Fundargerð hreppsnefndar 17. febrúar 2011

18.02 2011 - Föstudagur

Hreppsnefndarfundar  haldinn fimmtudaginn 17. febrúar 2011 í félagsheimilinu Miklagarði kl. 16.00.

Á fundinn voru mætt Þórunn Egilsdóttir, Björn Hreinsson, Eyjólfur Sigurðsson, Sigríður Konráðsdóttir, Fjóla Valsdóttir, Guðrún Anna Guðnadóttir og Bárður Jónasson.

Jafnframt var mættur sveitarstjóri, Þorsteinn Steinsson, sem ritaði fundargerð.

Dagskrá:

1. mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 3. febrúar sl.

Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 3. feb. sl.

Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða.

 

2. mál Fundargerð þjónustuhóps aldraðra frá 8. feb. sl.

Lögð fram fundargerð þjónustuhóps aldraðra frá 8. feb. sl. Jafnframt lögð fram bréf þjónustuhópsins varðandi girðingu neðan Sundabúðar og lagfæringar á Sambúð, aðstöðu eldriborgara.  Ennfremur lagt fram bréf þjónustuhópsins frá 14. feb. sl., þar sem fram koma tillögur hópsins um endurbætur og skipulag í aðstöðu eldri borgara.

Lögð fram svofelld tilaga:

„Hreppsnefnd tekur undir tillögur þjónustuhópsins varðandi lagfæringar í Sambúð.  Hreppsnefnd samþykkir að fela sveitarstjóra og oddvita í samráði við eldri borgara að skoða hvernig best verður staðið að þessum breytingum og gera kostnaðaráætlun.

Jafnframt lýsir hreppsnefnd ánægju með fyrirhugað framlag Garðasjóðs kvenfélaganna til girðingar neðan Sundabúðar“

Eftir umræður var fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.

3. mál. Norðausturvegur tenging við þéttbýli Vopnafjarðar.-Staða-

Kynnt var staða málsins, varðandi skipulagsvinnu fornleifavernd o.fl.   Jafnframt var gerð grein fyrir fundi sem oddviti og sveitarstjóri áttu með vegamálastjóra um málið fimmtudaginn 10. feb. sl.  Á fundinum kom fram að vegagerðin og heimamenn hefðu ávallt litið á þennan kafla sem lokaáfanga í því að tengja Vopnafjörð við Hringveginn með nútímalegum hætti.  Kafli þessi hefði ekki verið boðin út með síðasta útboði, sem KNH vinnur nú að, sökum þess að eftir var að ljúka endanlegri skipulagsvinnu, fornleifarannsóknum o.fl., þegar sá kafli var boðin út árinu 2008.

Vegamálastjóri lýsti yfir miklum vilja til þess að ljúka þessu verki þ.a. tengingin nýttist Vopnfirðingum eins og áætlað var.  Taldi hann að heppilegast yrði að vinna að útboðsgögnum í lok þessa árs og bjóða verkið út í upphafi ársins 2012.  Til þess að unnt verði að ráðast í verkið er áætlað að þörf sé að bæta 140-150 m. kr. á samgönguáætlun miðað við þær fjárveitingar sem til staðar eru þar.

 

Sveitarstjóra falið að rita bréf til Innanríkisráðuneytis og Vegagerðarinnar og óska eftir því að yfirvöld samgöngumála sjái til þess að nægir fjármunir verði til staðar til þess að unnt verði að bjóða verkið út í upphafi árs 2012 og ljúka því í beinu framhaldi.

Lögð voru fram til kynningar drög að bréfi sveitarstjóra í þessu sambandi.

Hreppsnefnd samþykkti þessa málsmeðferð samhljóða.

