Hreppsnefndarfundur haldinn fimmtudaginn 19. maí 2011 kl. 16.00 í félagsheimilinu Miklagarði.
Á fundinn voru mætt Þórunn Egilsdóttir, Björn Hreinsson, Eyjólfur Sigurðsson, Sigríður Konráðsdóttir, Fjóla Valsdóttir, Guðrún Anna Guðnadóttir og Bárður Jónasson.
Jafnframt var mættur sveitarstjóri, Þorsteinn Steinsson, sem ritaði fundargerð.
Dagskrá:
1. mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 5. maí sl.
Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 5. maí sl. Fram komu fyrirspurnir við 4. og 5. tl. fundargerðarinnar, sem sveitarstjóri svaraði.
Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða.
2. mál Fundargerð húsnæðisnefndar frá 10. maí sl.
Lögð fram fundargerð húsnæðisnefndar frá 10. maí sl.
Fyrirspurn kom um stöðu á útleigu og eða sölu íbúða. Oddviti svaraði fram kominni fyrirspurn.
Fundargerðin að öðru leyti lögð fram til kynningar.
3. mál. Fundargerðir menningarmálanefndar frá 23. feb. og 12. maí sl.
Lagðar fram til kynningar fundargerðir menningarmálanefndar frá 23. feb. og 12.maí sl.
4. mál. Umsögn HAUST um erindi Vopnafjarðarhrepps varðandi gassöfnun.
Lögð fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Austurlands dags. 12. maí sl., um erindi Vopnafjarðarhrepps, varðandi undanþágu frá gassöfnun á sorphaugum Vopnfirðinga að Búðaröxl meðan unnið er að nýju starfsleyfi fyrir haugana. Jafnframt lagt fram erindi Vopnafjarðarhrepps frá 18. apríl sl., varðandi þetta efni.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir málinu og greindi frá því að þetta væri allt liður í að fá nýtt starfsleyfi fyrir urðunarstaðinn.
Hreppsnefnd felur sveitarstjóra að vinna áfram að málinu.
5. mál. Grenjavinnsla/refaveiðar.
Við umfjöllun þessa liðar vék Þórunn Egilsdóttir af fundi.
Lagt fram bréf vegna grenjavinnslu 2011 hjá Vopnafjarðarhreppi. Ennfremur fylgir bréf Umhverfisstofnunar, þar sem greint er frá því að ekki verður endurgreiddur kostnaður vegna refaveiða á árinu 2011, þar sem fjárveitingar á fjárlögum 2011 gera ekki ráð fyrir slíkum greiðslum.
Jafnframt lagt fram bréf til Umhverfisráðuneytisins frá Vopnafjarðarhreppi, þar sem þessu framferði er harðlega mótmælt og ríkisvaldið hvatt til að sjá að sér í þessum efnum.
Hreppsnefnd samþykkir að greitt skuli fyrir grenjavinnslu á Vopnafirði með sama hætti og verið hefur umliðin ár, þrátt fyrir að ríkisvaldið skorist undan ábyrgð í þessum efnum.
Á grundvelli þessa verða þó ekki greidd verðlaun fyrir refi sem veiddir eru af öðrum en þeim sem veiðileyfi hafa á tilteknum stykkjum. Jafnframt verða skýrslur vegna refaveiðanna ekki afhentar ríki fyrr en endurgreiðslur fást á móti kostnaði eins og verið hefur.
Sveitarstjóra falið að vinna áfram að framgangi þess að leiðrétting fáist á þessi mál.
Þórunn mætti aftur á fund.
6. mál. Aðgengismál við skóla og nokkrum stöðum í bænum.
Lagt fram bréf frá félagsþjónustu Fljótsdalshéraðs, þar sem bent er á nokkur atriði sem bæta þyrfti í aðgengismálum við skólann og umhverfi.
Í bréfinu kemur einnig fram að bætt hefur verið úr ýmsum málum af þessum toga í skólanum.
Hreppsnefnd telur eðlilegt að áfram verði unnið að úrbótum á þessu sviði í samvinnu við fulltrúa Félagsþjónustunnar og forsvarsmenn skólans.
7. mál. Erindi húseigenda að Kolbeinsgötu 16B, varðandi úrbætur vegna bleytu ofan íbúðarhúss.
Lagt fram bréf húseigenda við Kolbeinsgötu 16 B, varðandi vandamál sökum bleytu ofan lóðar hússins. Í bréfinu er sett fram tillaga til úrbóta með því að grafa skurð ofan lóðar.
Hreppsnefnd samþykkir að fela áhaldahúsi að vinna að lausn málsins í samvinnu við húseigendur.
8. mál. Aðalfundur Menningarráðs Austurlands 14. júní nk. -Velja þarf fulltrúa í stjórn.-
Aðalfundur Menningarráðs Austurlands verður haldinn á Djúpavogi 14. júní nk.
Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps samþykkir að fulltrúi Vopnafjarðarhrepps í nýrri stjórn Menningarráðsins verði Guðrún Anna Guðnadóttir og til vara verði Þórunn Egilsdóttir.
9. mál. Aðalfundur Þróunarfélags Austurlands og Atvinnuþróunarsjóðs 30. maí nk. -Gera þarf tillögu um fulltrúa Vopnafjarðarhrepps í stjórn.-
Aðalfundir Þróunarfélags Austurlands og Atvinnuþróunarsjóðs, verða haldnir mánudaginn 30. maí nk. Fulltrúi Vopnafjarðarhrepps í þessum stjórnum, Jóhann Már Róbertsson, hefur óskað eftir að losna frá áframhaldandi stjórnarsetu í þessum félögum.
Tillaga er hér gerð um að nýr fulltrúi Vopnafjarðarhrepps í báðum þessum stjórnum verði Sigríður Bragadóttir og varamaður verði Þorsteinn Steinsson.
Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.
10. mál. Drög að samstarfssamningi milli Vopnafjarðarhrepps og ungmennafélagsins Einherja.
Lögð fram drög að samstarfssamningi milli ungmennafélagsins Einherja og Vopnafjarðarhrepps, sem unnið hefur verið að.
Oddviti gerði grein fyrir samningnum og svaraði fyrirspurnum fundarmanna.
Lagði hann síðan til að samstarfssamningnum væri vísað til umfjöllunar í æskulýðs- og íþróttanefnd sveitarfélagsins.
Eftir miklar umræður var þessi málsmeðferð samþykkt samhljóða.
11. mál. Ýmis mál og fundargerðir
a) Aðalfundur Landskerfis bókasafna verður 25. maí nk.
Lagt fram til kynningar.
b) Styrkbeiðni vegna reksturs Aflsins 2011
Ekki hægt að verða við beiðni um styrk. Samþykkt samhljóða.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17.25