5. fundur húsnæðisnefndar haldinn í Miklagarði 10.05 2011
1. mál. Umsókn um íbúð nr. 27 í Sundabúð, kom frá Aðalgeir Bjarkar. Er íbúðin nú þegar laus,og samþykkir nefndin umsóknina einróma.
2. mál. Umsókn barst frá Sigurbjörgu og Sölva Flosasyni um íbúðina að Þverholti 14. Samþykkt var að leigja þeim íbúðina þegar hún losnar.
3. mál. Steingrímur Árnason óskar eftir leiguhúsnæði vegna fyrirhugaðra flutninga til Vopnafjarðar. Umsóknin verður tekin fyrir aftur þegar íbúð losnar.
4. mál. Umsókn barst frá Önnu Sigríði Snorradóttur og Friðjóni G. Snorrasyni , hjón með 2 börn. Þau óska eftir leiguhúsnæði frá júlí til desember 2011. Nefndin samþykkir að leigja þeim íbúðina að Kolbeinsgötu 55 , suðurendi.
5. önnur mál. Nefndin hefur ákveðið að kynna sér ástand íbúðarinnar að Þverholti 3.
Fleira ekki tekið fyrir
Hafrún Róbertsdóttir
Ásrún Jörgensdóttir
Halldóra S. Árnadóttir
Hrafnhildur Ævarsdóttir
Silvía Björk Kristjánsdóttir