Menningarmálanefnd kom saman til fundar í Miklagarði 12. maí 2011 kl. 12:00.
Mætt til fundar: Hreiðar, Einar, Sirrý, Magnús og Arnar, sem ritaði fundargerð.
Dagskrá:
1. Sjómannadagur. Hefðbundin dagskrá að deginum skipulögð af sjómannadagsráði. Einar ætlar að skoða möguleika á dagskrá um kvöldið, mat og skemmtidagskrá.
2. Skáldakvöld
a. Björgvinshátíð
b. Erlu- og Þorsteinskvöld
Stefnt að þessum kvöldum báðum, líklega í júní. Gerði Magnús nánar grein fyrir stöðu mála en Akureyringar hafa heitið Vopnfirðingum að fá gögn varðandi Björgvinshátíð en skáldakvöld, sem varðar Vopnfirsku skáldin, fékkst styrkur frá Menningarráði.
3. Vopnaskak til umræðu. Á síðasta ári kom sveitarfélagið að þessari hátíð ásamt félagasamtökum og verður það með svipuðu sniði í ár. Gerði Magnús nánar grein fyrir fyrirkomulaginu og því sem þegar byðist en verður greint frá síðar m. t. t. 4. liðar í dagskrá.
4. Fjármunir. Umræða vaknaði um úr hve miklum fjármunum Menningarmálanefnd hefur að spila. Nefndinni finnst vanta meiri yfirsýn yfir fjármálin, upplýsingar hér að lútandi alla vega ekki í höndum nefndar né menningarfulltrúa. Umræðu um viðburði slegið á frest vegna skorts á upplýsingum um þessi mál.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 13:05.