Fundur atvinnumálanefndar 28.02.2011

02.03 2011 - Miðvikudagur

Fundur atvinnumálanefndar Vopnafjarðarhrepps

28. febrúar 2011, haldinn í Miklagarði  kl. 12:00

 

Fundur atvinnumálanefndar Vopnafjarðarhrepps haldinn miðvikudaginn 02. febrúar 2011 á skrifstofu sveitarstjóra og hófst kl. 16:00.

 

Mætt: Björn HalldórssonB. Fanney Hauksdóttir, Guðrún Stefánsdóttir, Emil Erlingsson og Magnús Þór Róbertsson.

 

Á fundinn mættu auk heldur: Þorsteinn Steinsson, sveitarstjóri, og Magnús Már Þorvaldsson, er ritaði fundargerð.

 

Formaður, opnaði fund og bauð fundarmenn velkomna. Tilefni fundar var fyrst og síðast umfjöllun um tillögu sveitarfélagsins varðandi byggðakvóta.

 

 

Dagskrá:

 

  1. mál: Fundargerðir atvinnumálanefndar frá 25. janúar og 02. febrúar sl. lagðar fram.

 

Samþykktar samhljóða.

 

  1. mál: Byggðakvóti  - Fyrir fundi lá bréf sveitarstjóra til sjávarútvegráðuneytisins, dags. 01.02.2011, þar sem gerð er grein fyrir hugmyndum vopnfirðinga um úthlutun byggðakvóta 2010/2011 og eftirstöðvar kvótaársins 2009/2010. Ennfremur svarbréf ráðurneytisins, dags. 24.02.2011, þar sem tekið er til umfjöllunar sérreglur Vopnafjarðarhrepps um úthlutun byggðakvóta fiskveiðiársins 2010/2011. Er óskað frekari rökstuðnings við tillögurnar.

 

Áður en sveitarstjóri mætti til fundar, átti hann fund með forstjóra Toppfisks ásamt Birni Halldórssyni, Jóni Steini Elíassyni, gerði formaður grein fyrir stöðu málsins í ljósi svarsbréf ráðuneytisins. Sem fyrr er stefnt að jöfnunarleið þar sem allir smábátasjómenn á Vopnafirði fá eitthvað í sinn hlut. Skoðaður verði möguleikinn á vinnslu í einhverju formi á Vopnafirði til móts við þá sem þegar er á Bakkafirði. Var fiskmarkaðshúsið skoðað í þessum tilgangi og getur nýst án mikils tilkostnaðar. Er sem fyrr mikill vilji frá hendi sveitarfélagsins að leita leiða að hér geti skapast vettvangur landvinnslu.

 

Þorsteinn kvað ráðuneytismenn hafa fundað um málið og í framhaldi af því hafi það óskað frekari rökstuðnings sveitarfélagsins við hugmyndum sínum og leitaði heimildar að honum ásamt formanni yrði fengið það verkefni. Samþykkt samhljóða.

 

Kom fram í umræðunni að menn hefðu orðið þess áskynja að ekki einungis ætti sér stað umræða meðal smábátasjómanna á Vopnafirði um framkomnar hugmyndir heldur víða um land. Í samhengi við hugmyndir hér heima um afgjald, var nefnt að á Fáskrúðsfirði hefði Loðnuvinnslan greitt verðlagsráðsverð, sem er lágmarksverð hverju sinni.

 

 

  1. mál: Önnur mál – Fanney bar upp þá tillögu að atvinnumálanefnd tilnefndi nýjan fulltrúa nefndarinnar í stjórn Matargatsins, í stað Árna Magnússonar. Var samþykkt samhljóða að Helgi Þorsteinsson yrði fulltrúi nefndarinnar í stjórn Matargatsins.

 

Formaður gerði að umtalsefni atvinnueflingarsjóð þann sem vopnfirðingar hafa stefnt að því að koma á fót, sbr. m. a. afgjald af byggðakvótanum. Sagði hann þörf á að setja niður reglur fyrir sjóðinn sem allra fyrst. Lagði til að atvinnumálanefnd hefði frumkvæði að því og nýtti sér þá vinnu sem þegar var unnin í tengslum við Norð-austurnefnd ríkisstjórnarinnar þó umfangið væri minna nú en þá. Lagt til að Magnús Már fari í þá vinnu og sendi á nefndarmenn og sveitarstjóra. Samþykkt samhljóða.

 

Fanney benti á að skammtíma stefnumótun fyrir ferðaþjónustuna þarf að vinna og lagði til að hún færi fram samfara hinni. Magnús vinnur í samstarfi við Fanney og Helga – samþykkt samhljóða.

 

 

Fleira ekki tekið fyrir, fundi slitið kl. 12:45.

 

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir