Hreppsnefndarfundur haldinn miðvikudaginn 6. apríl 2011 kl. 16.00 í félagsheimilinu Miklagarði.
Á fundinn voru mætt Þórunn Egilsdóttir, Björn Hreinsson Eyjólfur Sigurðsson, Sigríður Konráðsdóttir, Fjóla Valsdóttir, Guðrún Anna Guðnadóttir og Bárður Jónasson.
Jafnframt var mættur sveitarstjóri, Þorsteinn Steinsson, sem ritaði fundargerð.
Áður en gengið var til dagskrár óskaði oddviti eftir heimild til að taka á dagskrá tillögur KPMG, sem unnar voru að beiðni sveitarstjóra varðandi ársreikningagerð ársins 2010.
Samþykkt var að taka erindið á dagskrá sem 10. tl. fundargerðarinnar
Dagskrá:
1. mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 17. mars sl.
Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 17. mars sl.
Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða.
2. mál. Fundargerð Byggingar-og skipulagsnefndar frá 21. mars sl.
Lögð fram fundargerð byggingar- skipulagsnefndar frá 21. mars sl. Fram kom ábending um ritvillu sem verður leiðrétt.
Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða.
3. mál. Fundargerð ferlinefndar frá 24. feb. sl.
Lögð fram til kynningar fundargerð ferlinefndar frá 24. feb. sl.
4. mál Umsögn vegna rekstrarleyfis fyrir gististað í flokki I að Vatnsdalsgerði.
Lagt fram erindi sýslumannsins á Seyðisfirði frá 22. mars sl., þar sem óskað er umsagnar sveitarstjórnar um gistiheimili í flokki I að Vatnsdalsgerði.
Lögð fram svofelld tillaga: “Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps sér ekkert því til fyrirstöðu að umbeðið gistileyfi í flokki I verði veitt umsækjanda í Vatnsdalsgerði, Vopnafirði.”
Tillagan samþykkt samhljóða.
5. mál. Kjörskrá Vopnafjarðarhrepps fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu 9. apríl nk.
Kjörskrá Vopnafjarðarhrepps við þjóðaratkvæðagreiðslu 9. apríl 2011.
Lagður fram stofn að kjörskrá fyrir Vopnafjarðarhrepp, sem unnin hefur verið af Hagstofu Íslands. Alls eru 510 á kjörskrá Vopnafjarðarhrepps fyrir þessar kosningar, þar af eru 275 karlar og 235 konur. Ákveðið hefur verið að kjörstaður verði opinn milli kl. 10-18 og að kosið verði í Kaupvangi.
Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps samþykkir samhljóða framlagða kjörskrá fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu 9. apríl n. k. eins og hún liggur fyrir og felur sveitarstjóra að yfirfara og undirrita hana.
6. mál. Lónabraut 19-Kauptilboð/sala.
Auglýstar hafa verið til sölu íbúðir í eigu Vopnafjarðarhrepps. Borist hafa þrjú tilboð í fasteignina Lónabraut 19.
Lögð fram eftirfarandi tilboð:
- Einar Guðnason, kr. 6.500.000
- Einar Ólafur Einarsson, kr. 5.200.000
- Lilja Guðríður Ólafsdóttir, kr. 6.700.000
Gerð var grein fyrir fyrirliggjandi tilboðum og fyrirspurnum fundarmanna svarað.
Samþykkt samhljóða að selja hæst bjóðanda eignina. Sveitarstjóra falið að ganga frá og undirrita öll skjöl í því sambandi.
7. mál. Leikskólinn Brekkubær. Ljúka þarf framkvæmdum.
Lögð fram grunnmynd af leikskólanum Brekkubæ. Jafnframt lagt fram bréf Heilbrigðiseftirlits Austurlands frá 24. mars sl.
Í bréfinu er greint frá mikilvægi þess að lokið verði við breytingu á gamla leikskólanum, sem sett var á bið um áramótin 2008/2009, þegar fjármálakreppan skall á þjóðinni. Eftirlitið gerir nú kröfu um að settar verði fram lausnir í málinu.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir framlagðri teikningu af rýminu sem breyta á. Í máli hans kom fram að búið hefði verið að kaupa meginhluta þess efnis sem þarf til breytinganna, þegar framkvæmdin var stöðvuð. Mat hans var að heppilegast væri að ljúka framkvæmdinn til þess að uppfylla þær kröfur sem upp eru settar af heilbrigðiseftirlitinu. Fram kom að við skoðun teikninga og einnig á vettvangi með forstöðumanni leikskólans hefði verið talið æskilegt að stækka eldhúsið og væri nú unnið að því að breyta teikningu til samræmis við það.
Lögð fram svofelld tillaga: “ Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps felur sveitarstjóra að láta vinna kostnaðaráætlun yfir verkið og fá verktaka til þess að bjóða á móti kostnaðaráætlun. Verkinu verði lokið eigi síðar en öðru hvoru megin við næstkomandi áramót 2011/2012.”
Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.
8. mál. Bréf heilbrigðiseftirlits Austurlands dags. 24. mars sl., varðandi sýnatöku í sjó.
Lagt fram bréf Heilbrigðiseftirlits Austurlands frá 24. mars sl., varðandi sýnatökur af strandsjó til upplýsingaöflunar.
Gerð var grein fyrir málinu. Hreppsnefnd samþykkir að heilbrigðiseftirlitið framkvæmi umræddar sýnatökur.
Erindið sent til kynningar í hafnar- og umhverfisnefnd.
9. mál. Fundur með fulltrúa HB Granda 31. mars sl., varðandi útrás, hreinsikerfi o.fl.
Gerð var grein fyrir fundi með fulltrúa HB Granda varðandi útrásir og hreinsikefi sem unnið er að uppsetningu á. Jafnframt var rætt um veiðar og vinnslu á árinu.
Lögð voru fram gögn um nýja útrás og hreinsikerfi, sem annars vegar eru unnin af verkfræðistofunni Eflu og hins vegar af Varma og Vélaverki ehf.
Eftir umræður um málið var samþykkt að senda fyrirliggjandi gögn til umfjöllunar í Hafnar,-umhverfis-og Skipulagsnefnd.
Jafnframt var greint frá því hvernig sýn fyrirtækisins er á veiðar og vinnslu sjávarfangs á yfirstandandi ári.
10. mál. Meðferð á viðskiptastöðum milli A- og B-hluta Vopnafjarðarhrepps
Lögð fram tillaga að meðferð viðskiptakrafna milli A- og B- hluta Vopnafjarðarhrepps við gerð ársreiknings 2010. Tillagan er gerð af KPMG að beiðni sveitarstjóra og dagsett í dag 6. apríl 2011. Með tillögunni fylgir töfluyfirlit yfir fyrirhugaðar færslur. Sveitarstjóri gerði grein fyrir framlögðum gögnum, sem fela í sér að færa uppsafnaðan halla B-hluta fyrirtækja sveitarfélagsins fyrir árið 2009 og eldra yfir höfuðstól í aðalsjóði og gjaldfæra í aðalsjóði halla ársins 2010. Jafnframt er gert ráð fyrir að fækka B-hlutafyrirtækjum um 3 með því að sameina þau inn í Eignarsjóð. Skammtíma kröfur aðalsjóðs á Skiphólma og Arnarvatn eru færðar úr skammtímakröfum yfir í langtímakröfur.
Nettó áhrif þessara færslna á samstæðureikning sveitarfélagsins eru engin.
Að lokinni yfirferð sinni lagði sveitarstjóri til að hreppsnefnd samþykkti að fela KPMG löggiltum endursoðendum sveitarfélagsins að færa ársreikning sveitarfélagsins fyrir árið 2010 til samræmis við fyrirliggjandi tillögur, sem dagsettar eru í dag 6. apríl 2011.
Að loknum umræðum og fyrirspurnum, sem sveitarstjóri svaraði var fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.
11. mál. Ýmis mál og fundargerðir
a) Fundargerð stjórnar Skólaskrifstofu Austurlands frá 28. mars sl.
Lögð fram til kynningar
b) Sláturfélag Vopnfirðinga, Ársreikningur 2010.
Ársreikningur Sláturfélagsins fyrir árið 2010 lagður fram. Fram kemur að hagnaður félagsins er 8,2 m. kr. Vopnafjarðarhreppur er eigandi að 25,63 % í félaginu.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17.04