Fundargerð hreppsnefndar 03. febrúar 2011

07.02 2011 - Mánudagur

Hreppsnefndarfundar  haldinn fimmtudaginn 3. febrúar 2011 í félagsheimilinu Miklagarði kl. 16.00.

Á fundinn voru mætt Þórunn Egilsdóttir, Björn Hreinsson, Eyjólfur Sigurðsson, Sigríður Konráðsdóttir, Fjóla Valsdóttir, Guðrún Anna Guðnadóttir og Bárður Jónasson.

Jafnframt var mættur sveitarstjóri, Þorsteinn Steinsson, sem ritaði fundargerð

Áður en fundur hófst óskaði oddviti eftir því að taka fundargerð atvinnumálanefndar frá 2. feb. sl. fyrir undir 3. tl. fundargerðarinnar og var það samþykkt.

Dagskrá:

1. mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 18. jan. sl.

Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 13. janúar sl.

Sveitarstjóri kvaddi sér hljóðs undir 6. tl. fundargerðarinnar varðandi hugsanlega sölu félagslegra eigna og gerði grein fyrir stöðu mála.   Jafnframt kvaddi hann sér hljóðsundir 9.tl. fundargerðarinnar „ Hafnarbyggð 1, yfirtaka/sala.“ Gerði hann grein fyrir stöðu mála hvað það varðaði.   Í máli hans kom meðal annars fram að byrjun uppboðs verður 9. mars nk. Þá verða ekki frekari frestir veittir.   Verði ekkert aðhafst varðandi lausn málsins innan fjögurra vikna frá þeim tíma fer fram lokasala á eigninni; sennilega 4. eða 5. apríl nk.

Fundargerðin síðan borin upp til samþykktar og samþykkt samhljóða.

 

2. mál Fundargerð  bygginganefndar frá 24. janúar sl.

Lögð fram fundargerð byggingarnefndar frá 24. janúar sl.

Fundargerðin samþykkt samhljóða.

3. mál. Fundargerð atvinnumálanefndar frá 25. janúar og 2. feb. sl.

Lögð fram fundargerð atvinnumálanefndar frá 25. janúar og 2. feb. sl.

Gerð var grein fyrir fyrirliggjandi fundargerðum og kom fram í máli oddvita að vanda þyrfti til ritunar fundargerða og yfirlestrar þeirra áður en þær væru sendar út.   Fundarmenn voru samþykkir þessu.   Oddviti óskaði síðan eftir því að fundargerðin frá 2. feb. sl. yrði tekin til afgreiðslu undir 6. tl. fyrirliggjandi dagskrár hreppsnefndar „Byggðakvóti 2010/2011“ og var það samþykkt.

 

4. mál. Samþykktir um meðhöndlun úrgangs á Vopnafirði og gjaldskrá. –Síðari umræða-

Málið var áður tekið fyrir á fundi hreppsnefndar 13. janúar sl.    Milli funda í hreppsnefnd kom allsherjarnefnd sveitarfélagsins saman og fór yfir samþykktirnar og gjaldskrána og gerði nokkrar breytingar sem eru í þeim drögum sem lagðar eru fram hér í dag.

Lagðar fram nýjar samþykktir um meðhöndlun úrgangs á Vopnafirði. Jafnframt lögð fram gjaldskrá fyrir sorphirðu og meðhöndlun úrgangs á Vopnafirði, sem byggir á hinni nýju samþykkt.

Sveitarstjóri gerði grein fyrir fyrirliggjandi gögnum.   Fór hann meðal annars yfir þær helstu breytingar sem gerðar höfðu verið frá því á síðasta fundi.  

Lagði hann síðan til að samþykktirnar og gjaldskráin yrðu samþykktar við síðari umræðu hér í dag.   Jafnframt að honum yrði falið að koma viðkomandi gögnum til umsagnar hjá heilbrigðiseftirliti Austurlands og samþykktar í umhverfisráðuneytinu og auglýsa í B-deild stjórnartíðinda.

Nokkrar umræður urðu um fyrirliggjandi gögn og var lítilsháttar orðalagsbreyting gerð á samþykktinni.   Almennt lýstu fundarmenn ánægju með nýjar samþykktir og lögðu jafnframt fram nokkrar fyrirspurnir sem sveitarstjóri svaraði.

Tillaga sveitarstjóra um að samþykkja fyrirliggjandi gögn var síðan samþykkt samhljóða.

 

 

 

5. mál. Þriggja ára áætlun Vopnafjarðarhrepps A-og B-hluta. –Síðari umræða-.

Fyrir fundinum lá þriggja ára áætlun Vopnafjarðarhrepps A- og B-hluta ásamt greinargerð sveitarstjóra með áætluninni. Áætlunin var tekin til fyrri umræðu á fundi hreppsnefndar 13. jan. sl. og var þá vísað til síðari umræðu í hreppsnefnd.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir fyrirliggjandi gögnum og í máli hans kom m.a. fram að:

„Frá árslokum 2008  hefur sveitarfélagið gengið í gegnum erfiða tíma í peninga- og atvinnumálum eins og raunar raunin hefur verið á hjá sveitarfélögum og fyrirtækjum almennt í landinu.  Hér er gert ráð fyrir því að stöðugra ástand verði í efnahagsástandi þjóðarinnar og að verðbólgudraugurinn hafi að mestu verið kveðinn niður.  Þetta skiptir miklu máli í áætlanagerð og afkomu Sveitarfélaga innan árs og inn í framtíðina, enda þótt áætlun þessi sé gerð á föstu verðlagi ársins 2011 eins og fram hefur komið.  Í áætlun þessari er stigið varlega til jarðar.   Ekki er gert ráð fyrir því að ráðist verði í stórfenglegar fjárfestingar á áætlunartímabilinu.  

Ákvörðun þessi er tekin af tvennum ástæðum, má þar fyrst nefna að framkvæmdir sveitarfélagsins hafa verið mjög miklar fram til áramóta 2008/2009 miðað við heildarfjárhag þess.   Lokið hefur verið við stóra áfanga í skóla- og leikskólamálum og einnig hefur verið lokið við gríðarlega áfanga í uppbyggingu hafnarinnar.   Auk þessa hefur verið unnið að margvíslegum öðrum verkefnum er lúta að því að bæta þjónustu við íbúa sveitarfélagsins og styðja undir aukið öryggi í atvinnumálum til framtíðar.   Í öðru lagi býður sú snarpa kreppa sem við höfum upplifað frá árslokum 2008 ekki upp á væntingar um möguleika sveitarfélaga almennt til þess að afla fjár til stór framkvæmda.  Hér er því valin sú leið að lágmarka fjárfestingar og einbeita sér frekar að því að greiða niður lán með veltufé frá rekstri og einnig með sölu eigna.  Ennfremur mun sveitarfélagið leggjast af krafti á árar við það að efla atvinnustarfsemi í sveitarfélaginu í samvinnu við einstaklinga og fyrirtæki sem vinna að uppbyggingu atvinnulífs.

HB Grandi hefur unnið að verulegri uppbyggingu í fiskiðjuveri sínu á staðnum.   Lokið hefur verið  við nýja fiskimjölsverksmiðju, mjölgeymslur og rafskautahús o.fl..   Ennfremur hefur verið unnið að lagfæringum á vinnsluferlum þ.a. unnt sé að vinna makríl til manneldis, til viðbótar við þá vinnslugetu sem þegar er til staðar á staðnum, en á árinu 2010 veiddist verulegt magn þessa fiskjar og tókst vel til með vinnslu hans og er vonast til að svo verði einnig næstu árin.   Eftir miklu er að slægjast í þessu sambandi, þar sem makríllinn er ákaflega verðmikill fiskur.  Hvernig gengur í þessum geira er að sjálfsögðu háð því hvernig veiðist á hverjum tíma.   Helstu fiskistofnar sem koma inn til vinnslu á Vopnafirði eru síld bæði íslenski stofninn og norskíslenski stofninn, loðna, kolmuni og gulldepla.   Hagvöxtur á Vopnafirði ræðst því af því hvernig veiðist úr þessum stofnum.

Ennfremur eru framkvæmdir í gangi við lagningu nýs vegar frá þjóðvegi eitt og niður til Vopnafjarðar.   Ráðgert er að þessar framkvæmdir vari fram á árið 2013.   Gangi þessi áform eftir má því segja að verklegar framkvæmdir verði nokkrar í sveitarfélaginu þrátt fyrir að framkvæmdir sem kostaðar eru af sveitarfélaginu verði lágmarkaðar.  Í raun má því segja að það sé einmitt lag við þessar aðstæður til þess að draga úr framkvæmdum sveitarfélagsins og einbeita sér að því að lækka skuldir, eins og frekast er kostur.   Eigi vel að takast til í þeim efnum er mikilvægt að stjórnvöldum takist að koma efnahagslífi þjóðarinnar í betra horf en verið hefur á umliðnum misserum.  Ástandi í peningamálum þjóðarinnar á liðnum árum má líkja við fársjúkan einstakling með háan hita og óráði.  Vari slíkt ástand til lengdar getur það því miður leitt til þess mörg hin efnilegustu fyrirtæki landsmanna munu riða til falls.

