Hreppsnefndarfundur fimmtudaginn 23. júní
2011 kl. 16.00 í félagsheimilinu Miklagarði.
Á fundinn voru mætt Þórunn Egilsdóttir, Björn Hreinsson, Eyjólfur Sigurðsson, Einar Björn Kristbergsson, Fjóla Valsdóttir Guðrún Anna Guðnadóttir og Bárður Jónasson.
Jafnframt var mættur sveitarstjóri, Þorsteinn Steinsson, sem ritaði fundargerð.
Dagskrá:
1. mál. Fundargerð hreppsnefndar frá 9. júní sl.
Lögð fram fundargerð hreppsnefndar frá 9. júní sl. Bent var á villu í bókun, sem var leiðrétt.
Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða.
2. mál. Fundargerðir æskulýðs-og íþróttanefndar frá 9. júní sl.
Lögð fram fundargerð æskulýðs- og íþróttanefndar frá 9. júní sl.
Oddviti kvaddi sér hljóðs undir 1. tl. fundargerðarinnar, samstarfssamningur milli Einherja og Vopnafjarðarhrepps. Tók hún undir bókun nefndarinnar, þar sem fagnað er gerð samnings milli þessara aðila. Jafnframt greindi hún frá því að tímanlega fyrir gerð næstu fjárhagsáætlunar yrði sest niður með fulltrúum samningsaðila og fjárframlag til félagsins endurskoðað.
Lagði hún síðan til að fela sveitarstjóra að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins.
Tillaga oddvita varðandi þennan lið var síðan samþykkt samhljóða.
Í fundargerðinni er einnig fjallað um knattspyrnusvæði Vopnfirðinga og nauðsynlegar lagfæringar á því. Í fundargerðinni er bent á þann möguleika að malarvöllurinn verði nýttur sem undirstaða fyrir nýjan grasvöll. Lagt er til að gerð verði kostnaðaráætlun á slíkri framkvæmd.
Hreppsnefnd samþykkir að kannaðar verði leiðir við gerð slíkrar kostnaðaráætlunar. Fulltrúar sveitafélagsins og Einherja vinni sameiginlega að framgangi málsins.
3. mál. Fundargerð þjónustunefndar aldraðra frá 14. júní sl.
Lögð fram fundargerð Þjónustunefndar aldraðra frá 14. júní sl.
Varðandi 3. tl. fundarerðarinnar er lagt til að fulltrúar sveitarfélagsins, nefndarinnar og eldriborgara fari á vettvang og listi upp þær breytingar, sem hugmyndin er að vinna að og láti meta kostnað við þær.
Fundargerðin að öðru leyti lögð fram til kynningar.
Spurst fyrir um girðingu neðan Sundabúðar. Oddviti svaraði framkominni spurningu.
4. mál. Samband ísl. Sveitarfélaga kynning á niðurstöðum hauggasmælinga, sem kynntar 3. júní sl.
Lagt fram minnisblað dags. 20. júní sl., unnið af Sambandi ísl. Sveitarfélaga, varðandi tillögur um aðgerðir vegna hauggass á urðunarstöðum á nokkrum stöðum á landinu.
Hér er um að ræða tillögur Sambands ísl. Sveitarfélaga, sem ekki hafa verið samþykktar af Umhverfisráðuneytinu. Af þeim sökum er alsendis óvíst enn hvort þessi leið sé fær.
Samþykkt að fela sveitarstjóra að vinna áfram að úrlausn þessara mála í samvinnu við þau ráðuneyti og stofnanir sem við á.
5. mál. Læknisleysi á Vopnafirði. Gerð grein fyrir málinu.
Dagana 16. júní til og með 19. júní sl. var læknislaust á Vopnafirði. Fulltrúar Heilbrigðisstofnunar Austurlands hafa greint frá því að hér sé um nauðsynlegar aðgerðir í sparnaðarskyni að ræða.
Vopnafjarðarhreppur hefur mótmælt því harðlega að grunnlæknisþjónusta sé tekin frá Vopnafirði í þeim einum tilgangi að spara. Í þessu sambandi hefur bæði verið rætt við forstöðumenn HSA og einnig við Velferðarráðherra. Í þeim samtölum hefur því harðlega verið mótmælt að grunnþjónusta af þessum toga sé tekin frá samfélögum eins og Vopnafirði.
Lögð fram svofelld ályktun:
“Hreppsnefnd Vopnafjarðar mótmælir því harðlega að grunnlæknisþjónusta sé tekin af Vopnfirðingum í sparnaðarskyni eins og raunin var á um nokkurra daga skeið nú í júní.
Það getur ekki verið ásættanlegt að sveitarfélag sé haft læknislaust í sparnaðarskyni og þannig tekin áhættan á því að engin erfið læknistilfelli komi upp á sparnaðartímabilinu. Vopnafjörður er í 135 km fjarlægð frá Egilsstöðum, þar sem næst er unnt að ná í lækni, ef vá ber að dyrum. Jafnframt er um háa fjallvegi í um 600 metra hæð yfir sjávarmáli að ræða svo allsendis er óvíst hversu öruggt er að komast milli þessara staða þegar brýna nauðsyn ber til.
Með ályktun þessari er þess krafist að læknislausir dagar verði ekki fleiri á Vopnafirði og að sjálfsögð grunnþjónusta á sviði lækninga verði til staðar þar, sem og á öðrum þéttbýlisstöðum landsins”.
Hreppsnefnd samþykkti síðan samhljóða fyrirliggjandi ályktun og felur sveitarstjóra að koma henni á framfæri við Velferðarráðuneytið og Heilbrigðisstofnun Austurlands.
6. mál. Kjör oddvita og varaoddvita sveitarstjórnar.
Samkvæmt 14. gr. sveitarstjórnarlaga þarf að kjósa oddvita og varaoddvita sveitarstjórnar í júní hvert ár, þar sem kjörtímabil þessara aðila er eitt ár.
Tillaga kom fram um að nýr oddviti sveitarstjórnar verði Þórunn Egilsdóttir
Samþykkt með 5 atkv. 2 sátu hjá.
Þá kom fram tillaga um að næsti varaoddviti yrði Björn Hreinsson.
Fyrirliggjandi tillaga samþykkt með 5 atkvæðum. 2 sátu hjá.
7. mál. Bréf Menntamálaráðuneytisins dags. 15. júní sl., varðandi raðtilnefningu íslenskra torfbæja m.a. Bustarfells til heimsminjaskrifstofu UNESCO.
Lagt fram bréf Mennta-og menningarmálaráðuneytisins frá 15. júní sl., þar sem tilkynnt er að torfbærinn að Bustarfelli hefur verið tilnefndur í raðtilnefningu fleiri torfbæja á heimsminjaskrá UNESCO.
Hreppsnefnd Vopnafjarðar fagnar þessari tilnefningu og óskar Minjasafninu að Bustarfelli innilega til hamingju með þennan merka áfanga.
8. mál. Tillaga að yfirlýsingu um samstarf við Þjóðskjalasafn Íslands, varðandi verkefni við skráningu skjala.
Kynntar voru hugmyndir að samvinnu Þjóðskjalasafns Íslands, Vinnumálastofnunar og menntamálaráðuneytisins annars vegar og Þróunarfélags Austurlands f.h. sveitarfélaganna Breiðdalshrepps, Djúpavogshrepps og Vopnafjarðarhrepps hins vegar.
Verkefni þetta er um margt áhugavert og er í raun angi að verkefni sem unnið hefur verið að á Vopnafirði í samvinnu sveitarfélagsins og Þjóðskjalasafnsins í framhaldi af vinnu með svokallaðri Norð-Austurnefnd. Skráningin var unnin hjá fyrirtækinu Blikum ehf. á Vopnafirði við góðan orðstír.
Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps telur hugmyndir þessar athygliverðar. Sveitarstjórn telur mikilvægt að verkefnið verði unnið í samvinnu við fyrirtækið Blika ehf., sem eins og áður segir hefur unnið verkefni af þessum toga fyrir Þjóðskjalasafnið.
Sveitarstjóra og oddvita falið að vinna að framgangi málsins með Þróunarstofu Austurlands á þessum grunni.
Samþykkt samhljóða.
9. mál. Þjóðahátíð Austfirðinga, bréf Rauðakross Íslands, varðandi styrkbeiðni.
Samþykkt að styrkja Þjóðahátíð Austfirðinga með 25.000 kr.
10. mál. Ýmis mál og fundargerðir
a) Fundargerð starfshópsins Austfirsk eining frá 14. júní sl. og starfshóps um almenningssamgöngur frá 9. júní sl.
Bárður, fulltrúi Vopnfirðinga í starfshópnum gerði grein fyrir málinu.
Fundargerðin að öðru leyti lögð fram til kynningar.
b) Bréf sambands ísl. Sveitarfélaga varðandi öryggi á sundstöðum.
Lagt fram til kynningar.
c) Fundargerð Haust frá 8. júní sl.
Gerð sérstök grein fyrir málefnum er snúa að fráveitumálum Sveitarfélaga og sorpmálum þeirra.
Fundargerðin að öðru leyti lögð fram til kynningar.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15.40.