Fundur bygginganefndar Vopnafjarðarhrepps
11. apríl 2011, haldinn í Miklagarði kl. 12.00
Mætt til fundar: Hrund Snorradóttir, Hilmar Jósefsson, Jóhann L. Einarsson, Baldur Kjartansson, Árni Magnússon, Björgvin Hreinsson og Þráinn Hjálmarsson.
Einnig mættur: Magnús Már Þorvaldsson, er ritaði fundargerð.
- mál: Fundargerð skipulags- og bygginganefndar frá 21. mars sl. lögð fram.
Samþykkt samhljóða.
2. mál: Aðalskipulag - breyting – Tillaga að breytingu á gildandi aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps, dags. 11. apríl 2011, ásamt umhverfisskýrslu, dags. 11. apríl 2011. Til afgreiðslu.
Lögð fram tillaga að breytingu á aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps árin 2006-2026 varðandi breytta legu Norðausturvegar og nýja tengingu hans við þéttbýlið á Vopnafirði. Tillagan er unnin af Teikn á lofti og dags. 11. apríl 2011. Jafnframt lögð fram umhverfisskýrsla með tillögunni unnin af Teikn á lofti og dags. sama dag.
Lögð fram svofelld bókun:
„Skipulags- og bygginganefnd samþykkir fyrirliggjandi breytingartillögu að aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps fyrir árin 2006-2026, varðandi breytta legu Norðausturvegar og nýja tengingu hans við þéttbýli Vopnafjarðar. Nefndin samþykkir jafnframt framlagða umhverfisskýrslu með tillögunni en tillagan og skýrslan eru unnin af Teikn á lofti og dags. 11. apríl 2011. Skipulags- og bygginganefnd felur sveitarstjóra að leita heimildar Skipulagsstofnunar til að auglýsa tillöguna“.
Samþykkt samhljóða.
3. mál: Útrásarlögn HB Granda hf. – Lögð fram greinargerð Verkfræðistofunnar Eflu varðandi sjávarútrásar HB Granda, dags. í mars 2011, ásamt bréfi sveitarstjóra til skipulags- og bygginganefndar vegna fundar með flltr. HB Granda 31. mars sl., dags. 07.04.2011. Til kynningar.
Skipulags- og bygginganefnd gefur framkvæmdaleyfi á útrásarlögnina en óskar hér með eftir að fá gögn varðandi framkvæmdir innanhúss hér að lútandi.
Samþykkt samhljóða.
4. mál: Fjallaskáli í landi Mælifells – Afgreiðsla Skipulagsstofnunar á erindi v/ fjallaskála í landi Mælifells, sbr. rafpóst Ingu Dagfinnsdóttur, dags. 01. apríl 2011.
Lagt fram til kynningar – áður samþykkt í skipulags- og bygginganefnd.
Ekki fleira tekið fyrir, fundi slitið kl. 12.35.