Fundargerð umhverfismálanefndar 18. apríl 2011

20.04 2011 - Miðvikudagur

Fundur í umhverfisnefnd var haldinn í félagsheimilinu Miklagarði kl:16.00 mánudaginn 18. apríl.

Á fundinn voru mætt Ásrún Jörgensdóttir, Kristín Þóra Jóhönnudóttir, Hrafnhildur Helgadóttir,Margrét Arthúrsdóttir og Jóhann Róbertsson.

Dagskrá:

1.mál. Fundargerð umhverfisnefndar frá 12.júlí sl.

            Fundargerð samþykkt.

2.mál. Ný samþykkt um meðhöndlun úrgangs fyrir Vopnafjarðarhrepp.  

             Lagt fram til kynningar í umhverfisnefnd, í framhaldi spunnust umræður um hvort ekki hefði átt að leggja þetta fyrr fram til  umfjöllunar í umhverfisnefnd.

3.mál. Starfsleyfi fyrir urðunarstað Vopnafjarðarhrepps.

Bókun:  Lagt fram til kynningar starfsleyfi fyrir urðunarstað Vopnafjarðarhrepps  við Búðaröxl, sem er útgefið 5.sept.2002 til 10 ára. Leyfið gildir því til 5.sept.2012. Á starfsleyfistímanum hafa kröfur um urðun sorps verið hertar til muna samanber lög nr 55/2003 og reglugerð 738/2003. Meðal annars er gert ráð fyrir að safna þurfi metangasi, sem safnast á haugunum og virkja það. Allar þessar nýju kröfur geta leitt til þess að erfitt getur reynst að fá nýtt starsleyfi fyrir urðunarstað.

Umhverfisnefnd Vopnafjarðarhrepps leggur til að sveitarstjóra verði falið að undirbúa umsókn til Umhverfisstofnunar um nýtt starfsleyfi fyrir urðunarstað á Vopnafirði við Búðaröxl á grundvelli laga og reglugerða sem um slík mál gilda. 

4.mál. Heilbrigðiseftirlit Austurlands, sýnatökur af strandsjó.   

            Umhverfisnefnd lýsti ánæju sinni með þetta framtak og styður það heilshugar.

5.mál.  Fundur með HB Granda, varðandi útrás, hreinsikerfi o.fl.

             Lagt fram til kynningar, nefndin fagnar þessum úrbótum og vonast til að þeim ljúki sem fyrst.

6.mál.  Gögn frá ársfundi Umhverfisstofnunar og náttúrunefnda sveitarfélaga.

              Lagt fram til kynningar, umræður spunnust um hvort senda eigi fulltrúa á næsta fund og fá þannig betri sýn á störf þessara nefnda.

 

7.mál. Önnur mál.

             Ýmis mál rædd og þar á meðal hugmynd um vortiltekt í sveitarfélaginu, ákveðið að halda áfram með þá umræðu á næsta fundi. Ákveðið að halda fund fljótt aftur.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl: 17.00. 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir