Fundargerð hreppsnefndar 17. mars 2011

21.03 2011 - Mánudagur

Hreppsnefndarfundur haldinn fimmtudaginn 17. mars 2011  kl. 16.00 í félagsheimilinu Miklagarði.

Mætt voru Þórunn Egilsdóttir, Björn Hreinsson, Eyjólfur Sigurðsson, Sigríður Konráðsdóttir, Fjóla Valsdóttir, Guðrún Anna Guðnadóttir, Sigríður Bragadóttir.

Jafnframt mættur sveitarstjóri, Þorsteinn Steinsson, sem ritaði fundargerð

Dagskrá:

1. mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 3. mars sl.

Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 3. mars sl.

Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða.

2. mál  Fundargerð æskulýðsnefndar  frá 13. júlí  sl.

Lögð fram til kynningar fundargerð æskulýðsnefndar frá 13. júlí sl.

Gerð var grein fyrir því að ekki stæði til aðráða æskulýðsfulltrúa til starfa að svo stöddu.

3. mál. Bréf Innanríkisráðuneytisins dags. 2. mars sl., varðandi vegtengingu Vopnafjarðar við Hringveginn.

Lagt fram svarbréf Innanríkisráðuneytisins dags. 2. mars. sl., sem er svar við bréfi Vopnafjarðarhrepps varðandi nýja tengingu Vopnafjarðar við Hringveginn, þar sem óskað er eftir því að stjórnvöld sjá til þess að nægjanlegt fjármagn verði til staðar fyrir lokakafla tengingarinnar.   Í bréfinu kemur fram að ráðuneytið hefur sent erindið til Vegagerðarinnar til meðferðar við endurskoðun samgönguáætlunar.

Sveitarstjóra falið að ræða við vegamálastjóra um framgang málsins.

 

4. mál.  Þjóðskrá Íslands, bréf dags. 9. mars. sl., varðandi þjóðaratkvæðagreiðslu.

Lagt fram bréf Þjóðskrár Íslands dags. 9. mars sl., þar sem tilkynnt er að ákveðið hefur verið að þjóðaratkvæðagreiðsla skuli fara fram laugardaginn 9. apríl nk.    Í bréfinu kemur fram að menn verða á kjörskrá í því sveitarfélagi, sem þeir eru skráðir með lögheimili laugardaginn 19. mars  nk.

Á grundvelli þess vinnur þjóðskrá kjörskrárstofn fyrir sveitarfélögin.

Jafnframt lagt fram bréf frá Innanríkisráðuneytinu, þar sem tilkynnt er um það hvernig greiðslum til sveitarfélaganna verður háttað vegan kosninganna.

Samþykkt að fela oddvita og sveitarstjóra að kanna með það hvort heppilegt sé að kosið verði í grunnskólanum í stað félagsheimilisins.

 

5. mál. Ríkissaksóknari bréf dags. 11. mars sl.

Lagt fram bréf Ríkissaksóknara frá 11. mars sl., þar sem tilkynnt er að Ríkissaksóknari móttók bréf Vopnafjarðarhrepps dags. 4. mars. sl., varðandi kæru Vopnafjarðarhrepps á málefnum eignarhaldsfélagsins Samvinnutryggingar og fjárfestingarfélagsins Giftar ehf. frá 17.  feb. 2010, þann 9. mars sl.

Fram kemur að Ríkislögreglustjóranum hefur verið skrifað og óskað eftir gögnum málsins.

Í bréfi ríkissaksóknara kemur fram að bréf kæranda hafi borist 9. mars 2011 og að frestur ríkissaksóknara til að taka afstöðu til kærunnar rennur út mánuði síðar.

 

 

 

 

6. mál. Þjónustusamningur um flug til Vopnafjarðar og Þórshafnar.

Þjónustusamningur ríkisins við Flugfélag Íslands um flug á flugleiðinni Akureyri-Vopnafjörður-Þórshöfn rennur út um næstkomandi áramót.   Norðlandair yfirtók þennan samning þegar þeir tóku við flugleiðinni af Flugfélagi Ísalnds.   Samningur þessi er alger forsenda fyrir því að unnt sé að halda úti flugi á þessari flugleið.  En sem kunnugt er þá er flogið alla virka daga vikunnar á þessari leið.

 

Lögð fram svofelld ályktun:

Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps vill vekja athygli samgönguyfirvalda á mikilvægi þess að þjónustusamningur milli Vegagerðarinnar og Norðlandair verði framlengdur og til þess verði séð að flugdögum á flugleiðinni Akureyri-Vopnafjörður-Þórshöfn verði ekki fækkað frá því sem nú er.

Verði talið nauðsynlegt að bjóða þjónustusamninginn út verði gert ráð fyrir því að flugdagar verði ekki færri en 5 í viku hverri. 

Hér er um mjög brýnt hagsmunamál sveitarfélaganna Vopnafjarðarhrepps og Langanesbyggðar að ræða, þar sem þetta eru einu almenningssamgöngur til og frá þessum stöðum.”

 

Eftir nokkrar umræður var sveitarstjóra falið að koma ályktun þessari á framfæri við þar til gerð yfirvöld samgöngumála, Innanríkisráðuneytið, Vegagerðina og samgöngunefnd Alþingis.

 

7. mál.  Gsm. Samband á nýjum vegi frá Hringvegi niður til Vopnafjarðar. 

 Unnið er að lagningu nýs vegar af Hringveginum niður til Vopnafjarðar, sem verður mikil bót fyrir samgöngur til og frá Vopnafirði.   Taka á þennan veg í gagnið á komandi hausti.    Á hluta þessa nýja vegar, það er, niður frá svokallaðri Pyttalækjarbungu uppi á Vopnafjarðarheiði og niður fyrir Hauksstaði í Vesturárdal verður Gsm. samband þó lítið sem ekkert nema til komi viðbótar sendar.

 

Hreppsnefnd lýsir ánægju með það  hvernig gengið hefur verið fram í því að bæta háhraðatengingar og Gsm samband í hinum dreifðari byggðum landsins.   Aðgerðir sem þessar skipta miklu máli varðandi búsetuskilyrði landsmanna.  

 

Lögð fram drög að bréfi til Símans, þar sem óskað er eftir því að Gsm samband á leiðinni frá Hringvegi niður til Vopnafjarðar um Vesturárdal verði lagfært.

 

Eftir nokkrar umræður var sveitarstjóra falið að senda bréf til Símans og Innanríkisráðuneytisins varðandi þessi mál á grundvelli fyrirliggjandi draga.

 

8. mál. Securitas brunakerfi í íþróttahús, tilboð.

Lagt fram tilboð frá Securitas í brunavarnarkerfi í íþróttahúsið.   Um er að ræða tilboð í allan búnað kerfisins og hljóðar tilboðið upp á 279.366 kr. með vsk.   Í tilboðinu felst ekki uppsetning þess en ráð má gera fyrir því að uppsetning kosti ekki minna en búnaðurinn.

Fundarmenn töldu hér um brýnt verkefni að ræða, sem þyrfti að skoða vandlega.

Sveitarstjóra falið að kanna kostnað við tilboð af þessum toga hjá fleiri aðilum

 

9.mál.  Bréf Halldórs Árnasonar frá 23. febrúar sl., ásamt fylgigögnum.

Lagt fram bréf Halldórs Árnasonar f.h. erfingja Halldórs Ásgrímssonar og Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur, varðandi gjöf þeirra hjóna á bókasafni þeirra til óstofnaðs Héraðsskjalasafns austfirðinga.  Bókagjöfin var  gefin árið 1974 með tilteknum skilyrðum.

Jafnframt lögð fram ýmis fylgigögn sem fylgdu bréfinu.   Í bréfinu lýsir bréfritari óánægju með sjórnsýsluákvarðanir stjórnar Héraðsskjalasafnsins varðandi meðferð mála er lúta að umræddri gjöf og skilyrðum tengdum gjöfinni.

Óskað er eftir afstöðu hreppsnefndar Vopnafjarðarhrepps til framangreindra stjórnsýsluaðgerða Héraðsskjalasafnsins eins og þeim er lýst í bréfinu og meðfylgjandi gögnum.

Á aðalfundi fulltrúaráðs Héraðsskjalasafnsins frá 25. nóv. 2010 var staðfest að bókasafninu yrði áfram tryggð framtíð, vöxtur og viðhald þess um ókomna framtíð.   Á þessum fundi áttu öll aðildarsveitarfélög Héraðsskjalasafnsins fulltrúa sína.

 

Að loknum talsverðum umræðum um málið þar sem fundarmenn lýstu sjónarmiðum sínum var lögð fram svofelld bókun:

 

“Hreppsnefnd Vopnafjarðarhepps telur eðlilegt að í þessu máli verði farið að samþykkt stjórnar Héraðsskjalasafnsins, enda er afgreiðsla stjórnarinnar í fullu samræmi við samþykkt aðalfundar fulltrúaráðs Austfirðinga, sem fram fór þann 25. nóvember 2010.”

                              

Fyrirliggjandi tillaga var samþykkt samhljóða.

10. mál. Ýmis mál og fundargerðir
a) Fundargerð stjórnar Héraðsskjalasafnsins 10. mars. sl.

Sveitarstjóri kvaddi sér hljóðs undir 2. tl. fundargerðarinnar “ Málefni bókasafns Halldórs og Önnu Guðnýjar” Vísaði hann til afgreiðslu hreppsnefndar hér að ofan í 9. tl.

Hreppsnefnd tekur undir 2. tl. fundargerðar stjórnar Héraðsskjalasafnsins frá 10. mars sl.

Fundargerðin að öðru leyti lögð fram til kynningar.

b) Stjórnarfundur Þróunarfélags Austurlands frá 7. mars sl., ásamt siðareglum.

Lagt fram til kynningar.

c) Félag skógarbænda, bréf dags. 11. mars sl., varðandi aðalfund.

Lagt fram til kynningar.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir