonnum eftir brúttótonnum þeirra báta/skipa - og ¼ byggðakvóta 87,5 þorskígildistonnum jafnt á milli þeirra báta/skipa – sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar og sækja um. Eftirstöðvunum sem er ½ úthlutaðs byggðakvóta 175 þorskígildistonnum skal skipt í hlutfalli við landaðan afla í þorskígildum talið sem landað er á Vopnafirði og/eða Bakkafirði á tímabilinu 1. sept. 2009 til 31. ágúst 2010. Hvert 1 tonn landað á Bakkafirði reiknast 0,5 tonn á móti hverju 1 tonni lönduðu á Vopnafirði.
b) Ekkert skip yfir 1.000 brúttótonn fær úthlutun.
c) 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist þannig: Fiskiskipum er skylt að landa á Vopnafirði, til vinnslu, þar eða á Bakkafirði, afla sem nemur í þorskígildistonnum talið jöfnu magni þess aflamarks sem þau fá úthlutað o. s. frv.
Bréfið er undirritað af sveitarstjóra f. h. sveitarstjórnar.
Auk bréfs sveitarstjóra var lagt fram yfirlit um skiptingu byggðakvótans á milli útgerða á Vopnafirði, útreiknað af Fiskistofu.
Samkvæmt tillögu sveitarstjórnar var lagt til á fundinum með smábátasjómönnum, að 20% af veiddum byggðakvóta renni í sérstakan atvinnueflingarsjóð Vopnafjarðarhrepps. Af 350 tonnum sem til úthlutunar eru renni þá andvirði 70 tonna til sveitarfélagsins í þessum tilgangi.
Bar formaður tillöguna upp og var samþykkt samhljóða að hún færi áfram til sveitarstjórnar. Sagði sveitarstjóri endurskoðanda sveitarfélagsins vinna að frekari útfærslu málsins en umræðan á fundinum bar þess merki að nefndarmenn væru einkar sáttir við framgang málsins og niðurstaðan um 20% hlut sveitarfélagsins væri sanngjörn.
- mál: Önnur mál –
Að ósk Fanneyjar var tekin til umræðu fundargerðir atvinnumálanefndar en ólíkt t. a. m. fundagerðum hrepps- og bygginganefndar er fundagerðin skrifuð eftirá á grundvelli minnispunkta ritara. Lagði Fanney til að nefndarmenn læsu hverja fundargerð yfir áður en þær færu fyrir almenning á netinu og/eða fyrir hreppsnefnd. Var samþykkt að svo skuli vera og fá nefndarmenn einn sólarhring til yfirlestrar.
Spurt var um hvort taka megi lítinn hluta byggðakvótans og eyrnamerkja sjóstangaveiði. Var til umræðu í þeim hópi er fundaði með smábátasjómönnum og mun sá sjómaður sem fer með ferðamenn til fiskjar ekki greiða af þeim afla 20% til sveitarfélagsins.
Helgi kvað árið í ár vera Ár skógræktar og velti því upp hvort ekki væri rétt að vopnfirðingar tækju að með einhverjum hætti þátt í ári skógræktar. Björn kvað Else Möller þegar hafa sett sig í samband við fulltrúa Skógræktar ríkisins, Þröst Eysteinsson, um að stofnunin kæmi hér á fræðslu og upplýsti vopnfirðinga um mikilvægi skógræktar í vistkerfi jarðar. Vilji til að vinna að málinu.
Samþykkt að kalla Ólaf Áka hjá Þróunarfélaginu til fundar við sveitarstjóra og formann atv.m.n. til fundar á Vopnafirði n. k. mánu- eða þriðjudag til að ræða næstu skref í málefnum loðnuverkefnisins. Jafnframt samþykkt að fá annan fulltrúa ÞFA hingað ásamt Ástu Þorleifsdóttur, framkvæmdastýru Markaðsstofunnar, til fundar við stjórn ferðaþjónustuklasans. Magnús mun annast málið.
Samþykkt að næsti fundur verði síðar í mánuðinum, eftir 20. þar eð formaður verður á faraldsfæti næstu vikur.
Fleira ekki tekið fyrir, fundi slitið kl. 17:15.