Hreppsnefndarfundur haldinn fimmtudaginn 9. júní
2011 kl. 16.00 í félagsheimilinu Miklagarði.
Á fundinn voru mætt Þórunn Egilsdóttir, Björn Hreinsson, Sigríður Konráðsdóttir, Eyjólfur Sigurðsson, Hafþór Róbertsson, Guðrún Anna Guðnadóttir og Bárður Jónasson.
Jafnframt var mættur sveitarstjóri, Þorsteinn Steinsson, sem ritaði fundargerð.
Dagskrá:
1. mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 19. maí sl.
Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 19. maí sl.
Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða.
2. mál. Fundargerðir æskulýðs-og íþróttanefndar frá 6. júní sl.
Fundargerð æskulýðs- og íþróttanefndar frá 6. júní sl. Oddviti kvaddi sér hljóðs undir 3. tl. fundargerðarinnar og fagnaði samvinnu félagasamtaka í bænum, varðandi námskeiðshald fyrir börn á aldrinum 6-9 ára.
Formanni æskulýðsnefndar falið að vinna með viðkomandi félagasamtökum að skipulagi námskeiðanna. Jafnframt verði skoðað hvernig best verður leyst úr mannahaldi í því sambandi.
Fundargerðin að öðru leyti lögð fram til kynningar.
3. mál. Fundargerð umhverfisnefndar frá 6. júní sl.
Lögð fram fundargerð umhverfisnefndar frá 6. júní sl. Spurst var fyrir um opnunartíma á gámaplani á laugardögum og hvort ekki væri mögulegt að hafa tilkynningar um það á hliðinu.
Hreppsnefnd tekur undir ábendingar nefndarinnar um hreinsunarátak í sveitarfélaginu og felur áhaldahúsi að vinna að framgangi þessara mála.
4. mál. Samband ísl. Sveitarfélaga kynning á niðurstöðum hauggasmælinga, sem fram fór 3. júní sl.
Lögð fram gögn vegna hauggasmælinga á 10 tilteknum urðunarsöðum í landinu. Þar á meðal er urðunarstaðurnni að Búðaröxl, Vopnafirði. Fulltrúi Sambands ísl. Sveitarfélaga kynnti þessar niðurstöðu hjá Umhverfisstofnun 3. júní sl. Í gögnunum kemur fram að það er mögulegt að safna metangasi á haugunum við Búðaröxl, en að það yrði að öllum líkindum ekki fjárhagslega hagkvæmt. Ekki liggur fyrir afstaða Umhverfisstofnunar um það hvort undanþága fæst frá gassöfnuninni eins og óskað hefur verið eftir. Brýnt er að niðurstaða fáist í þau mál fljótt, því samkvæmt reglugerð er sveitarfélögunum ætlað að safna gasi frá og með 16. júlí nk.
5. mál. Kauptilboð Kolbeinsgata 55
Lagt fram tilboð í íbúð merkt 02-01að Kolbeinsgötu 55, Vopnafirði. Þessi íbúð ásamt öðrum íbúðum í sveitarfélaginu var auglýst til sölu. Seldar hafa verið fjórar fasteignir, sem voru í eigu Vopnafjarðarhepps á grundvelli þessara auglýsinga.
Meirihluti hreppsnefndar hefur nú endurskoðað eignasölumál sín á grundvelli þess að allmikil þörf virðist vera sem stendur á leiguíbúðum í eigu sveitarfélagsins. Þess vegna tekur hreppsnefnd þá ákvörðun að selja ekki fleiri eignir en orðið er, að svo stöddu.
Á þeim grunni er þakkað fyrir fyrirliggjandi tilboð í íbúð 02-01 að Kolbeinsgötu 55 um leið og því er hafnað.
Málsmeðferð þessi var samþykkt samhljóða.
6. mál. Frumhugmyndir að nýju deiliskipulagi á haugasvæði.
