Menningarmálanefnd kom saman til fundar í Miklagarði 23. febrúar 2011 kl. 12:00
Mætt til fundar: Hreiðar, Magnús, Jósep, Einar Sirrý og Arnar, sem ritaði fundargerð.
Dagskrá:
1. Leikverk. Sigríður Dóra hafði samband við Hreiðar varðandi einleikinn Djúpið í flutningi Ingvars E. Sigurðssonar. Eins og áður hefur tíðkast sér nefndin um húsið og uppihald en listamaðurinn tekur sjálfur á sig að rukka inn. Þriðjudagur 15. mars er talinn vera heppilegast dagurinn fyrir þennan viðburð. Sigríður Dóra verður í sambandi við Ingvar. Hreiðar heyrði líka í Freyvangsleikhúsinu til að kanna hvort þau væru laus. Þau eru upptekin a. m. k. fram yfir páska.
2. Erindi frá Þekkingarneti Austurlands um minningarhátíð skáldsins Björgvins Guðmundssonar tekið fyrir. Akureyringar ætla að færa okkur til gjafar allt efni sem þeir hafa safnað saman um hann. 10. apríl verður Björgvinsdagur á Akureyri. Nefndin hefur áhuga á að fá Hauk Ágústsson á Vopnafjörð í sambandi við þetta. Best væri að hafa þetta í maí. Einnig kom hugmynd um að minnast skáldsins Erlu (frá Teigi). Á næsta ári er svo komið að skáldinu Sigurði Þórarinssyni. Ákveðið var að Jósep og Magnús haldi utan um Björgvinskvöldið en Magnús hefur átt góð samskipti við norðanmenn hér að lútandi.
3. Leiklistarnámskeið. Áhugi er fyrir því að hafa námskeið og kanna hvort grundvöllur sé fyrir því að halda úti leikfélagi eða leikhóp. Arnar sér um að ræða við skólastjórnendur og kanna hvort áhugi sé fyrir að nýta sama manninn fyrir árshátíð skólans. Í framhaldi af því verður sent út dreifibréf til að kanna áhuga á að halda námskeið.
4. Önnur mál. Sirrý leggur til að fá sýninguna “HVAÐ EF …” fyrir 8.-10. bekk. Þetta er forvarnarverkefni fyrir grunn- og framhaldsskólanema. Áhugi er á að skoða þetta sem fyrst.
Vopnaskak heyra ekki beint undir Menningarmálanefnd en nefndin kemur að hátíðinni en á sl. ári stýrði menningarmálafulltrúi henni og mun gera áfram í samvinnu við nefndina og áhugafólk.
Rætt um möguleikana á að hafa matarveislu og dansleik á sjómannadaginn.
Möguleikar á stækkun Vesturfarasafnsins í Kaupvangi ræddir en það er almenn skoðun nefndarfólks að fyrr eða síðar muni plássleysi hindra mögulega framþróun setursins. Viljum skoða möguleikana í þeim málum.
Fleira ekki, fundi slitið klukkan kl. 13:30.