Fundargerð ferlinefndar Vopnafjarðarhrepp 24. febrúar 2011
Ferlinefndarfurndur var haldinn fimmtudaginn 24. febrúar 2011 á skrifstofu sveitarstjóra Vopnafjarðarhepps, Hamrahlíð 15, kl. 11:00
Á fundinn voru mætt Marie Robin, Hrund Snorradóttir, Ingólfur Sveinsson, Þorsteinn Steinsson sveitarstjóri og Þórunn Egilsdóttir oddviti. Fundargerð rituðu Þórunn Egilsdóttir (1.2. og 3. mál) og Hrund Snorradóttir (4. mál).
Dagskrá:
1. mál: Kjörbréf lagt fram:
Sveitarstjóri setti fund, lagði fram kjörbréf og bauð nefndarmenn velkomna til starfa.
2. mál: Nefndin skiptir með sér verkum:
Formaður: Marie Robin
Varaformaður: Ingólfur Sveinsson
Ritari: Hrund Snorradóttir
3. mál: Verkefni nefndarinnar:
Sveitarstjóri lagði fram samþykktir fyrir ferlinefnd, umræður voru um störf nefndarinnar. Fram kom hugmynd um að fulltrúi Félagsþjónustunnar fundi með nefndinni.
4. mál: Önnur mál (Hrund)
Þorsteinn Steinsson og Þórunn Egilsdóttir viku af fundi. Nefndarmenn ræddu um verkefni nefndarinnar, hvaða þætti skyldi fyrst skoða og hvernig skuli snúa sér í tillögum til úrbóta. Ákveðið var að formaður boði til annars fundar í lok mars og þá verði komið með gögn sem hægt er að vinna út frá, m.a. kort af bænum og teikningar frá bygginganefnd af þeim breytingum sem fyrirhugaðar eru á þjónustustöðum á Vopnafirði til að hægt sé að koma með viðeigandi ábendingar, ef einhverjar eru, áður en framkvæmdir hefjast.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 12:05