4. mál. Hafnarbyggð 1 hugsanlegar lagfæringar, kostnaðaráætlun

Fjallað var um málið áður á fundi hreppsnefndar 13. janúar sl., og þá samþykkt svofelld málsmeðferð:  „Samþykkt að fela sveitarstjóra og oddvita að vinna áfram að málinu.   Frekari gögn um hugsanlegan kostnað v/ lagfæringa o.fl. yrðu síðan lögð fyrir hreppsnefnd.“

Lögð fram kostnaðaráætlun unnin af Mælifelli ehf., þar sem kostnaður hefur verið metinn við það að lagfæra húsið að utan og setja góðar dyr á það miðað við tvennskonar stærð af dyrum.  Útfærsla 1 er áætluð kosta rétt um 4.9 m.kr. og útfærsla 2 um 4.5 m.kr.   Þetta miðar að því að vöruskemman sé að öðru leyti eins og hún er óeinangruð og nánast einn salur.

 

5. mál. Bréf Ríkislögreglustjóra dags. 9. feb. 2011, varðandi málefni Giftar.

Lagt fram bréf Ríkislögreglustjóra frá 9. feb. sl., varðandi kæru Vopnafjarðarhrepps á málefnum Eignarhaldsfélagsins Samvinnutryggingar og Fjárfestingarfélagsins Giftar ehf. frá 17. feb. 2010.  

Í bréfinu er Vopnafjarðarhreppi tilkynnt að: “ Ríkislögreglustjórinn hefur tekið þá ákvörðun með vísan til 4. mgr. 52. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 að vísa frá kæru Vopnafjarðarhrepps þar sem ekki þykir tilefni til að hefja lögreglurannsókn.

 

Í samræmi við ákvæði 5. og 6. mgr. 52. gr. laga nr. 88/2008, sbr. lög nr. 36/1999, er Vopnafjarðarhreppi bent á að bera má ákvörðun þessa undir Ríkissaksóknara en kæruréttur er innan eins mánaðar frá dagsetningu þessa bréfs.“

Gerð var grein fyrir kæru Vopnafjarðarhrepps frá 17. feb. 2010 og var lagt fram bréf sveitarfélagsins til Ríkissaksóknara frá þessum tíma ásamt greinargerð, sem unnin var af Tryggva Þórhallssyni hdl., starfandi hjá Sambandi ísl. Sveitarfélaga.

Talsverðar umræður urðu á fundinum, þar sem fundarmenn lýstu sjónarmiðum sínum og hvernig best væri að vinna málið áfram.

Samþykkt að vísa málinu til umsagnar hjá Lögfræðideild sambands ísl. Sveitarfélaga varðandi næstu skref.

 

6. mál. Sundabúð, legudeild -Staða mála-

Gerð var grein fyrir fundi 9. feb. sl., með fulltrúum HSA og viðræðunefnd Vopnafjarðarhrepps um framhald reksturs Sundabúðar.   Á fundinum kom fram að HSA mun sjá um reksturinn á þessu ári með svipuðu sniði og verið hefur.  Jafnframt var rætt um mikilvægi þess að koma af stað viðræðum milli sveitarfélagsins og ríkisins um framhald rekstrar og hugsanlega yfirtöku Vopnafjarðarhrepps á rekstrinum, enda fylgi nægjanlegir fjármunir með yfirfærslunni til rekstursins.

Jafnframt var greint frá fundi sem oddviti og sveitarstjóri áttu í Velferðarráðuneytinu 11. feb. sl., með aðstoðarmanni ráðherra og aðstoðarfólki, þar sem óskað var eftir því að ráðuneytið ætti beina aðild að þeim viðræðum sem framundan væru milli sveitarfélagsins, HSA og Velferðarráðuneytisins.  Niðurstaða þess fundar var sú að ráðuneytið ætlaði að skipa sérstakan fulltrúa ráðuneytisins og boða til fyrsta fundar um þessi mál eins fljótt og auðið er.

 

7. mál.  Bréf Berghildar Hauksdóttur, móttekið 3. feb. sl., varðandi stefnumótun í ferðamálum.

Lagt fram bréf Berghildar fá 3. feb. sl., varðandi fyrirhugaða vinnu hennar við stefnumörkun og framtíðarsýn í uppbyggingu ferðamála á Vopnafirði.   Í bréfinu  óskar hún eftir aðstoð sveitarfélagsins varðandi gagnaöflun o.fl., enda muni vinna hennar nýtast sveitarfélaginu við að móta stefnu í ferðamálum inn í framtíðina.

Hreppsnefnd fagnar þeirri vinnu sem bréfritari ætlar að inna af hendi og tekur að sjálfsögðu jákvætt í erindi hennar varðandi gagnaöflun o.fl. enda við það miðað að vinnan geti nýst sveitarfélaginu og öðrum sem byggja vilja upp ferðaiðnað á Vopnafirði.

 

8. mál. Beiðni um að jörðin Hagi verði gerð að lögbýli.   

Tekin fyrir samþykkt Landbúnaðarnefndar frá 26. ágúst sl., þar sem nefndin mælir með því að jörðin Hagi í Vopnafirði verði gerð að lögbýli, enda sé rétt og löglega að þeirri ákvörðun staðið.     Samþykkt Landbúnaðarnefndar er gerð á grundvelli erindis landeigenda frá 5. júlí sl.         

Gerð var grein fyrir málinu.

Í framhaldi staðfesti hreppsnefnd afgreiðslu Landbúnaðarnefndar samhljóða.                 

 

9. mál. Menningarráð Austurlands tillaga Framkvæmdaráðs SSA móttekið 10. feb. sl.

Lögð fram viðbótargögn vegna fyrirhugaðs samnings Menningarráðs Austurlands við menntamálaráðuneytið.   Í upphaflegum tillögum ríkisins varðandi nýjan samning er ráðgert að framlag til Austurlands lækki úr 41 m.kr. í 32,1 m.kr.

Unnið er að því að fá ríkið til þess að hækka framlögin inn í samninginn, þannig að sambærileg fjárhæð verði til skiptanna í almenn menningarframlög eins og verið hefur.

Í nýjum samningi er ráðgert að framlög sveitarfélaganna rúmlega tvöfaldist, þannig yrði framlag Vopnafjarðarhrepps 841 þús. kr. í stað 353 þús. kr. árið 2010.  Eftir talsverðar umræður og vangaveltur um hækkun framlagsins samþykkti hreppsnefnd að framlag Vopnafjarðarhrepps hækki eins og nýr samningur gerir ráð fyrir, enda sé tryggt að sambærilegt höfðagjald verði lagt á hin sveitarfélögin.

Jafnframt þarf að tryggja það að sérstök fjárveiting verði sérmerkt vegna menningarstarfsemi norðan Smjörfjalla í samningi milli sveitarfélaganna um þessi mál.

 

10. mál. Hækkun flugfargjalda innanlands. –Ályktun-

Gerð var grein fyrir fyrirhuguðum hækkunum á flugfargjöldum innanlands, sem fyrirhugað er að taki gildi 1. apríl nk.   Hækkanir þessar hafa veruleg áhrif á ferðakostnað landsbyggðarfólks, til viðbótar við ört hækkandi olíuverð, en sem kunnugt er þarf fólk af landsbyggðinni að sækja mikið af opinberri þjónustu til höfuðborgarinnar og annarra stærri byggðakjarna.

Töluverðar umræður urðu síðan um þessi mál, þar sem fundarmenn lýstu áhyggjum sinum vegna þessara fyrirhuguðu hækkana.  

Í framhaldi var lögð fram svofelld ályktun:  

„Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps mótmælir fyrirhuguðum hækkunum á innanlandsflugi og mælist til þess að innanríkisráðherra sjái til þess að fyrirhuguð hækkun lendingargjalda, fluggjalds flugvallargjalds, farþegaskatts og annarra gjalda verði stillt í hóf og séð til þess að þau þurfi ekki að hækka flugfargjöld innanlands frekar en orðið er.“

Hreppsnefnd samþykkti fyrirliggjandi ályktun samhljóða og felur sveitarstjóra að senda hana til Innanríkisráðherra og samgöngunefndar Alþingis.

 

11. mál.  Ýmis mál og fundargerðir

 

a)       Fundargerð Markaðsstofu Austurlands frá 11. feb. 2011

Lögð fram til kynningar

b)      Góðverk dagsins, bréf dags. 11. feb. sl.-Styrkbeiðni-

Ekki hægt að verða viðbeiðni um styrk.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir