Fundur ferðaþjónustuklasa Vopnafjarðar
27. janúar 2011, haldinn á Hótel Tanga kl. 13:30
Fyrsti fundur ferðaþjónustuklasa, sem finna þarf nafn, haldinn fimmtudaginn 27. janúar 2011 á Hótel Tanga og hófst kl. 13:30.
Mætt til fundar: B. Fanney Hauksdóttir, Guðjón Böðvarsson, Magnús Már Þorvaldsson, Sigríður Bragadóttir og Þórhildur Haraldsdóttir.
Fyrir lá að stjórn hins nýja ferðaþjónustuklasa skyldu skipa Fanney, Guðjón og Magnús – varamenn Sigríður og Þórhildur. Í upphafi skipti stjórnin með sér verkum og var samþykkt að Fanney yrði formaður klasans, Magnús ritari og Guðjón meðstjórnandi/gjaldkeri. Að svo búnu var gengið til dagskrár.
Dagskrá:
- mál: Klasastofnun. Vék nýkjörinn formaður að fyrstu skrefum í starfi hins nýstofnaða klasa. Sagði Hrund Snorradóttur lýst sig reiðubúna til aðstoðar og það mun Magnús Már einnig gera sem og Hólastúdentar. Þróunarfélag Austurlands mun vinna með klasanum verði eftir því leitað, það hefur aldrei staðið á þeim að vinna með vopnfirðingum né öðrum. Nú þegar klasinn hefur verið stofnaður þarf að setjast yfir hvar styrki er að finna. Impra og ÞFA eru aðilar sem rétt er að vera í sambandi við – ritari í samvinnu við stjórn getur sinnt þeim þætti öðrum fremur. Ljóst að fyrsta umsókn er í VAXA, gefst tóm til 10. febrúar að ganga frá henni.
Fanney vill að „Bottom up“-aðferðin við forgangsröðun verkefna verði viðhöfð, þ. e. að grasrótin hafi frumkvæðið og ekki stjórnsýslan. Hljómar það vel í huga þess er þetta ritar því ef eitthvað hefur skort í þessu samfélagi þá er það frumkvæði annarra en sveitarfélagsins. Annars skipta aðferðir engu máli ef verkin eru ekki unnin … innskot MM.
- mál: Verkefni – Stjórnarmenn eru sammála um að styrkumsóknir verði að skoða þegar í upphafi en framhaldið grundvallast eðlilega á því hvað okkur auðnast að afla. Stefnt skuli að ráðningu verkefnusstjóra en áður en að því kemur þarf stjórn, í samvinnu við ferðaþjónustuna, að hafa mótað sér stefnu í gegnum þemafundi. Þar væri þátttakendum skipt í hópa og gætu þeir verið: gönguleiðir – vötn-ár-sjór – sagan, Vesturfari, heiðarbýli, Vopnfirðinga saga – þéttbýli, gönguleiðir (innan þorps og Tanginn), Kaupvangur, atvinna, umhverfi – náttúra/umhverfi etc.
Einhugur um að þau verkefni, hugmyndir, sem eru í gangi verði lokið í stað þess að rjúka í önnur ný – verður það hægt? Safna saman upplýsingum sem til eru og greina. Þörf er að yfirfara t. a. m. allar gönguleiðir, merkja upphaf og endi, betrumbæta upplýsingar o. þ. h. Vopnfirðinga saga komin á rekspöl, þarf að vinna áfram og koma upp fyrstu vörðunni o. fl. Hvað með sjóstöng, er hægt að koma henni á að nýju? Svara þarf þeirri spurningu hvað er einkennandi fyrir Vopnafjörð, sérstaða sveitarfélagsins?
Lagt til að komið yrði á þjónustunámskeið árlega þar sem ferðaþjónustufólki byðist að njóta leiðsagnar fagaðila. Hið besta mál. Fram fór góð umræða um stöðu ferðamála, samstöðuleysi kannski fremur, og þátt sveitarfélagsins en Magnús minnti á að þrátt fyrir allt hefði í gegnum sveitarfélagið farið fram mikil vinna og hún ekki án fjárútláta. Skýra stefnumótun hefði þó skort og má að einhverju kenna um máttleysi geirans.
Fanney býður klasanum/sveitarfélaginu að annast stefnumótunarvinnuna sem BA verkefni sitt við Hólaskóla. Það án endurgjalds en er augljóslega kann það að vera hagur beggja þó góðri tillögu hafði ekki verið endanlega svarað á þessum fundi. Ákvörðun liggi fyrir þegar að næsta fundi kemur. Myndi Fanney byrja strax við upplýsingaöflun og ljúka verkinu vorið 2012.
Í tengslum við þemavinnu var samþykkt að formaður leitaði eftir fulltingi Helga Þorsteinsson og Ólaf Valgeirsson, Hólanema, varðandi þemavinnuna og stýra vinnunni skv. fyrirfram samþykktri aðferðarfræði.
Næsti fundur ákveðinn miðvikudaginn 02. febrúar n. k. kl. 12:00, á Hrísum þar sem í boði verður súpa og brauð. Þá liggi fyrir svör þeirra Helga og Ólafs.
Fleira ekki tekið fyrir, fundi slitið kl. 15:10.