2. fundur Æskulýðs- og íþróttanefndar
Fundurhaldinn í Miklagarði þriðjudaginn 13. júlí kl:17.00
Mætttil fundar eru: Petra Sif Björnsdóttir, Ester Rósa Halldórsdóttir, Linda BjörkStefánsdóttir, Einar Björn Kristbergsson og Júlíanna Þ. Ólafsdóttir.
Dagskrá:
1.mál:Bréf sóknarprests Vopnfirðinga, dags. 08.júlí, þar sem sótt er um styrk vegnafyrirhugaðs leikja-námskeiðs fyrir 6-9 ára börn á Vopnafirði.
Bókun:
Viðfögnum þessu framtaki, en gerum ákveðnar athugasemdir af hverju fjöldatakmarkanireru við
20börn, þar sem börn á þessum aldri eru mun fleiri. Að okkar mati er það algjörtskilyrði fyrir styrkveitingu til námskeiðsins að öllum börnum á þessum aldri standi þettatil boða.
2.mál:Bréf Bjarneyjar Jónsdóttur, dags 28. júní, varðandi heimild til að setja uppblakvöll á tilteknum stað milli Lónabrauta og Fagrahjalla eða á skólalóð.
Bókun:
Beiðnium útiblakvöll fékk góðar undirtektir og teljum við að þetta góða viðbót viðíþróttaiðkun
ásvæðinu. Þegar staðsetning hefur verið ákveðin teljum við mikilvægt að húnverði gerð í fullu samráði við nálæga íbúa.
3.mál: Önnur mál:
Starfæskulýðs- og íþróttafulltrúa:
Nefndin leggur áherslu á að athugað verði með ráðningu æskulýðs- og íþróttafulltrúa.Óskum við eftir afstöðu hreppsnefndar varðandi málið.
Fleiraekki gert og fundi slitið 18.20
F.h.n. Júlíanna Þorbjörg Ólafsdóttir