Með því að draga úr fjárfestingum eins og að framan er lýst er ráðgert að unnt verði að lækka skuldir talsvert á tímabilinu.  Ennfremur er þess vænst að atvinnutækifæri muni aukast á tímabilinu og verða fjölbreytilegri.   Slík þróun er þó ávallt háð því að auðlindirnar gefi og að unnt verði að nýta þær með eðlilegum hætti bæði til lands og sjávar.

 

Í áætluninni sem hér liggur fyrir er ráðgert að verja 30 m. kr. nettó á ári hverju til fjárfestinga.  Á sama tíma er ráðgert að selja eignir að markaðsvirði 40 m.kr. á ári.   Framkvæmdir verða því ekki unnar á árunum 2012-2014 nema því aðeins að seldar verði eignir að sömu upphæð á móti.   Eignir þær sem hér umræðir eru fyrst og fremst hlutabréf sem Vopnafjarðarhreppur á í HB Granda og einnig er rétt að geta þess að í eigu sveitarfélagsins eru tvö lögbýli Þorbrandsstaðir I og II, sem eiga veiðihlunnindi í Hofsá.   Þá má geta þess að sveitarfélagið á einnig hótel og íbúðir sem unnt er að selja.  Í áætluninni er gert ráð fyrir að allt hreint veltufé frá rekstri gangi til niðurgreiðslu lána.  Hreint veltufé frá rekstri er áætlað liðlega 100 m.kr. að meðaltali hvert ár áætlunarinnar þ.e. 2012-2014 eins og sjá má í sjóðstreymi.   Ekki er áætlað að taka nein ný lán.   Reiknaðar afborganir lána miðað við lánamassa sveitarfélagsins eru um 87 m. kr. að meðaltali á hverju ári tímabilsins eða alls um 260 m.kr.   Eins og handbært fé þróast á tímabilinu sést að unnt er að greiða skuldir mun hraðar niður en afborganir núverandi lána segja til um.  Hækkun á handbæru fé á tímabilinu er alls um 127 m.kr.  Séu þessir fjármunir allir nýttir til frekari niðurgreiðslu lána gætu heildarniðurgreiðslur þeirra numið um 387 m.kr. á áætlunartímabilinu.  Þetta mun leiða til þess að sveitarfélagið verður í framtíðinni mun betur í stakk búið til að sinna skyldum sínum við íbúana.    Að sjálfsögðu er það alltaf álitamál hversu hratt á að ganga fram í því að selja eignir og greiða niður skuldir.  Um slíkt verða að sjálfsögðu teknar nákvæmari ákvarðanir við gerð fjárhagsáætlunar hvers árs.  Meginmarkmið eru þó sett fram í þessari áætlun um að selja eignir sem tengjast ekki beint skyldurekstri sveitarfélaga og lækka þannig verulega skuldir og rekstrakostnað til framtíðar.

 

Til þess að ná fram settum markmiðum er gert ráð fyrir að ná fram hagræðingu í rekstri sveitarfélagsins almennt og losna frá rekstrareiningum sem sveitarfélagið hefur af ýmsum ástæðum þurft að taka að sér, en er ekki skyldugt að standa undir.  Slíkar aðgerðir létta á greiðslustöðu hvers árs og minka þörfina fyrir nýjar lántökur.

Jafnframt verður leitað allra leiða til þess að hagræða eins og kostur er í rekstri sveitarfélagsins án þess þó að það komi niður á þjónustu þess.  Rétt þykir þó að geta þess að ávallt er gerð stífari krafa á sveitarfélögin um aukna þjónustu og jafnvel að ákveðin þjónusta verði boðin neytendum án endurgjalds.   Eftirlitsiðnaðurinn er jafnframt með  auknar kröfur um frágang og eftirlit.   Allt þetta leiðir að sjálfsögðu til aukinna útgjalda eða lækkunar á þjónustutekjum, enda þótt góður árangur náist í rekstri almennt.

 

Áætlun sú sem hér liggur fyrir er unnin við meira öryggi en verið hefur á síðustu árum.   Betra er að spá um nánustu framtíð, þegar tekist hefur að ná tangarhaldi á verðbólgunni og peningamálum landsins.  Hér er gert ráð fyrir því að öllum rekstrareiningum sveitarfélagsins verði haldið í góðu horfi.   Grunnrekstur sveitarfélagsins verði tryggður þrátt fyrir það að erfiðir tímar hafa verið frá efnahagshruni þjóðarinnar.  Þetta verður gert með því að gæta aðhalds í rekstri, lágmarka fjárfestingar, selja eignir, sem ekki er nauðsynlegt að eiga, byggja upp atvinnutækifæri og greiða niður skuldir sveitarfélagsins hraðar en nauðsynlegt er miðað við útreiknaðar greiðslur af heildarlánum sveitarfélagsins.   Allar þessar aðgerðir samvegið munu leiða til þess að styrkur sveitarfélagsins mun aukast til þess að sinna skyldum sínum í framtíðinni“.

 

Að lokinni yfirferð sinni lagði sveitarstjóri til að fyrirliggjandi þriggja ára áætlun sveitarfélagsins yrði samþykkt eins og hún liggur fyrir á fundinum hér í dag við síðari umræðu.
Nokkrar umræður urðu um fyrirliggjandi áætlun og gögn og svaraði sveitarstjóri framkomnum fyrirspurnum.
Fyrirliggjandi áætlun ásamt greinargerð var síðan samþykkt samhljóða.

 

6. mál. Byggðakvóti 2010/2011, áður tekið fyrir á fundi hreppsnefndar 22. des sl.

Málið var áður tekið fyrir á fundi hreppsnefndar 22. des. sl. og var þá vísað til tillögugerðar í atvinnumálanefnd.   Undir þessum tl. var tekin fyrir fundargerð atvinnumálanefndar frá 2. febrúar sl., þar sem fram koma tillögur nefndarinnar í þessum efnum.

Jafnframt lögð fram drög að bréfi sveitarstjóra til sjávarútvegs -og landbúnaðarráðuneytisins þar sem óskað er eftir tilteknum breytingum á úthlutunarreglum á báta/skip, sem fram koma í reglugerð nr. 999/2010.   Ennfremur lagt fram skjal sem sýnir úthlutaðan kvóta á báta miðað við að þessar tillögur verði samþykktar.

Oddviti gerði grein fyrir málinu og  fundi sem haldinn var um málið með trillusjómönnum þar sem tillögugerðin var rædd.

Á þeim fundi hafi komið fram að sjómenn, fiskverkandi og Vopnafjarðarhreppur muni gera með sér þríhliða samkomulag, sem taki á verði til sjómanna og sérstöku gjaldi sem sjómenn munu greiða inn í  atvinnueflingarsjóð Vopnfirðinga.  Gjald þetta nemi 20 % af andvirð úthlutaðs byggðakvóta að teknu tilliti til þess söluverðs sem fæst á hverjum tíma.

Talsverðar umræður urðu síðan um fyrirliggjandi tillögu atvinnumálanefndar, þar sem fram kom almenn ánægja fundarmanna með þær tillögur sem hér liggja fyrir.

Hreppsnefnd samþykkti síðan samhljóða fyrirliggjandi tillögu atvinnumálanefndar og felur sveitarstjóra að rita Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu bréf varðandi ákvörðun þessa.

 

7. mál.  Bréf stjórnar foreldrafélags Vopnafjarðarskóla dags. 25. janúar sl., varðandi framhaldsskóladeild á Vopnafirði.

Lagt fram bréf foreldrafélags Vopnafjarðarskóla dags. 25. janúar sl., varðandi framhaldsskóladeild á Vopnafirði.

Oddviti gerði grein fyrir þeirri vinnu sem fram hefur farið í þessum efnum og tók að sér að upplýsa foreldrafélagið um stöðu mála.

 

 

8. mál. Drög að nýjum samningum um menningarmál á Austurlandi.

Lögð fram drög að samningum um samstarf ríkis og sveitarfélaga um menningarmál á Austurlandi.

Oddviti fór yfir þessi mál og taldi að nauðsynlegt væri að gæta þess að hlutur Vopnfirðinga í samningnum yrði ekki fyrir borð borinn.

Samþykkt að fela sveitarstjóra og oddvita að gæta hagsmuna Vopnafjarðar í þessu sambandi.

 

9. mál. Ýmis bréf og fundargerðir

a)   Fundargerð framkvæmdaráðs SSA frá 20. jan. sl.

Lagt fram til kynningar.

b)   Saman- hópurinn, beiðni um styrk.

Ekki hægt að verða við umbeðinni styrkbeiðni í þetta sinn.

c)   Fundargerð stjórnar Héraðsskjalasafns Austfirðinga frá 6. jan. sl.

Lagt fram til kynningar.

 

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17.15





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir