Hreppsnefndarfundar var haldinn fimmtudaginn 3. mars 2011 í félagsheimilinu Miklagarði kl. 16.00.
Á fundinn voru mætt Þórunn Egilsdóttir, Björn Hreinsson, Eyjólfur Sigurðsson, Sigríður Konráðsdóttir, Fjóla Valsdóttir, Guðrún Anna Guðnadóttir og Sigríður Bragadóttir.
Jafnframt var mættur sveitarstjóri, Þorsteinn Steinsson, sem ritaði fundargerð
Dagskrá:
1. mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 17. febrúar sl.
Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 17. feb. sl.
Sveitarstjóri kvaddi sér hljóðs undir 5. tl. fundargerðarinnar og lagði fram drög að umsögn lögfræðideildar Sambands ísl. Sveitarfélaga, varðandi málefni Giftar. Gerði hann síða grein fyrir málinu og fyrirliggjandi umsögn, en samkvæmt henni er lagt til að sveitarfélagið nýti sér heimild skv. 5. og 6. mgr. laga nr. 88/2008 um það að vísa málinu til endanlegrar ákvörðunar um það hvort það skuli tekið til rannsóknar eða ei.
Lagði hann síðan til að sveitarstjóra í samráði við lögfræðideild sambandsins yrði falið að koma málum í þennan farveg.
Eftir umræður var fyrirliggjandi tillaga sveitarstjóra samþykkt.
Spurt var um stöðu mála varðandi 4. tl. Hafnarbyggð 1 og var því svarað.
Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða að öðru leyti.
2. mál Fundargerð fræðslunefndar frá 14. feb. sl.
Lögð fram fundargerð fræðslunefndar frá 14. feb. sl. Hreppsnefnd tekur undir vangaveltur í fundargerðinni varðandi orkusparandi aðgerðir og að gott væri að skoða þau mál í heild í sveitarfélaginu.
3. mál. Fundargerð atvinnumálanefndar frá 28. feb. sl.
Lögð fram fundargerð atvinnumálanefndar frá 28. feb. sl. Jafnframt lagt fram bréf sjávarútvegs -og landbúnaðarráðuneytisins frá 24. feb. sl., varðandi rökstuðning með sérreglum Vopnafjarðarhrepps um úthlutun byggðakvóta fiskveiðiársins 2010/2011.
Sveitarstjóri kvaddi sér hljóðs undir 2. tl. fundargerðarinnar og greindi frá því að sér og formanni nefndarinnar hefði verið falið að ganga frá rökstuðningi með tillögunum. Lagði hann einnig fram drög að rökstuðningi þeirra sem sendur verður Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu.
Sveitarstjórn samþykkir málið fyrir sitt leyti.
4. mál. Siðareglur um félagsþjónustu og verklagsreglur
Lagðar fram Siðareglur um félagsþjónustu og verklagsreglur, sem fjallað var um á fundi sameiginlegrar félagsmálanefndar sveitarfélaganna sem standa að félagsþjónustu Fljótsdalshéraðs 21. feb. sl., en óskað var eftir að sveitarstjórnir viðkomandi sveitarfélaga tækju reglurnar til afgreiðslu.
Vopnafjarðarhreppur samþykkir tillögurnar fyrir sitt leyti.
5. mál. Framboð í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga.
Gerð var grein fyrir málinu. Vopnafjarðarhreppur leggur til að stjórn SSA komi með tillögu um fulltrúa Austurlands í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga.
6. mál. Minnka -og refaveiðar. Endurgreiðslur
Lögð fram bréf Umhverfisstofnunar varðandi viðmiðunartaxta ríkisins vegna refa -og minkaveiða uppgjörstímabilið 1. sept. 2009 - 31. ágúst 2010. Jafnframt lagt fram bréf Umhverfisstofnunar frá 11. okt. 2010, þar sem vakin er athygli á því að ekki er gert ráð fyrir neinum fjármunum til endurgreiðslu kostnaðar vegna refaveiða í fjárlagafrumvarpi 2011. Endurgreiðslurnar hafa miðast við það að vera allt að 50 % af verðlaunum samkvæmt töxtum ríkisins. Við skoðun nú hefur komið í ljós að staðan virðist vera sú sama í fjárlögum 2011. Engar fjárveitingar eru til endurgreiðslu vegna refaveiða í sveitarfélögum eins og verið hefur á umliðnum árum. Hlutfall þessara endurgreiðslna frá ríki hefur farið lækkandi á síðustu árum.
Lögð fram svofelld bókun:
„ Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps mótmælir harðlega áformum ríkisvaldsins um að hætta endurgreiðslum til sveitarfélaga, vegna refaveiða eins og ráðgert er í fjárlögum 2011.
Fram að þessu hefur Umhverfisstofnun verið heimilt að endurgreiða sveitarfélögum allt að helming þessa kostnaðar miðað við uppgefinn taxta Umhverfisstofnunar. Á móti hefur sú skylda verið á sveitarfélögunum að halda skýrslur um veiðarnar og senda Umhverfisstofnun.
Með ákvörðun þessari er öllum kostnaði við veiðar og skýrsluhald velt yfir á sveitarfélögin án þátttöku ríkisvaldsins. Þetta er gert þrátt fyrir mikilvægi þess að halda dýrbítum í skefjum og sjá um skýrsluhald í þessum efnum.
Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps hvetur ríkisvaldið til þess að sjá að sér í þessum efnum og veita nægjanlegu fé til þessa málaflokks svo unnt verði halda dýrbít í landinu í skefjum ekki síður hér eftir sem hingað til.“
Talsverðar umræður urðu um fyrirliggjandi bókun þar sem fundarmenn lýstu sjónarmiðum sínum.
fyrirliggjandi tillaga var síðan samþykkt samhljóða.
7. mál. Landsþing sambands ísl. Sveitarfélaga 25. mars. nk.
Lagt fram bréf Sambands ísl. Sveitarfélaga frá 24.
feb. sl., þar sem tilkynnt er um XXV. Landsþing sambands ísl. Sveitarfélaga verður haldið í Reykjavík 25. mars 2011.
Kjörinn fulltrúi Vopnafjarðarhrepps er Þórunn Egilsdóttir, oddviti og til vara Guðrún Anna Guðnadóttir.
Fulltrúi Vopnafjarðarhrepps mun mæta á þingið.
8. mál. Námskeið fyrir sveitarstjórnarmenn 18. mars nk.
Lagt fram bréf Sambands ísl. Sveitarfélaga, þar sem tilkynnt er um námskeið fyrir sveitarstjórnarmenn vorið 2011 í samvinnu við landshlutasamtök sveitarfélaga. Námskeiðið er undir nafninu „Að vera í sveitarstjórn“ og þar verður fjallað um hlutverk og ábyrgð-réttindi og skyldur-Samskipti og samstarf. Námskeiðið verður haldið föstudaginn 19. mars. nk. á Austurlandi.
Öllum sveitarstjórnarmönnum á Vopnafirði verður gefinn kostur á að mæta á námskeiðið.
9. mál. Endurgreiðsla VSK vegna kaupa á slökkvibílum og búnaði.
Lagt fram bréf Sambands ísl. Sveitarfélaga frá 22. feb. sl. varðandi endurgreiðslu á virðisaukaskatti vegna kaupa á slökkviliðsbílum og búnaði. Hér er um undanþágu að ræða frá virðisaukaskattslögum, sem útfært er með þeim hætti að Samband ísl. Sveitarfélaga safnar saman upplýsingum frá sveitarfélögum um greiddan virðisaukaskatt vegna kaupa á búnaði þessum. Á móti eiga að koma fjárveitingar á fjárlögum til þessarar endurgreiðslna. Á liðnum árum hafa fjárframlög á fjárlögum hvergi nærri dugað fyrir umræddum endurgreiðslum.
Endurgreiðslur þessar eru nokkrum árum á eftir áætlun miðað við bréf Sambandsins.
Lögð fram svofelld bókun:
„Vopnafjarðarhreppur hvetur stjórnvöld til þess að nægjanlegu fjármagni verði veitt á fjárlögum á hverjum tíma til þess að standa straum af endurgreiðslum á virðisaukaskatti vegna kaupa á slökkvibílum og búnaði slökkviliða. Hér er um nauðsynleg björgunartæki að ræða og hagsmunir miklir að unnt sé að halda þeim ávallt í góðu lagi. Hugsanlega er tímabært að endurskoða fyrirkomulag þessara endurgreiðslna og láta greiðslur fara fram við framvísun reiknings, þar sem fram kemur að kaupandi hefur greitt uppsettan virðisaukaskatt. Eftir því sem best er vitað á slík aðferð við um kaup björgunartækja fyrir björgunarsveitir landsmanna.“
Eftir nokkrar umræður var fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.
10. mál. Ýmis mál og fundargerðir
a) Fundargerð heilbrigðisnefndar Austurlands frá 16. feb. sl.
Lögð fram til kynningar
b) Fundargerð samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum frá 15. feb. sl.
Lögð fram til kynningar
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17.05