Lögð fram gögn varðandi tímaáætlun í deiliskipulagsvinnu á svæði urðunarstaðar Vopnafjarðar að Búðaröxl. Ennfremur lagðar fram myndir af svæðinu sem sýna hugmyndir að nýtingu þess.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir fyrirliggjandi gögnum og lagði til að málinu yrði vísað til umfjöllunar í skipulagsnefnd og umhverfisnefnd.
Eftir umræður var þessi málsmeðferð samþykkt.
7. mál. Samkomulag milli Menntamálaráðuneytisins og Sambands ísl. Sveitarfélaga um eflingu tónlistarnáms og jöfnun á aðstöðumun nemenda.
Lagt fram samkomulag milli menntamálaráðuneytisins og Sambands ísl. Sveitarfélagaum um eflingu tónlistarnáms og jöfnun á aðstöðumun nemenda til tónlistarnáms, óháð búsetu.
Jafnframt er lagt fram bréf Vopnafjarðarhepps frá 12. október 2009 til menntamálaráðuneytisins, þar sem gerð er grein fyrir þeim mikla aðstöðumun sem hefur verið varðandi tónlistarnám framhaldsskólanema utan lögheimilssveitarfélags. Í bréfinu er óskað eftir því að Menntamálaráðuneytið beiti sér fyrir úrbótum í þessu efni.
Lögð var fram svofelld bókun:
“Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps fagnar þeirri miklu bragarbót sem náðst hefur með samkomulagi þessu til jöfnunar á tónlistarnámi á framhaldsskólastigi, óháð búsetu.
Samkomulagið er mikið framfararskref fyrir tónlistarnám og lagfærir þann mikla aðstöðumun sem verið hefur á þessum málum eftir því hvar lögheimili viðkomandi nemenda hefur verið”
Fyrirliggjandi bókun samþykkt samhljóða.
8. mál. Skógardagur á Vopnafirði 18. júní nk., bréf Else Möller dags. 3. júní sl.
Lagt fram bréf Else Möller varðandi Sérstakan skógardag á Vopnafirði 18. júní nk. en sérstök ráðstefna verður haldin í Kaupvangi þennan dag.
Jafnframt lögð fram dagskrá ráðstefnunnar. Í bréfinu er óskað eftir stuðningi Vopnafjarðarhepps vegna þessa.
Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps fagnar þessu framtaki og felur sveitarstjóra og oddvita að ræða við bréfritara varðandi stuðning sveitarfélagsins í þessum efnum.
9. mál. Bréf Siglingastofnunar frá 18. maí sl., varðandi styrk úr
Hafnarbótasjóði
Lagt fram bréf Siglingastofnunar varðandi styrk úr Hafnarbótasjóði að fjárhæð 5,4 m.kr. á grundvelli umsóknar þar um. Styrkurinn greiðist út miðað við framvindu verkefnis, sem sótt er um fyrir.
Samþykkt að vísa málinu til kynningar í hafnarnefnd.
10. mál. Bréf Skipulagsstofnunar dags. 24. maí sl., varðandi breytingu á Aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps.
Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar frá 24. maí sl., þar sem heimilað er að auglýsa tillögu að breytingu á aðlaskipulagi Vopnafjarðarhrepps 2006-2026, vegna breyttrar legu nýs vegar inn í þéttbýli Vopnafjarðar.
Breytingin hefur þegar verið auglýst og er til kynningar á skrifstofu Vopnafjarðarhepps, ásamt umhverfisskýrslu til föstudagsins 8. júlí nk. Athugasemdafrestur er til kl. 16.00 þann 7. júlí nk.
Samþykkt að vísa erindinu til kynningar í skipulagsnefnd.
11.mál. Ályktanir frá 61. Sambandsþingi UÍA
Lagðar fram ályktanir frá 61. Sambandsþingi UÍA.
Samþykkt að vísa fyrirliggjandi ályktunum til kynningar í æskulýðs- og íþróttanefnd
12. mál. Ýmis mál og fundargerðir
a) Fundargerð stjórnar SSA frá 1. júní sl.
Mikil umræða varð um málefni Austfirskrar einingar og þá vinnu sem þar hefur verið í gangi.
Lagt fram til kynningar.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17.25