Fundargerð hreppsnefndar 05. maí 2011

06.05 2011 - Föstudagur

Hreppsnefndarfundur var haldinn fimmtudaginn 5. maí
2011 kl. 16.00 í félagsheimilinu Miklagarði.


Á fundinn voru mætt Þórunn Egilsdóttir, Björn Hreinsson, Eyjólfur Sigurðsson, Sigríður Konráðsdóttir, Fjóla Valsdóttir, Guðrún Anna Guðnadóttir og Bárður Jónasson.

Jafnframt var mættur, sveitarstjóri, Þorsteinn Steinsson, sem ritaði fundargerð.

Dagskrá:

1. mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 28. apríl sl.

Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 28. apríl sl.

Fundargerðin samþykkt samhljóða.

 

2. mál. Ársreikningur Vopnafjarðarhrepps A- og B-hluta fyrir árið 2010

Fyrri umræða ársreikninga Vopnafjarðarhrepps fór fram 28. apríl sl., og voru þá til umræðu ársreikningar A-og B-hluta fyrir árið 2010, sundurliðanir ársreiknings, endurskoðunarskýrsla KPMG og greinagerð sveitarstóra með ársreikningum 2010. Á þann fund var einnig mættur löggiltur endurskoðendi KPMG, Magnús Jónsson,  gerði hann grein fyrir endurskoðunarvinnu sinni, endurskoðunarskýrslu og svaraði fyrirspurnum fundarmanna.

Öll þessi gögn eru til umfjöllunar hér í dag við síðari umræðu ársreikninga ársins 2010.

Sveitarstjóri gerði grein fyrir fyrirliggjandi gögnum og skýrði helstu stærðir í ársreikningum. Að öðru leyti vísaði hann til ársreikningsins, greinargerðar sinnar með reikningunum, skýringa og gagna KPMG.

 

Í ársreikningunum kemur fram að hagnaður samstæðunnar eftir afskriftir og fjármagnsliði er 41,8 m.kr. og þegar leiðrétt hefur verið fyrir afskirftum,  verðbótum og gengismun þá er veltufé frá rekstri 97,1 m. kr.  Að teknu tilliti til breytinga á rekstrartengdum eignum og skuldum þá er handbært fé frá rekstri árið 2010 130,0 m.kr.

Fjárhæð þessi dugar liðlega til þess að greiða niður fjárfestingar og allar afborganir lána án þess að nokkur ný lán séu tekin á árinu.

Eftir að lán hafa verið greidd niður um 98,7 m.kr. og fjárfestingar nettó um 28,4 m.kr. þá hækkar handbært fé um 2,9 m.kr. og er 19,5 m. kr. í árslok.

Eftir yfirferð sína lagði sveitarstjóri síðan til að ársreikningar Vopnafjarðarhrepps A- og B- hluta fyrir árið 2010 yrðu samþykktir.

Nokkrar  umræður urðu um ársreikningana og önnur fyrirliggjandi gögn, þar sem fundarmenn lýstu skoðunum sínum. Voru nefndarmenn almennt sáttir við rekstur sveitarfélagsins, tekist hafi vel að halda utan um kostnaðarliðina og að væntingar um tekjur hafi fyllilega staðist.

Ársreikningur Vopnafjarðarhrepps fyrir árið 2010 A- og B- hluta borinn upp til samþykktar.

 

Samþykktur samhljóða með 7 atkvæðum.

 

3. mál. Samningur við Vegagerðina um þjónustu gatna í sveitarfélaginu.

 

Lagt fram uppkast af nýjum samningi milli Vegagerðarinnar og Vopnafjarðarhrepps um þjónustu gatna í þéttbýli sveitarfélagsins. 

Samningurinn gerir ráð fyrir verulegum breytingum frá eldri samningi.   Nauðsynlegt er að fara vendilega yfir drögin þ.a. ljóst sé til hvers hann leiðir í endurgreiðslum vegagerðarinnar miðað við veitta þjónustu sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða að fela sveitarstjóra að ræða við Vegagerðina um gerð endanlegs samnings.

4. mál  Kolbeinsgata 55, sala íbúða.

Lögð fram tilboð í tvær íbúðir að Kolbeinsgötu 55, Vopnafirði.   Annars vegar er um að ræða íbúð 01-03, fastanúmer 217-1956, sem Katrín Sigurðardóttir býður í og hins vegar íbúð 01-02 , fastanúmer 217-1955, sem Guðmundur Jónsson og Þorbjörg Björnsdóttir bjóða í.   Tilboð þessi hafa fengist eftir gagntilboð milli seljanda og kaupanda.

Hreppsnefnd samþykkir með 5 atkv. fyrirliggjandi tilboð með fyrirvara um að ábúendur nýti sér ekki forkaupsrétt, þar sem það á við.   Tveir greiða atkvæði á móti, en gera grein fyrir atkvæði sínu með svofelldri bókun:

”Við viljum láta bóka þá afstöðu okkar að við höfnum þessum kauptilboðum vega þess að við teljum verðið of lágt”.

Sign.

Sigríður Konráðsdóttir og Eyjólfur Sigurðsson

5. mál.  Sundabúð, legudeild, fulltrúar ráðuneytis í starfshóp.

Lagt fram bréf Vopnafjarðarhrepps frá 18. feb. sl., þar sem óskað er eftir því að Velferðarráðuneytið skipi fulltrúa í viðræðunefnd um rekstrarfyrikomulag legudeildar Sundabúðar til framtíðar.   Jafnframt lagður fram tölvupóstur frá HSA dags. 2. maí 2010, þar sem talið er að Hermann Bjarnason og Bryndís Þorvaldsdóttir hafi verið tilnefnd sem fulltrúar Velferðarráðuneytisins í umgetna viðræðunefnd.

Sveitarstjóra falið að hafa Samband við Velferðarráðuneytið og fá það staðfest hvort þessir aðilar verði fulltrúar ráðuneytisins.   Jafnframt er honum falið að óska eftir fundi um þessi mál svo fljótt sem auðið er.

 

6. mál. Tillaga að umsögn um ný sveitarstjórnarlög, kynnt á fundinum.

Lögð fram og kynnt tillaga að umsögn um frumvarp til nýrra sveitarstjórnarlaga, sem unnin er af sveitarstjóra og dagsett 5. maí 2011.

Gerð var grein fyrir fyrirliggjandi tillögu að umsögn.   Talsverðar umræður urðu síðan um umsögnina, þar sem fundarmenn lýstu sjónarmiðum sínum.

Hreppsnefnd samþykkti samhljóða fyrirliggjandi tillögu að umsögn og felur sveitarstjóra að koma henna á framfæri.

7. mál. Ýmis mál og fundargerðir

a)  Nýtt starfsleyfi fyrir Vatnsveitu Vopnafjarðar.

Lagt fram til kynningar.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16.56





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir